Morgunblaðið - 24.09.2015, Side 18

Morgunblaðið - 24.09.2015, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015 SVIÐSLJÓS Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Framkvæmdir eru vel á veg komnar við lúxusgistihúsið á Deplum í Fljót- um í Skagafirði. Að sögn Jennifer Jeffery, markaðs- og kynningar- stjóra ferðaþjónustufyrirtækisins Eleven Experi- ence, sem mun reka gistihúsið, er stefnt að opnun í byrjun apríl á næsta ári. Fjöldi iðnaðar- manna hefur ver- ið að störfum í húsinu síðustu vikur og mánuði. Ekkert hefur ver- ið til sparað og ljóst að fjárfestingin nemur hundr- uðum milljóna króna. Er fram- kvæmdin orðin mun umfangsmeiri en upphaflega stóð til. Samkvæmt samþykktu deiliskipulagi nær leyfi- legt heildarbyggingarmagn til um 3.000 fermetra. Eigandinn heillaðist af Íslandi Eleven Experience leikur orðið lykilhlutverk í þessum fjárfestingum í Fljótum. Orri Vigfússon athafna- maður komst í kynni við eiganda Eleven, Bandaríkjamanninn Chad R. Pike, háttsettan yfirmann fjárfest- ingasjóðsins Blackstone í Evrópu, sem er vellauðugur. Að sögn Jeffery hefur Pike sjálfur valið áfangastaði fyrirtækisins víða um heim, í návígi við skíðasvæði, veiðiár og stórbrotna náttúru. „Chad hefur heillast mjög af Ís- landi; náttúrunni, fólkinu og menn- ingunni, og hann leggur mikla fjár- muni og ástríðu í þetta verkefni í Fljótum. Þetta byrjaði í smærri snið- um en hefur síðan undið upp á sig,“ segir Jeffery. Hún segir Eleven Experience leggja áherslu á heilsársferða- mennsku í Fljótum og næsta ná- grenni á Tröllaskaga, ekki aðeins skíðaferðir um vetur, heldur einnig norðurljósaferðir, laxveiði á sumrin, hestaferðir, fjallgöngur, brettasigl- ingar, hvalaskoðun og ýmislegt fleira. „Til að byrja með einbeitum við okkur að fjallaskíðaferðum og laxveiði en hitt mun vonandi fylgja í kjölfarið,“ segir hún. Ætlunin er að laða til sín efnaða ferðamenn, sem tilbúnir eru að kosta miklu ásamt fjölskyldum sínum og vinum til að upplifa íslenska náttúru á afskekktum slóðum, með afþrey- ingu á borð við þyrluskíðaferðir og laxveiði. Sex daga ferð á tvær milljónir Samkvæmt verðskrá fyrirtækisins mun það kosta sitt að dvelja á Depl- um. Í gistihúsinu verða 11 herbergi, bæði eins og tveggja manna, og eitt stórt herbergi með kojum. Fjögurra daga dvöl í apríl 2016 mun kosta 10 þúsund dollara á mann, jafnvirði um 1,3 milljóna króna, og sex daga dvöl 15 þúsund dollara, nærri tvær millj- ónir króna. Innifalið í verðinu er gist- ingin, allur matur og drykkir á barn- um, ferðir til og frá Akureyrarflugvelli, þyrluflug í fjalla- skíðaferðir, skíðabúnaður, leiðsögn og margt fleira. Verðskrá fyrir næsta sumar liggur ekki fyrir. Eleven Experience hefur þegar ráðið til sín íslenska starfsmenn og ætlunin er að ráða fleiri. Jeffery seg- ir að þessa dagana fari fram ráðning- arviðtöl. Ekki liggi fyrir hve margir verði ráðnir en stefnt sé að því að ráða Íslendinga í allar stöður í tengslum við ferðaþjónustuna, eins og hótelstjóra, matreiðslumenn, bíl- stjóra, leiðsögumenn og starfsmenn í móttöku og ræstingar. Jennifer segir þó líklegt að reyndir fjallaleiðsögumenn frá Eleven komi einnig í Fljótin þegar þyrluskíðaferð- ir eru í gangi. Eleven hefur verið í samstarfi við þyrlufyrirtækið Reykjavik Helicopters og leigt af þeim þyrlur. Mun það samstarf lík- lega halda áfram og þá gæti Reykja- vik Helicopters þurft að bæta við sig þyrlum. Fljótandi í saltvatni Séð verður til þess að hótelgestir á Deplum geti slakað vel á. Jeffery staðfestir að þar verði bæði inni- og útisundlaug, nuddstofur, gufubað, líkamsræktarsalur og vínkjallari. Þá segir hún frá sérstökum heitum pott- um með saltvatni, á frummálinu kall- að Koan Floating, sem verða í boði á Deplum. Gestirnir geta flotið þar í pottunum, sem eru með loki og glugga (sjá meðf. mynd). Þó að ekki sé byrjað að taka við bókunum eru Deplar taldir upp á vef fyrirtækisins sem einn af áningar- stöðum þess. Þar segir að þetta séu friðsælir og afskekktir staðir. Hvert gistihús er sagt jafnast á við fimm stjörnu hótel, með meistarakokka á sínum vegum; vínkjallara, gufubað, líkamsrækt og þjónustu færustu leið- sögumanna. Eins og kom fram í umfjöllun Morgunblaðsins fyrir tveimur árum er gistihús undir merkjum fyrir- tækisins að finna í skíðabænum Crested Butte í Klettafjöllunum í Bandaríkjunum, annað í Tarantise í frönsku Ölpunum og hið þriðja í Ed- ington, skammt frá Bath á Englandi. Þá er gistihús í boði á Bahama- eyjum og fleiri boðuð í Síle og Amst- erdam. Fyrirtækið býður gestum sínum á þessum stöðum upp á alls konar fríð- indi, t.d. er innisundlaug í skálanum í frönsku Ölpunum og í Klettafjöll- unum er í boði einkaleiðsögn um fjöllin, einkabílstjóri og einkakokkur. Í gistihúsinu þar eru herbergin með búnaði sem gerir gestum kleift að stilla súrefnismagnið í herbergj- unum ef ske kynni að þeir gætu ekki aðlagast hæðinni, sem er um 2.700 metrar yfir sjávarmáli. Keiluhöll á Knappsstöðum? Auk Depla eiga sömu fjárfestar jarðirnar Knappstaði og Stóru- Brekku. Jennifer Jeffery segir ekki endanlega ákveðið hvað gert verði með þær eignir. Ýmsar hugmyndir séu uppi á borðinu en á Stóru- Brekku verði væntanlega svefn- aðstaða fyrir starfsfólk Eleven og geymslur undir tækjabúnað fyrir- tækisins. Heyrst hafa áform um byggingu keiluhallar á Knappstöðum og Jeffery hlær þegar hún fær þá spurningu. „Þetta er bara ein af mjög mörg- um hugmyndum sem hafa komið upp en ekki af neinni alvöru. Keiluhöll er ekkert forgangsverkefni hjá okkur eins og staðan er í dag. Það er aldrei að vita hvað verður þegar fram í sækir.“ Fljótin að taka á sig nýja mynd  Lúxusgistihús á Deplum í Fljótum langt komið  Stefnt að opnun næsta vor  Sundlaugar og gufubað á staðnum  Fjallaskíðaferðir og laxveiði  Fjögurra daga dvöl fyrir 1,3 milljónir á mann Deplar Nýja gistihúsið er langt komið og byggt í íslenskum stíl, með torf- þaki og kvistum. Fjöldi iðnaðarmanna hefur verið þarna að störfum. Stífluvatn M iklavatn Fljótaá Flókadalur Knappsstaðir Deplar-gistihús Stóra Brekka Lundur Helgustaðir Bergland-veiðihús Fjárfestingar í Fljótum Húsin í Haganesvík Loftmyndir ehf. Eign Áhugi á kaupum Í leigu Fljótabakki og Eleven Experience Ljósmynd/Eleven Experience Fjallaskíði Þyrlur eru notaðar til að ferja skíðafólk upp á fjallstoppa. Flog- ið verður með ferðamenn frá Deplum á Tröllaskaga, m.a. yfir Siglufjörð. Slökun Nuddpottar með saltvatni verða á gistihúsinu á Deplum. Jennifer Jeffery Kringlunni 4c – Sími 568 4900 Vetrarkápurnar komnar Fylgist með okkur á faceboock

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.