Morgunblaðið - 24.09.2015, Síða 22

Morgunblaðið - 24.09.2015, Síða 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Aðsókn að nýju ísgöngunum í Lang- jökli er umfram áætlanir og er útlit fyrir að 16-17 þúsund gestir skoði þau fyrsta rekstrarárið. Áætlanir gerðu ráð fyrir 15 þúsund gestum í ár og hefur þeim fjölda verið náð. Ísgöngin, sem eru manngerð, voru opnuð fyrir gestum 1. júní sl. Boðið er upp á ýmsa þjónustu en fyrir utan hinar hefðbundnu ferðir með 8 hjóla jöklatrukkum og leið- sögn í gegnum göngin gefst fólki m.a. kostur á að gifta sig í ískapellu og leigja íshelli undir samkomur. Stendur til að auka gæði þjónust- unnar frekar, lengja skoðunarferð- irnar og fjölga afþreyingarkostum. Þær hugmyndir eru í þróun. Félagið Into the Glacier ehf. stendur fyrir ferðum í göngin. Sigurður Skarphéðinsson, fram- kvæmdastjóri félagsins, segir leið- sögumönnum verða fjölgað á næsta ári til að mæta eftirspurn. Ísgöngin verða opin allt árið, eða eftir því sem veður leyfir. Ferðum er fækkað yfir veturinn og er þá farið að göngunum fjóra daga vikunnar frá og með 1. október, en daglega yfir sumarið. Umfjöllun erlendis hjálpaði til „Aðsóknin hefur farið fram úr björtustu vonum. Við búumst við enn fleiri gestum næsta sumar. Ef áætlanir okkar ganga eftir gætu gestirnir orðið 25 þúsund á næsta ári. Það var mikið fjallað um ísgöng- in í erlendum fjölmiðlum áður en þau voru opnuð. Það hjálpaði mikið til, enda tekur að jafnaði 2-3 ár að koma nýrri afþreyingu á koppinn. Við höfum verið afar heppin með veður. Sumarið var kalt og þurrt og lítil bráðnun í jöklinum. Þetta er fyrsta árið í mörg ár sem Langjökull stækkar. Fyrir vikið eru göngin að lengjast og það eru hvorki sprungur né svelgir að opnast að neinu ráði. Við erum líka heppin að því leyti að inni í ísgöngunum er náttúruleg sprunga. Hún er það magnaðasta þar inni,“ segir Sigurður. Hann segir gesti í göngunum einkum skiptast í fjóra hópa. Í fyrsta lagi fólk sem kemur sér að þjónustuhúsi fyrirtækisins við jökul- rönd og fer þaðan í ferð með 8 hjóla trukkum félagsins. Fólkinu er svo ekið upp jökulinn að ísgöngunum og tekur aksturinn að jafnaði 30 til 40 mínútur. Á áfangastað bíða leið- sögumenn sem sýna fólkinu göngin í 10 til 15 manna hópum. Slík ferð kostar 17.900 krónur á mann. Hún tekur að jafnaði um tvo og hálfan tíma. Leiðsögnin um göngin tekur um klukkutíma. Frá opnun hefur þessi ferð verið sú vinsælasta. Í öðru lagi kaupa gestir sér dags- ferð frá Reykjavík. Eru ísgöngin þá einn af áfangastöðum ferðarinnar en einnig er komið við hjá Hraun- fossum, Deildartunguhver og á fleiri stöðum. Bæði Reykjavik Excursions og Grayline bjóða upp á slíkar ferðir en verðið er 29.900 krónur á mann. Sigurður spáir því að þessar ferðir verði vinsælli í vetur, enda veigri ferðamenn sér oft við að keyra á bílaleigubílum um Ísland á veturna. Allt að 160 þúsund á mann Í þriðja lagi er boðið upp á lúxus- ferðir með þyrlum frá Reykjavík. Slíkar ferðir geta kostað allt að 159.900 þúsund á mann. Í fjórða lagi koma gestir að munna ganganna með öflugum jeppum en mörg jeppafyrirtæki bjóða upp á slíkar ferðir fyrir sína viðskiptavini. „Þá erum við reglulega með stóra sérhópa og fyrirtækjahópa þar sem Mikil aðsókn í nýju ísgöngin  Þegar hafa um 15 þúsund manns skoðað nýju ísgöngin í Langjökli  Markmiðinu fyrir árið náð  Leiðsögumönnum verður fjölgað vegna mikillar aðsóknar  Spáð er 25 þúsund gestum næsta ár Ljósmynd/Into the glacier/Birt með leyfi Sprungan mynduð Ísgöngin ná um 200 metra inn í jökulinn. Um 35 metra íslag er fyrir ofan göngin þar sem þau eru dýpst undir yfirborði jökulsins og undir þeim eru 200 metrar af ís. Jökullinn verður mest 680 metra þykkur. Ljósmynd/Into the glacier/Birt með leyfi Íslög inni í jöklinum Gönguleiðin í ísgöngunum er um 600 metrar og er gengið í hring. Nokkrir hellar hafa verið grafnir út í göngunum. Ljósmynd/Into the glacier/Birt með leyfi Jöklatrukkur Kostnaðurinn við að grafa göngin, kaupa tæki og skipuleggja reksturinn var um 360 milljónir króna. Ending ganganna er áætluð 15 ár. boðið er upp á léttar veitingar, fyrir- lestra og skemmtiatriði. Tilefnin eru mörg en fyrsta brúðkaupið er fyrir- hugað seint í haust.“ Sigurður segir hafa verið stíganda í heimsóknum hópa sem þiggja veit- ingar og kynningu á Húsafelli. Ís- göngin muni því skapa afleidd störf á Húsafelli og víðar. Starfsmenn á skrifstofu félagsins í Reykjavík eru fimm. Leiðsögumenn eru um 30 og eru 6 til 12 hverju sinni á vakt. Sumarumferðin er að baki og eru nú að jafnaði fjórir til sex starfs- menn á vakt. Farnar eru þrjár ferðir á dag frá jökulrönd, klukkan ellefu, eitt og hálffjögur. Tveir átta hjóla 36 farþega trukkar flytja gesti að göng- unum og fara því að hámarki 72 far- þegar í hverri ferð, eða í mesta lagi 216 á dag. Hafa mest 300 manns skoðað göngin á einum degi í sumar. Sigurður segir til skoðunar að fjölga trukkunum um einn til að anna frekari eftirspurn. Trukkarnir voru áður eldflaugabílar hjá NATÓ og hefur þeim verið breytt svo þeir henti fyrir akstur á jökli. Fjárfestingasjóðurinn Iceland tourism fund (ITF) fjármagnaði verkefnið að mestu og er stærsti hluthafi ísganganna. ITF er í eigu nokkurra íslenskra líf- eryrissjóða, Icelandair Group og Landsbankans. Verkefnið var undirbúið með rannsóknum á árunum 2010 til 2014. Sjóðurinn keypti svo hug- myndina í lok árs 2013 og hóf- ust boranir fyrir göngin í mars í fyrra. Erfiðlega gekk að bora í fyrstu en verkið sóttist betur eftir að ítalskir borar, sem eru hannaðir til að brjóta niður berg, meðal annars í Ölpunum, voru teknir í gagnið. Sigurður Skarphéðinsson segir það von félagsins að ís- göngin muni eiga þátt í því að ferðamenn muni í auknum mæli skoða Vesturland. Borar sem brjóta berg GÖNGIN BORUÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.