Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.09.2015, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.09.2015, Blaðsíða 20
Evrópumeistaramótið í körfubolta, Euro- Basket, verður haldið í fimm borgum í fjórum löndum að þessu sinni, dagana 5. til 20. september. Borgirnar eru Lille og Montpellier í Frakklandi, Berlín í Þýska- landi, Ríga í Lettlandi og Zagreb í Króatíu. Mótið átti upphaflega að fara fram í Úkraínu en horfið var frá þeim áformum í fyrra vegna spennustigsins í landinu. Leikið er í fjórum sex liða riðl- um og er Ísland í riðli með Þjóð- verjum, Serbum, Spánverjum, Tyrkjum og Ítölum. Sextán lið komast áfram úr riðlunum, það er fjögur efstu úr hverj- um riðli, og upp frá því verður mótið með útslátt- arfyrirkomulagi. Allir leik- irnir á því stigi mótsins fara fram í Frakklandi. Úrslitaleikurinn fer fram í fjölnotahöllinni Stade Pierre-Mauroy í Lille sem tekur hvorki fleiri né færri en 27 þúsund manns í sæti. 20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.9. 2015 Ferðalög og flakk E ftirspurn eftir miðum á útileiki íslenska karlalandsliðsins í knatt- spyrnu hefur aukist jafnt og þétt á síðustu misserum. Má þar nefna leiki í Króatíu, Tékklandi og nú síðast Hollandi en óvígur her áhangenda fylgdi liðinu í alla þessa leiki. Um 3.000 manns voru á leiknum í Amsterdam á fimmtudaginn. Tvennt skýrir þessa þróun öðru fremur. Í fyrsta lagi hefur liðinu aldrei gengið betur í undankeppnum fyrir stórmót en undanfarin ár, það er fyrir HM í Brasilíu 2014 og EM í Frakk- landi 2016. Liðið missti naumlega af farseðlinum til Brasilíu en á mjög góða möguleika á að verða meðal þátttökuþjóða í Frakklandi næsta sumar eftir sigurinn sögulega gegn Hollendingum. Í öðru lagi hefur íslenska karlalands- liðið í knattspyrnu líklega aldrei leikið betri knattspyrnu. Menn sækjast með öðrum orðum eftir að sjá það spreyta sig á erlendri grundu en ekki bara stjörnum prýdd lið andstæðinganna. Öðruvísi mér áður brá. Nái knattspyrnulandsliðið því langþráða takmarki að komast í fyrsta skipti á EM má fastlega gera ráð fyrir að þúsundir stuðningsmanna muni vilja fylgja liðinu til Frakklands. Mjög líklega komast færri að en vilja og öruggara að hafa hraðar hendur við að tryggja sér miða. Blað verður brotið í sögu körfuboltans á Íslandi í dag, laugardag, þegar karlalandsliðið leikur sinn fyrsta leik í lokakeppni EM gegn heimamönnum í Berlín. Allt að 1.000 Íslendingar verða vitni að þeim viðburði með berum augum. Sama lögmál gildir um körfuna og knattspyrnuna, áhugi lands- manna hefur snaraukist með betra gengi. Það er þó á forsvarsmönnum körfuknattleikssambandsins og leikmönnum liðsins að skilja að þessi mikli áhugi sé jafnvel vonum framar. Þess má geta að flestir áhangendurnir munu styðja liðið fram á fimmtudag er riðlakeppninni lýkur. Ekki er vitað hversu margir hyggjast fylgja því áfram komist það upp úr riðlinum. Mögulega eiga borgirnar, Amsterdam og Berlín, einhvern þátt í ákvörðun fólks um að skella sér utan. Og þó. Ekkert jafnast nefnilega á við að styðja sína menn – gegnum eld og brennistein. KNATTTÚRISMA VEX FISKUR UM HRYGG Eftir bolta kemur túristi UM 4.000 ÍSLENDINGAR HÉLDU UTAN Í VIKUNNI TIL AÐ STYÐJA VIÐ BAKIÐ Á KARLALANDSLIÐINU Í KNATTSPYRNU Í AMSTERDAM OG KARLALANDSLIÐINU Í KÖRFUBOLTA Í BERLÍN. ÓHÆTT ER AÐ FULLYRÐA AÐ BOLTAÍÞRÓTTIR STJÓRNI FERÐALÖGUM LANDANS Í AUKNUM MÆLI SEM ER BEIN AFLEIÐING AF BETRI ÁRANGRI LANDSLIÐANNA. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Stemningin var einstök þar sem Tólf- an, stuðningsklúbbur knattspyrnu- landsliðsins, stóð fyrir söng og gleði alla leið frá Keflavík til Prag í fyrra. Fimmtánda Evrópumeistaramótið í knatt- spyrnu fer fram í Frakklandi dagana 10. júní til 10. júlí 2016. Umfang mótsins hef- ur ekki í annan tíma verið meira en þátt- tökuþjóðirnar verða nú í fyrsta skipti 24. Voru 16 á síðasta móti sem Pólland og Úkraína héldu í sameiningu. Svo við öndum nú í bréfpoka liggur ekki fyrir hvort Ísland verður í fyrsta sinn meðal þátttakenda en líkurnar eru vissulega góðar. Riðlarnir eru sex og verð- ur leikið á tíu stöðum, í Bordeaux, Lens, Lille, Lyon, Marseille, Nice, Paris, Sa- int-Denis, St-Etienne og Toulouse. Úrslitaleik- urinn fer fram á þjóðarleikvanginum í Saint-Denis (sjá mynd). Undankeppninni lýkur í nóvember og dregið verður í riðla í París 12. desember. Eftir það liggur fyrir hvaða þjóðir leiða saman hesta sína og í hvaða borgum og slagurinn um að- göngumiðana hefst með látum. Þá er betra að draga ekki ýsur! UMFANGSMESTA EVRÓPUMÓTIÐ FJÖGUR LÖND KOMA Í STAÐ ÚKRAÍNU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.