Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.09.2015, Blaðsíða 4
Hvernig tilfinning er það að ná að skora meira
en 150 mörk í efstu deild í knattspyrnu hér á landi?
Mjög góð tilfinning, það er alltaf gaman þegar vel gengur og gaman
að fara yfir svona tölumúra, þótt ég hafi aldrei stefnt sérstaklega að
því. Það er búið að ganga mjög vel síðustu fjögur árin og mörkin
verið að tikka inn.
Hvernig er stemningin fyrir fyrsta leikinn
í undankeppni EM 2017?
Afar góð og gaman að hitta stelpurnar aftur eftir langt hlé þar sem
það er langt síðan við spiluðum saman síðast. Við erum kátar og
glaðar og erum að ná upp góðu tempói.
Hverju ertu stoltust af á þínum ferli?
Að verða Íslandsmeistari með Stjörnunni. Ég ólst upp í íþrótta-
félaginu og á þeim tíma átti Garðabær enga titla. Ég er stolt af því
að hafa tekið þátt í að byggja liðið upp og gera það að því sem það
er orðið í dag.
Hvað kemur knattspyrnufólki áfram? Hvað
þarf að gera til að ná langt?
Það er mikilvægt fyrir þá sem stefna langt að hafa markmið sem og
áætlun um hvernig eigi að fara að því að ná þeim markmiðum. Fyrir
unga krakka sem langar að ná árangri er mikilvægt að mæta á allar
æfingar með það í huga að mæta ekki bara til að mæta heldur til að
leggja sig allan fram og hafa gaman af því sem er verið að gera.
Finnst þér árangur íslenska kvennalandsliðsins á
stórmótum hafa gleymst í umfjöllun um þátttöku
íslenska karlaknattspyrnuliðsins á EM á næsta ári?
Nei, það finnst mér ekki. Við fengum okkar athygli á sínum tíma
þegar við komumst á stórmót í fyrsta skipti og strákarnir hafa náð
mjög merkum áfanga núna og auðvitað eigum við, öll þjóðin, að
samgleðjast þeim og vera stolt. En auðvitað þarf að passa hvernig
hlutirnir eru orðaðir í umræðunni, þetta snýst kannski meira um
það en að okkar afrek hafi gleymst.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
HARPA ÞORSTEINSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.9. 2015
Í fókus
Mér finnst hann stórkostlega fallegur. Það er
erfitt að syngja fyrir marga og það mætti
lækka hann um hálfan til einn tón. Ég myndi
ekki vilja skipta honum út.
Anna Júlíana Sveinsdóttir
Ég hef ekkert álit á þessu, maður heyrir hann
örsjaldan. Mætti alveg skipta honum út.
Jens Baldursson
Hann er svolítið gamaldags. Við getum ekki
verið þjóðrembingsplebbar lengur.
Stefanía Pálsdóttir
Mér finnst hann kúl.
Poddi Poddsen
SPURNING DAGSINS HVAÐ FINNST ÞÉR UM ÍSLENSKA ÞJÓÐSÖNGINN?
Shirokuma Sushi er nýjasta
viðbótin við matarvagnaflot-
ann í Reykjavíkurborg. Eig-
endur þessa fyrsta sushi-
matarvagns hér á landi
eru hæstánægðir með við-
tökurnar. Íslendingar virðast
kunna vel að meta japanska
matargerð. Matur 26
Í BLAÐINU
Það er áhugavert og
skemmtilegt að kynna sér
nýja og spennandi
hönnun. Í umfjöllun er lit-
ið yfir nokkur áhugaverð
verkefni hvaðanæva úr
heiminum sem eru vænt-
anleg á markað með vetr-
inum. Hönnun 24
Í frumskógi matarbloggsins hefur tímaritið Saveur
tekið saman og verðlaunað bestu síður hvers árs.
Verðlaunaflokkarnir eru margir og síðurnar ólíkar og
skemmtilegar. Matur 28
Atli Ingólfsson frumsýnir
óperuna Njáls sögu í Cinno-
ber-leikhúsinu í Gautaborg.
Um er að ræða þriðju óp-
eruna sem Cinnober frum-
sýnir eftir Atla á sl. áratug, en
leikstjóri allra þriggja sýninga
er Svante Aulis Löwenborg.
Menning 49
Harpa Þorsteinsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu og framherji Stjörnunnar,
skoraði sitt 150. mark á ferlinum í lokaumferð Pepsi-deildar kvenna um síð-
ustu helgi. Harpa er fimmta íslenska knattspyrnukonan til að ná þeim árangri í
efstu deild hér á landi. Á þriðjudaginn mætir Ísland Hvíta-Rússlandi í fyrsta
leik A-landsliðs kvenna í undankeppni EM 2017.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Golli
Góð
stemning
í liðinu
Í viðtali við Heimi Hallgrímsson, landsliðsþjálfara karla í
knattspyrnu, sem birtist í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um
síðustu helgi, var rangt farið með nafn föður Heimis. Hann hét
Hallgrímur Þórðarson.
Leiðrétt