Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.09.2015, Blaðsíða 14
Foam flex gagnast öll-
um, bæði íþróttafólki í
stífri þjálfun, fólki með
liðavandamál og öðr-
um sem vilja losa um
spennu í líkamanum.
Getty Images/iStockphoto
B
andvefsrúllun skaut upp á Íslandi fyrir nokkrum ár-
um og er orðið mjög vinsælt víða, bæði hjá íþrótta-
mönnum og „venjulegu“ fólki. Lína Guðnadóttir,
einkaþjálfari og foam flex-kennari hjá Hress í Hafn-
arfirði, segir að allir hafi gott af því að fara í foam flex-tíma.
„Við erum að losa um ákveðnar stöðvar í líkamanum með
boltum og rúllum svo yfir með bandvefsrúllu. Það eru
ákveðnir punktar sem safna streitu og stífleika. Við pressum
á þessa punkta og losum spennu og boltarnir hjálpa okkur að
komast dýpra,“ segir Lína. Fyrst eru boltarnir notaðir og
síðan rúllurnar. „Þá er rúllað yfir bandvefinn. Bandvefurinn
er utan um vöðva og líffæri og þar geta komið hnútar og
hann getur þornað. Við nuddum hnútana og vökvum hann
með því að rúlla. Þá minnkar álagið á stoðkerfinu,“ segir hún.
að létta á vöðvunum og minnkar líkur á meiðslum, því það
eykur líkur á meiðslum að vera með stífa vöðva,“ segir Lína.
„Þetta er líka mjög gott fyrir fólk með liðavandamál. Ég hef
fengið fólk til mín með tárin í augunum sem segist hafa öðl-
ast nýtt líf eftir að hafa stundað foam flex,“ segir hún.
Vont en það venst
Lína viðurkennir að þetta sé ekki endilega mjög þægilegt.
„Punktarnir eru aumir og virka eins og marblettir og þetta
er vont en það venst,“ segir hún og hlær. „En við erum þess
vegna með þrjár tegundir af bandvefsrúllum; mjúkar, milli-
stífar og stífar, þær mýkri eru fyrir byrjendur. Það er bara
að koma sér á rúlluna og byrja, og hitinn hjálpar til að
mýkja mann upp.“
Styrkir og eykur liðleika
Foam flex-tímar eru í heitum sal, eða í 37°C hita. „Hitinn
mýkir mann upp. Foam flex snýst um álagspunktalosun,
bandvefslosun og átaksteygjur,“ segir Lína. „Þetta styrkir
innan frá og eykur liðleika. Ef við erum í ákafri þjálfun, eins
og lyftingum eða hlaupum, er þetta gott því að stuttir og stíf-
ir vöðvar búa yfir minni krafti. Þetta styrkir stoðkerfið og so-
gæðakerfið og eykur blóðflæðið til vöðvanna,“ segir hún.
Fyrir afreksmenn og okkur hin
Lína segir að foam flex geti gagnast öllum. „Þetta er ekki
bara fyrir fólk í stífri líkamsrækt, þetta er fyrir alla, eins
konar sjálfsnuddandi meðferð. Það er rosalega mikil vakning
í þessu og fótboltafélögin nota þetta mikið. Það skilar árangri
FOAM FLEX FYRIR ALLA
Sjálfsnuddandi meðferð
FOAM FLEX, EÐA BANDVEFSRÚLLUN, NÝTUR VAXANDI VINSÆLDA HÉRLENDIS OG ER KENNT VÍÐA. NOTAÐIR ERU
BOLTAR OG RÚLLUR TIL AÐ LOSA UM HNÚTA Í BANDVEF, STYRKJA VÖÐVA OG AUKA LIÐLEIKA.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Heilsa og
hreyfing *Nú þegar haustið er gengið í garð fara kvef-pestir og flensur á stjá. Inflúensan nær há-marki frá janúar og fram í mars og er gottráð að láta bólusetja sig. Eldra fólki og veikuer sérstaklega ráðlagt að fá sér flensu-sprautu. Haltu fyrir vitin með bréfklúti ef þúhnerrar eða hóstar. Þvoðu hendur oft. Vertu
heima ef þú ert veikur því þú gerir vinnu-
félögum engan greiða að mæta og smita þá.
Ráð til að forðast flensu
Ef þú þjáist af stressi og streitu er mamma þín
kannski ekki fyrsta manneskjan sem þér dett-
ur í hug að hringja í, en kannski ættirðu að
gera það. Gerð var rannsókn í Háskólanum í
Madison, Wisconsin, sem sýndi fram á að það
að tala við mömmu sína minnkar stress. Gerð
var könnun þar sem þrír hópar ungra stúlkna
voru bornir saman að loknu erfiðu og stress-
andi prófi. Í ljós kom að þær sem höfðu talað
við móður sína í 15 mínútur að prófinu loknu
mældust með minni stresshormón en hinar
sem ekki töluðu við mömmu sína. Getty Images
Hringdu í mömmu
Það er ekki flókið að reima á sig hlaupas-
kóna og skokka einn hring, eða hvað?
Hvað þarf til að vera góður hlaupari? Í
rannsókn í Háskólanum í Ottawa í Kanada
komust menn að því að lykillinn að því að
ná árangri í hlaupi er að huga að hrað-
anum. Markmið þitt ætti að vera að finna
þann hlaupahraða sem líkaminn ræður við
svo þú brennir ekki allri orkunni strax í
upphafi hlaups. Síðar þegar líkaminn er
kominn í betra hlaupaform er hægt að
auka hraðann jafnt og þétt. Morgunblaðið/Steinunn Ásmunds
Hlauptu hægar