Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.09.2015, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.9. 2015
Heilsa og hreyfing
T
il að finna innri ró ákvað
Telma Matthíasdóttir
þjálfari og eigandi að
fitubrennsla.is að byrja
að æfa þríþraut. Hún féll fyrir
þríþrautinni og ákvað fljótlega að
keppa í heilum járnmanni. Flestir
myndu sennilega leita að ró ann-
ars staðar en þetta er hennar leið.
Margar hindranir hafa verið á
leiðinni en ekkert virðist geta
stoppað hana og hlakkar hún mik-
ið til keppninnar sem er í Barce-
lona eftir tvær vikur. Æfingar
hófust skipulega fyrir ári síðan til
að undirbúa sig fyrir átökin, en í
heilum járnmanni er synt í sjó 3,8
km, hjólað 180 km og hlaupið
heilt maraþon og þetta þarf að
klára á undir 17 klukkutímum til
að fá titilinn JÁRNMAÐUR.
Var orðin tæp hundrað kíló
Telma byrjaði snemma að stunda
íþróttir en hún var mikið í skíða-
göngu og fótbolta á sínum yngri
árum á Ólafsfirði þar sem hún
ólst upp. Fyrir tvítugt hætti hún í
íþróttum og á nokkrum árum
bætti hún á sig 30 kílóum. Þegar
hún var ískyggilega nálægt hundr-
að kílóum datt auglýsing inn um
lúguna. „Þetta var árið 1997 og ég
fékk blað inn um lúguna að verið
væri að opna nýja líkamsrækt-
arstöð í Dalshrauni í Hafnarfirði.
Ég segi við Ósk systur, keyrum
þarna framhjá, þetta er rétt hjá
KFC, við getum keypt okkur eitt-
hvað í leiðinni,“ segir hún og
skellihlær. „Við rötuðum varla, ný-
fluttar frá Ólafsfirði. Við vorum á
þessum tíma að vinna í fiskverkun
hjá pabba og það fyrsta sem mað-
urinn í afgreiðslunni segir við
okkur, ussss... fiskifýlan af ykkur.
Þetta var enginn annar en Jón
Þórðarson, en hann er annar eig-
anda Hress ásamt Lindu konu
sinni. Svona voru móttökurnar! Og
að okkar mati frekar heimilislegar
og skemmtilegar.“
Það varð ekki aftur snúið hjá
Telmu eftir þessa heimsókn.
„Þetta var upphafið. Ég keypti
mér þriggja mánaða kort og það
var fyrsta og eina kortið sem ég
keypti mér því eftir þrjá mánuði
var ég byrjuð að vinna þarna.
Fyrst í barnagæslunni og svo í af-
greiðslunni. Ég losaði mig við öll
aukakílóin og ekki leið á löngu
þar til ég fór á þjálfaranámskeið,
bæði hér heima og erlendis,“ segir
Telma sem hefur starfað sem
þjálfari í Hress síðan.
Æfir í ár fyrir járnmanninn
Telma hefur helgað sig líkams-
rækt mjög lengi en fór að þyrsta
í eitthvað nýtt. „Mig langaði að
breyta aðeins til fyrir einu og
hálfu ári síðan og prófa eitthvað
nýtt. Ég synti mikið þegar ég var
yngri og mig hafði alltaf dreymt
um að æfa sund en á Ólafsfirði
var það ekki í boði. Ég stökk
beint út í djúpu laugina og mætti
á sundæfingu hjá 3SH, þríþraut-
arfélagi Hafnarfjarðar. Nokkrum
vikum seinna var skipulögð æfing-
arhelgi fyrir þríþraut,“ segir
Telma. Hún var drifin með í búð-
irnar og heillaðist. Áður en hún
vissi af var hún búin að kaupa sér
hjól og tók þátt í fjölda móta um
sumarið. Hún keppti fljótlega í
hálfum járnmanni sem var erfitt
en gefandi. „Eftir gott sumar í
þríþraut ákvað ég að skrá mig í
heilan járnmann. Í dag hugsa ég
bara, hvaða flugu fékk ég í haus-
inn!“ segir hún og hlær.
Telma segir að allir geti æft
þríþraut. „Það er nóg að eiga
sundbol, hjól af hvaða tegund sem
er og strigaskó. Ef þú telur þig
ekki í góðu formi þá skal ég lofa
þér því að þríþraut kemur þér í
gott form,“ segir Telma og veit
hvað hún syngur.
Er með þrjá sjúkdóma
Telma er með meltingarsjúkdóm-
inn sáraristilbólgu en það er lang-
vinnur bólgusjúkdómur í þörmum.
Fyrir þremur árum greindist hún
svo með blóðflögusjúkdóm og í
framhaldi af því var ákveðið að
fjarlægja úr henni miltað í von
um að flögurnar myndu fjölga sér,
en svo varð ekki og því var hún
sett á steralyf til að ná flögunum
upp í lífsmörk. „Þetta kemur í
köstum. Maður veikist og er sett-
ur á steralyf í nokkra mánuði til
að ná bólgunum niður,“ segir hún.
Telma segist nú orðið þekkja vel
einkennin og grípur strax inn í ef
hún finnur fyrir einhverju. Í byrj-
un hafi hún oft verið mjög veik og
þurft að leggjast inn á spítala.
Telma segir að hún hafi þurft að
gefa sér tíma til að kynnast sjúk-
dómunum sínum, huga betur að
mataræðinu og svefninum. „Í yfir
fjögur ár svaf ég í mesta lagi 4-5
klukkutíma á nóttu. Það var bara
KEPPIR Í JÁRNMANNI
Að sigra
sjálfa sig
TELMA MATTHÍASDÓTTIR ER HEILLUÐ AF ÞRÍÞRAUT OG ER
Á LEIÐINNI Í HEILAN JÁRNMANN. HÚN LÆTUR EKKI MÓT-
LÆTI EINS OG VEIKINDI AFTRA SÉR FRÁ AÐ NÁ SÍNUM
MARKMIÐUM Í LÍFINU. HÚN HEFUR UNDIRBÚIÐ SIG Í HEILT
ÁR OG HEFUR FULLA TRÚ Á ÞVÍ AÐ KLÁRA ÞETTA.
Texti og mynd: Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Að mörgu er að huga fyrir keppnina. Hjólið þarf að vera klárt, dekkin pumpuð og ekki gleyma
að taka með aukaslöngu ef dekk skyldi springa. Ekki gleyma sundgleraugum og sleipiefni til að
komast í og úr blautbúningi. Skóreimar þurfa að vera úr teygjanlegu efni til að auðvelda að
fara í og úr skóm og passa að reima ekki of fast svo ekki komi mar á ristina.
Nokkur ráð fyrir þríþrautarkeppnina