Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.09.2015, Page 18
Ferðalög
og flakk
Úr sýningu á
Músagildrunni. *Samkvæmt heimsmetabók Guinness hefur enginn skáldsagna-höfundur selt fleiri bækur en Agatha Christie, ríflega tvo millj-arða eintaka. Eins hefur enginn höfundur verið þýddur á einsmörg tungumál eða 103. Christie er þekktust fyrir glæpasögursínar en hún samdi líka nokkur leikrit, þeirra á meðal Músa-gildruna sem gengið hefur samfellt í Lundúnum allt frá frum-sýningu árið 1952. Sýningarnar eru orðnar 25 þúsund talsins.
Eftir Christie liggja líka fjórtán smásagnasöfn og sex ástarsögur
sem hún skrifaði undir dulnefninu Mary Westmacott.
Hefur selt tvo milljarða eintaka
A
gatha Christie fæddist í
Torquay í Devon-héraði
á suðurströnd Englands
15. september 1890 og
sleit þar barnsskónum. Þar er vita-
skuld eftir mörgu að slægjast fyrir
aðdáendur hennar, svo sem æsku-
heimili höfundarins og spítalanum
sem hún starfaði á í fyrri heims-
styrjöldinni. Þar er líka Agöthu
Christie-mílan, með fjölmörgum
vörðum á leið hennar, og Grand
Hotel, þar sem glæpadrottningin
varði brúðkaupsnóttinni með fyrri
eiginmanni sínum, Archie Christie,
jólin 1914. Að sjálfsögðu er hægt
að gista í Agöthu Christie-svítunni.
Þá ber að nefna fjölmörg söfn sem
halda nafni Christie hátt á lofti.
Í Devon er líka upplagt að heim-
sækja aðra staði, eins og Brixham,
Dartmoor og Burgh-eyju, sem allir
koma við sögu í bókum Christie.
Mikil hátíð hefur staðið yfir í
Devon alla vikuna í tilefni af 125
ára fæðingarafmæli Christie og
nær hún hámarki í kvöld, laug-
ardagskvöld, með dansleik á sum-
ardvalarstað hennar, Greenway.
Hvernig væri að mæta þar í gervi
Miss Marple eða Hercules Poirots?
Frægt var þegar Christie hvarf í
ellefu daga eftir að upp úr fyrra
hjónabandi hennar slitnaði árið
1926. Hún fannst á endanum á Old
Swan-hótelinu í Harrogate. Þar er
reglulega boðið upp á uppákomur
með morðgátuþema.
Harrogate hefur lítið breyst frá
þessum tíma og sú staðreynd mun
án efa heilla fylgjendur Christie.
Svo er bærinn auðvitað kunn
heilsulind.
Ferðaðist víða sjálf
Christie reit 66 glæpasögur og
margar þeirra gerast í útlöndum
enda ferðaðist hún sjálf mjög mikið
um dagana, aðallega með seinni
eiginmanni sínum, fornleifafræð-
ingnum Max Mallowan. Christie
hafði sérstakt dálæti á Mið-
Austurlöndum, ekki síst Sýrlandi
og Írak. Enginn skal þó hvattur til
að ferðast þangað á þessum síðustu
og verstu tímum, hvorki Agöthu
Christie né öðrum til dýrðar. En
Christie hélt einnig upp á Egypta-
land og Tyrkland, svo dæmi sé
tekið. Sumir segja að finna megi
fyrir Christie við Pera-höllina
frægu í Istanbúl.
Ekki má heldur gleyma Íran en
þangað fóru Christie og Mallowan í
brúðkaupsferð árið 1931. Þangað
er loksins óhætt að fara (utan
svæða sem liggja að landamærum
Íraks, Afganistans og Pakistans).
Barbados tengist Christie líka
sterkum böndum, enda hvatinn að
þeirri frægu bók A Caribbean
Mystery, og svo auðvitað Nílarfljót,
sem er sögusvið einnar alvinsæl-
ustu sögu Christie, Death on the
Nile. Þá bók skrifaði hún að hluta í
Aswan í Egyptalandi.
AFP
FERÐAST UM SLÓÐIR GLÆPASAGNA
Í fótspor
Agöthu
125 ÁR VORU Í VIKUNNI LIÐIN FRÁ FÆÐINGU BRESKU
KRIMMADROTTNINGARINNAR AGÖTHU CHRISTIE. AF ÞVÍ
TILEFNI HAFA AÐDÁENDUR VERIÐ HVATTIR TIL AÐ SKOÐA
STAÐI SEM TENGJAST HENNI ÓROFA BÖNDUM.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Nílarfljót í
kvöldroðanum.
Höfnin í Torquay, heimabæ
Christie í Suður-Englandi.
Glæpasagnahöfundurinn vinsæli
Agatha Christie.