Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.09.2015, Blaðsíða 26
Matur
og drykkir
AFP
AFP
*Beyglur njóta sívaxandi vinsælda í Frakklandien landsmenn líta á þær sem hollari skyndi-bitakost en pítsu og hamborgara. Stór hlutiviðskiptavina er konur. Alls seldust 100 millj-ónir beyglna árið 2013 en búist er við aðsambærileg tala fyrir árið í ár verði 250 millj-ónir. Fjórar beyglukeðjur eru á franska mark-
aðnum þar sem Bagelstein er fremst í flokki
með 60 staði víðsvegar um landið.
Beyglur vinsælar í Frakklandi
S
ushivagninn Shirokuma Sushi hefur vakið athygli
svangra miðbæjargesta en hann var opnaður í júlílok.
Arnþór Stefánsson matreiðslumaður er einn þriggja
eigenda. „Mig og Huldu Björgu Jónsdóttur sambýlis-
konu mína, sem er menntuð sem lögfræðingur, hefur lengi
dreymt um að opna einhvers konar sushi-stað hérlendis. Ég
er sjálfur menntaður matreiðslumaður og hef unnið við sushi-
gerð í sex ár og til dæmis séð um að reka Suzushii-staðinn í
Kringlunni. Við sáum svo loks færi á því þegar Reykjavík-
urborg auglýsti laus stæði í götu- og torgsölu og stukkum á
tækifærið. Við fengum síðan Lúðvík Þór Leósson, sem vann
með mér á Suzushii og rak svo þann stað eftir að ég hætti
þar, til að koma með okkur í þetta, enda gætum við þetta
ekki án hans. Við erum báðir mjög reyndir í sushi-geiranum
og finnst gaman að geta boðið fólki upp á ferskt og gott sushi
sem er framreitt á réttan hátt.“
Ferðast jafnvel út á land
Það er eitthvað heillandi við matarvagna og þeir hafa verið í
uppsveiflu, af hverju ákváðuð þið að prófa að vera með vagn
fremur en fastan stað?
„Okkur fannst svo heillandi hugmynd að geta boðið fólki
upp á ferskt handgert sushi á viðráðanlegu verði og jafnvel
ferðast út á land þar sem takmarkað eða ekkert framboð er.
Við þurfum til dæmis bara að greiða eina greiðslu til Reykja-
víkurborgar fyrir allt árið, bæði fyrir leigu og rafmagn. Sú
upphæð er langt undir þeim kostnaði sem annars myndi fara í
það að leigja húsnæði og því höfum við tök á því að leyfa við-
skiptavinum okkar að njóta góðs af því með því að bjóða þeim
upp á lágt verð.“
Hvernig viðtökur hafið þið fengið?
„Alveg hreint frábærar viðtökur og við erum alveg í skýj-
unum. Það koma ferðamenn jafnt sem Íslendingar til okkar.
Þá erum við meira að segja búin að eignast nokkra fasta-
kúnna.“
Vagninn stendur jafnan í Mæðragarðinum en hefur hann
farið víða?
„Já, við vorum á Matarhátíðinni við Hörpu í lok ágúst og
svo höfum við verið leigð í einkasamkvæmi hjá nýju sjáv-
arútvegsfyrirtæki sem var verið að opna þar sem við bjuggum
til sushi í vagninum fyrir tvö hundruð manns. Síðan skelltum
við okkur á Októberfest með vagninn um síðustu helgi þar
sem við vorum frekar spennt að sjá hvernig fólk tæki í það að
fá sér sushi á „djamminu“. Fólk tók heldur betur vel í það þar
sem það seldist hreinlega allt upp hjá okkur á föstudagskvöld-
inu og við þurftum því miður að yfirgefa partíið fyrr vegna
þess. Við mættum því vel birg á laugardagskvöldinu en vorum
samt ekkert svo langt frá því að selja allt upp líka þá, þegar
síðustu og svengstu gestir hátíðarinnar fóru heim.“
Íslendingar elska sushi, hvað er það sem er svona spenn-
andi við sushi?
„Ef sushi er framreitt á réttan hátt er það algjört sælgæti
sem getur jafnvel bráðnað í munninum. Mikilvægasti hlut-
urinn er þó án efa grjónin, þau verða að vera rétt gerð.“
Hvað er vinsælast hjá ykkur?
„Við erum með fjögur tilboð sem kosta öll 1.299 kr. hjá
okkur og fyrir það færðu 10 bita og miso-súpu. Tilboðin eru
blanda af því besta; vegan-bakki, bakki með öllu elduðu og
bakki með eingöngu laxi. Bitarnir geta svo jafnvel breyst dag
frá degi þar sem við sækjumst eftir því að fá alltaf ferskasta
hráefnið sem er í boði hverju sinni. Það kemur svo kannski
ekki á óvart en „blandan af því besta“ er langvinsælasti bakk-
inn okkar.“
FYRSTI SUSHI-VAGNINN Í MIÐBÆNUM
Borða líka sushi
á djamminu
MATARVÖGNUM FJÖLGAR Í BORGINNI EN EIN NÝJASTA VIÐBÓTIN Í ÞESSARI
SKEMMTILEGU FLÓRU ER VAGN SHIROKUMA SUSHI SEM STENDUR JAFNAN Í
MÆÐRAGARÐINUM VIÐ LÆKJARGÖTU.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Arnþór Stefánsson og Lúðvík Þór Leósson segja hægt að bjóða viðskiptavinum
lægra verð á sushi sem selt er í matarvagni en á veitingastað.
Morgunblaðið/Eggert
Arnþór gefur hér eina upp-
skrift að bragðgóðum rétti
frá Shirokuma Sushi.
1 box af sveppum
1 msk. olía
2 msk. mirin (japanskt
hrísgrjónavín sem fæst í
matvöruverslunum)
1 msk. soja
2 avókadó lítil
salat
sesamfræ
steinselja
Skerið stilkana af sveppunum
og skerið þá síðan til helm-
inga. Setjið olíuna í pönnu og
hitið upp og steikið síðan
sveppina vel (eða þangað til
þeir verða gullinbrúnir). Bæt-
ið því næst mirin og soja út í
og sjóðið þar til fer að
þykkna. Setjið sveppina í skál
með gljáanum og látið til
hliðar til að kólna. Skerið
avókadóið í helminga og
skóflið úr með skeið. Leggið
síðan sveppina og avókadó á
kálblað, stráið sesamfræjum
og steinselju yfir, vefjið inn í
kálblaðið og rúllið síðan í
maki-rúllu.
Maki-rúlla með
sojagljáðum sveppum