Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.09.2015, Blaðsíða 28
Sú sem
toppar
allt
Að mati Saveur er
matarblogg Molly
Yeh besta blogg
ársins 2015. Hér er
á ferðinni ung
stelpa sem skrifar
um líf sitt og ferða-
lög, lífið á búgarði í
Bandaríkjunum og
matinn sem hún eldar
og borðar.
Virkilega skemmtileg
síða sem býður upp á margar
góðar uppskriftir þar sem bland-
að er saman asískri og amerískri mat-
argerð. Bloggið er persónulegt og það gerir
það að verkum að auðvelt er að gleyma sér á síðunni. Þeir sem vilja heimsækja verðlauna-
bloggið geta slegið inn slóðina www.mynameisyeh.com.
Frumleiki
í bjórblogginu
Saveur velur heldur óvenjulega síðu til verðlauna fyrir
bjórblogg. Síðan sem varð fyrir valinu heitir Pints and
Panels og setur allt efni sitt fram í formi teiknimynda-
sögu. Það er teiknarinn Em sem heldur utan um síðuna.
Nálgun hennar að viðfangsefninu er mjög skemmtileg og
frumleg. Flestir sjá kannski fyrir sér rómaðar myndir af bjór-
flösku eða bjór í glasi í fallegu umhverfi en á Pints and Panels
er því öllu sleppt. Umfjöllunin er einföld, góð og skemmtileg.
Hægt er að sjá síðuna á netfanginu www.pintsandpanels.com
og er vel þess virði að heimsækja.
Besta kokteilsíðan var að
þessu sinni Two For The
Bar en síðan er skemmti-
lega klassísk í útliti og býður
lesendum sínum upp á reglu-
lega drykki dagsins eða mix.
Síðan ætti að vera á lista allra
áhugamanna um gott áfengi og
áfenga drykki. Veistu hvernig á að
gera Piña Colada? Ef ekki þá hefur
síðan Two For The Bar svarið fyrir þig.
Hér eru myndir og umfjöllun öllu hefð-
bundnari en hjá vinningshafa bjórbloggsins en
engu að síður er síðan skemmtilega uppsett og full af fróðleik. Þeir sem vilja kynna sér síðuna sjálfir
geta sótt lénið www.twoforthebar.ca.
Klassískir
drykkir
í öllum
litum
Eftirréttir
og bakstur Elizabeth Minchilli hefur kannski eitt
besta starf í heiminum. Hún vinnur við
það að ferðast um og skrifa um mat og
heimili fólks. Hún sneri sér síðan að
netinu og hefur verið óstöðvandi í að
blogga um mat, menningu og ferða-
mannastaði síðan 2009.
Það er engin furða að síðan hennar
hafi orðið fyrir valinu hjá lesendum Sa-
veur enda býður hún upp á dagsferðir, mat-
arferðir, blogg, uppskriftir og setur inn
skemmtileg myndbönd á síðuna sína auk þess að
birta skemmtilegar myndir, sem kveikja í bragð-
laukunum. Þeir sem langar að kynnast blogginu
hennar Minchilli geta farið á slóðina
www.elizabethminchilliinrome-
.com
Fyrir bakstur og eftirrétti
fékk bloggarinn Yossy Arefi
fyrstu verðlaun tímaritsins
en hún kallar blogg sitt Apt.
2B – Baking co. og hefur net-
slóðina www.apt2bbak-
ingco.com. Lesendur síðunnar
ættu ekki að vera lengi að átta
sig á því af hverju hún hefur
fengið verðlaun fyrir bakstur og
eftirrétti en auðvelt er að gleyma sér
í uppskriftum og ekki síst við að dást að
myndum hennar af matnum.
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.9. 2015
Matur og
ferðalög
ERU MATREIÐSLUBÆKUR Á ÚTLEIÐ OG MATARBLOGGIN AÐ TAKA YFIR EÐA ÝTA NETSÍÐ-
URNAR UNDIR ENN FREKARI SÖLU Á MATREIÐSLUBÓKUM? FINNA MÁ ORÐIÐ NÆRRI ÞVÍ
HVAÐ SEM ER Á NETINU OG ER ALLS ENGINN SKORTUR Á RÁÐLEGGINGUM, LEIÐBEIN-
INGUM OG BLOGGI UM MAT OG MATARMENNINGU. REYNDAR ER SVO MIKIÐ FJALLAÐ
UM MAT OG VÍN Á NETINU AÐ EKKI GEFST TÍMI TIL AÐ KYNNA SÉR NEMA BROTABROT
AF ÞVÍ SEM Í BOÐI ER. TÍMARITIÐ SAVEUR GEFUR SÉR ÞÓ ÁRLEGA TÍMA TIL AÐ TAKA
SAMAN BESTU OG VINSÆLUSTU MATARBLOGG HEIMS OG ER VERT AÐ SKOÐA HELSTU
VERÐLAUNAFLOKKA TÍMARITSINS.
Bestu
matarbloggin 2015
Matur og drykkir