Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.09.2015, Qupperneq 35
20.9. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
S
máhesturinn fór að velta því fyrir sér hvort hann þyrfti að fara
að klæðast tvöföldum aðhaldssokkabuxum innanundir kjóln-
um, eða mögulega borða örlítið minna, eftir að hann fékk þá
spurningu hvort hann gengi með folald. Þessi spurning kom
frá miðaldra, hvítum, íslenskum ritstjóra sem starfar á glanstímariti.
Viðbrögð smáhestsins voru eitthvað á þessa leið: „Hva … ertu að
segja að ég hafi fitnað???“
Ritstjórinn neitaði því vandræðalega og sagði að þetta gæti alltaf
gerst hjá smáhestum á barneignaraldri. Þessi spurning hefði svo sem
ekki átt að koma á óvart því
smáhesturinn hefur svo allt of
oft fengið hana í gegnum tíð-
ina. Smáhesturinn má nefni-
lega ekki hugsa um sætabrauð
og súkkulaðisnúða án þess að
vömbin belgist út af sjálfu sér
(sem er sjúklega ósanngjarnt).
Svona smáhestar eiga nátt-
úrlega bara að drekka vatn og
bíta gras, taka lýsi og fara
snemma að sofa. Það að sleppa
einstaka sinnum morg-
unmatnum, borða uppbakaðar
súpur í mötuneyti, drekka of
marga Flat White á dag eða
stelast í sjálfsalann í vinnunni
er dýru verði keypt. Tala nú
ekki um þegar smáhestar tá-
brotna og eru kyrrsettir í
meira en mánuð. Þá er voðinn
vís. En stundum er bara svo of
gaman að vera til og þegar
gleðin stendur sem hæst er
auðvelt að gleyma boðorð-
unum 10.
Auðvitað ættu allir heimsins
smáhestar og spariguggur
þessa lands að vera löngu búin
að frelsa vömbina. Hér er verið að frelsa alla heimsins líkamsparta en
einhvern veginn virðist vömbin alltaf verða útundan. Spáið í hvað lífið
væri svo miklu afslappaðra og frjálsara ef vömbin fengi bara að flæða
óhindruð. Tala nú ekki um hvað það væri fínt ef það teldist bara eðli-
legt að allir væru bara alltaf með bert á milli – líka miðaldra konur
með mömmumaga.
Árið 2010 ákvað norska sjónvarpskonan Helle Vaagland að frelsa
vömbina og lærin og allt það. Á venjulegum degi í vinnunni ákvað hún
að taka leikkonuna Demi Moore á þetta, sem nýlega hafði háttað sig
inni á eigin baðherbergi og tekið selfie. Vaagland æddi inn á baðher-
begi á NRK, þar sem hún starfaði á þeim tíma, girti sokkabuxurnar
niður um sig og tók selfie. Vaagland er bara venjuleg, norsk, rúmlega
fertug kona með femínískar skoðanir. Athæfið vakti mjög mikla at-
hygli og komst í fréttir stærstu fjölmiðla heims.
Með myndbirtingunni vildi Vaagland ýta við kjánalegum hug-
myndum samtímans um útlitsdýrkun sem fóru í taugarnar á henni.
Hún sagði að það væri ömurleg þróun að það væri bara pláss fyrir full-
komna líkama í fjölmiðlum.
Á dögunum var sagt frá því í fjölmiðlum að pabbalíkaminn væri að
koma sterkur inn. Það er að segja að feitir, skeggjaðir menn væru
meira inn en grannir, skegglausir smjörbobbar. Meira að segja Leon-
ardo DiCaprio væri orðinn feitur og skeggjaður. Út frá jafnrétt-
isgrundvelli geri ég ekki ráð fyrir öðru en kvenpeningurinn taki þetta
alla leið. Hætti að pakka mömmumaganum inn í aðhaldsföt og njóti
alls þess besta sem vömbin hefur upp á bjóða. Og síðast en ekki síst
njóti þess að vera nákvæmlega eins og þær eru. martamaria@mbl.is
Helle Vaagland er hér til hægri. Hún er
hætt að raka sig undir höndunum.
Helle Vaagland fór úr sokkabuxunum og skyrtunni 2010 og tók selfie.
Mömmulíkaminn
leggur línurnar
Demi Moore póstaði þessum myndum.
fyrir hana
Ný skartgripalína
Eyrnalokkar
7.500
Hálsmen
19.900
Hringur
13.900
Bankastræti 6 – sími 551 8588 – gullbudin.is
mbl.is/askriftarleikur