Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.09.2015, Side 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.09.2015, Side 37
Rachel Zoe og Anna Dello Russo ásamt syni Rachel á sumar- sýningu hönnuðar- ins fyrir 2016. hafi heillað Önnu segir hún tilrauna- vinnuna og að nota endurunnið efni í að skapa eitthvað óvænt sem fær fólk að hugsa aftur um efnið og möguleika þess mjög hvetjandi. „Ég held að hugmyndin um að nota reiðhjólaslöngur hafi kannski komið þegar ég var að hugsa til- baka til vetrarins 2014-2015 þegar ég hafði praktíkpláss í starfsnáminu hjá hollenska hönnuðinum Iris van Herpen í Amst- erdam. Amsterdam er mjög flottur staður og hvert sem þú ferð, þá ferðu á hjóli.“ Anna segir að í sköpunarferlinu sjálfu byrji hún iðulega á því að finna þema fyrir hverja línu, hún byrji alltaf ferilinn á því að lesa, oft bókmenntir sem snerta sambandið á milli fataefnis, fatnaðar og persónu. „Með línunni sem er kölluð „Sheath“ rannsaka ég sambandið á milli kvenlíkamans og aðsnið- ins, faðmandi klæðnaðar. Markmið línunnar er fatnaður sem fylgir hreyfingum persónunnar sem klæðist honum, frek- ar en að herða hana,“ út- skýrir hún og bætir við að það sé svolítið erfitt að setja fingurinn á akkúrat það augnablik sem hug- mynd fæðist, það séu alltaf margir þræðir sem þróist saman á nokkrum tíma. Aðspurð hvenær áhuginn á sjálfbærni í fatahönnun hafi kvikn- að segist Anna alltaf haft áhuga á sjálfbærni almennt. „Á síðasta ári í menntaskóla í Sviþjóð var ég að lesa mikið um sjálfbærni og það hefur alltaf fylgt með mér í huganum. Að sjá sem barn hvernig sænska amma mín notaði gömul föt og slitin lök sem enginn lengur vildi nota og skapa eitthvað alveg öðruvísi hafði mikil áhrif á mig. Hún kenndi mér mögu- leikann á að breyta einhverju sem er litið á eins og úrgang í fallega hluti.“ Önnu sem er nú að útskrifast langar að hafa áhrif á hvernig litið er á hönnun í dag og sé því draum- urinn að setja á stofn eigið fyrir- tæki eftir nokkur ár. „En fyrst ætla ég að afla mér meiri reynslu hjá öðrum huglægum hönnuðum sem ég lít upp til. Smá draumur er að fá vinnu hjá óhefð- bundnum hönnuði eins og hinni sænsku Söndru Backlund eða fara til London, þar sem mikil huglæg sköpun er til staðar. Ég reyni samt að halda öllum dyrum opnum og ætla að sjá hvaða tækifari eru í boði,“ bætir hún við að lokum. Anna niður slöngur í garn sem hún svo prjónaði saman. Markmið línunnar er að fatnaðurinn fylgi hreyfingum persónunnar.Fatnaður eftir Önnu á vellukkaðri útskriftarsýningu. 20.9. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37 Selena Gomez og Brooklyn Beckham voru ofursvöl á Polo Ralph Lauren-sýningunni. Rapparinn Kanye West og eig- inkona hans, Kim Kardashian, létu aldeilis sjá sig á sumarsýn- ingu Givenchy í New York. Jenna Lyons mætti á sýn- ingu Baja East í New York í vikunni í fal- legri slá og hvítum galla- buxum. Fyrirsætan Julia Restoin Roitfeld mætti á sýningu the Blue Les Copains í New York. Móðir hennar er fyrrverandi rit- stjóri franska Vogue, Carione Roitfeld. Smekklegar mæðgur þar á ferð. Gigi Hadid og Lily Aldridge mættu í stíl á sýningu Serenu Williams á tískuvikunni. Söngvarinn Joe Jonas í félagsskap fyrirsætn- anna Immy Water- house, Suki Water- house og Behati Prinsloo á Tommy Hilfiger- sýningunni. Leigh Lezark og Poppy Dele- vingne voru smart á Michael Kors-sýningunni.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.