Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.09.2015, Qupperneq 46
Viðtal
46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.9. 2015
A
rnar Freyr Frostason og Helgi
Sæmundur Guðmundsson
skipa rapptvíeykið Úlfur Úlfur
sem hefur slegið í gegn með
plötunni Tvær plánetur sem
kom út í sumarbyrjun með lögum eins og
„Brennum allt“, „Tarantúlur“ og „100.000“.
Þeir eru líka langt í frá nýgræðingar í tón-
list, hafa verið að rappa saman síðan þeir
voru unglingar, unnu Músíktilraunir með
Bróður Svartúlfs (2009) og Úlfur Úlfur hefur
áður sent frá sér plötuna Föstudagurinn
langi (2011).
„Þetta er stærra og meira en við bjugg-
umst við í upphafi. Það er í eðli okkar að
efast um sjálfa okkur og við vorum búnir að
liggja í þessari plötu í tvö, þrjú ár. Þetta var
orðin mikil pressa á okkur frá okkur sjálf-
um,“ segir Helgi og bætir við að tímabilið
þar sem platan var tilbúin en ekki komin út
hafi verið mjög stressandi.
„Það kom reglulega fyrir að við sátum
tveir og drógum þetta allt í efa; við værum
að segja eitthvað sem fólk myndi misskilja
eða að platan væri ekki nógu góð,“ segir
Arnar og útskýrir nánar að mörg lögin séu
einlæg og þeir hafi óttast að það væri hrein-
lega of mikið, að fólk nennti ekki að hlusta.
„En ég fann það strax þegar platan kom út,
sem var mesti léttir sem ég hafði upplifað,
að fólk fór að hæla okkur fyrir nákvæmlega
sömu hluti og við höfðum dregið í efa; ein-
lægnina og hvað lögin voru persónuleg. Við
erum að tala um okkar hversdagsleika.“
Þekktur frasi úr rappinu er „keepin’ it
real“ og hjá Úlfi Úlfi er hann ekki skrum-
skældur á neinn hátt heldur snýst um að
vera sannur og heiðarlegur. „Við höfum aldr-
ei logið í lagi, við höfum aldrei sagt neitt
bara til að upphefja sjálfa okkur eða ein-
ungis til að vera kúl,“ segir Arnar sem svar-
ar aðspurður að þeir stundi það ekki að upp-
hefja sjálfa sig á kostnað annarra.
Textarnir endurspegla ekki aðeins líf
þeirra heldur samfélagið í dag: „Þarf ekki
neitt en dreymir um meir, tveir fyrir einn.“
Önnur setning af plötunni er: „Allir vilja
fljóta með straumnum en drukkna í með-
almennskunni og grána.“
Drukknar maður í meðalmennskunni ef
maður flýtur í straumnum?
„Þetta er rauður þráður í gegnum plötuna
okkar. Ég var hræddur um að fólk héldi að
við værum hrokafullir því meðalmennskan er
náttúrlega flestir, almúginn sem við eurm
hluti af. Við tölum mikið um að vilja rísa upp
úr þessu og verða eitthvað stærra og betra.
Ég var hræddur um að fólk héldi að við
værum að tala niður til þess. Þetta snýst alls
ekki um hroka heldur frekar að vera besta
útgáfan af sjálfum sér,“ segir Arnar.
Landamæri eru gamaldags
Í vikunni spilaði Úlfur Úlfur á styrktartón-
leikum fyrir sýrlenska flóttamenn en allur
ágóði rann til UNICEF, barnahjálpar Sam-
einuðu þjóðanna, í Sýrlandi og nágrannaríkj-
um.
Þeim finnst báðum hið sjálfsagðasta mál
að styrkja þetta málefni. „Þetta er svo gam-
aldags viðhorf sem er við lýði núna að það
séu landamæri og Ísland eigi bara að vera
fyrir Íslendinga,“ segir Helgi.
„Óttinn við allt sem er framandi, að það
muni menga það sem við höfum hér, mér
finnst það svo hræðilegur hugsunarháttur að
vilja stöðugt skilja sig frá heiminum. Við er-
um öll úr sama efninu og í þessu saman. Við
erum í aðstöðu til að hjálpa fólki. Þetta er
ekkert flókið; að vilja hjálpa fólki sem er al-
veg eins og þú,“ segir Arnar, sem er ánægð-
ur með hversu margir Íslendingar eru farnir
að láta í sér heyra.
„Þeir sem eru við stjórnvölinn vita þá hvar
fólk stendur,“ segir Helgi.
Fólk hefur jafnvel verið hissa á því að
flóttafólkið sé með farsíma. „Eins og árið
2015 sé ekki þar? Ætti fólk ekki að finna
ennþá frekar fyrir samúð? Þetta er bara fólk
með iPhone eins og þú,“ segir Arnar.
Sjónræni þátturinn mikilvægur
Úlfur Úlfur hefur lagt mikinn metnað í að
gera flott myndbönd og hefur verið horft á
myndbandið við „Tarantúlur“ tæplega
260.000 sinnum á síðastliðnu ári og tæplega
130.000 sinnum á „Brennum allt“ á um
þremur mánuðum.
„Við leggjum áherslu á að myndböndin
séu flott. Netið er svo mikilvægt til að ná til
fólks og ef myndbandið er gott er fólk lík-
legra til að deila því og tengja eitthvað já-
kvætt við nafnið okkar,“ segir Arnar en þeir
segjast vera umkringdir góðu fólki, lista-
mönnum úr mörgum áttum sem hafi verið
tilbúnir til að hjálpa þeim til að láta þetta
takast.
Áhorfið á myndböndin kemur líka að utan,
sérstaklega nýlega eins og einn ánægður
sem skrifaði: „Ég hélt að Ísland væri bara
Björk, Múm, Hjaltalín og Sigur Rós.“ Núna
er Ísland líka Úlfur Úlfur.
Hljómsveitin hefur unnið mikið með Agent
Fresco, sem spila oft einn eða fleiri með
þeim á tónleikum.
„Því stærri sem staðurinn er því stærri er
hljómsveitin,“ segir Helgi en á útgáfutónleik-
unum í sumar voru þrettán manns uppi á
sviði.
„Við erum með margar hugmyndir og er-
um ekkert að fara að slaka á þótt platan sé
komin út og gangi vel. Við erum bara að fá
stærri hugmyndir og reyna að verða betri,“
segir Arnar og bætir við að þeir vilji ögra
sjálfum sér en ekki vera inni í þæg-
indarammanum.
„Maður þarf að fara út úr þægindaramm-
anum til að bæta sig og vera besta útgáfan
af sjálfum sér,“ segir Helgi.
Myrkrið og mikil lífsgæði
Þeir segja báðir að þeir hafi farið langt út
fyrir þægindarammann við gerð plötunnar.
„Við bjuggum saman í miðbænum síðasta
sumar (2014) þegar við vorum að semja plöt-
una. Rútínan var þannig að við borðuðum
tvö egg á mann á morgnana, fórum í rækt-
ina og svo í stúdíóið. Við komum hvor úr
sinni áttinni þegar við fluttum inn saman en
vorum samt að takast á við sömu hlutina,“
segir Helgi en þeir peppuðu hvor annan upp.
„Maður getur upp að vissu marki haft svo
mikil áhrif á andlega heilsu með því að til-
einka sér ákveðið hugarfar,“ segir Arnar.
„Það er ekki alltaf nóg en það hjálpar,“ segir
Helgi og að eitt af því sem Íslendingar þurfi
að takast á við sé skammdegisþunglyndi.
„Hér er nóg af öllu en líka svo mikið
myrkur. Það eru einstakar aðstæður á þessu
landi sem ég held að skili sér í góðri tónlist,
þessar undarlegu aðstæður; myrkrið og mikil
lífsgæði. Það er mikill andlegur þungi þarna
en á sama tíma hefur maður það svo gott,“
segir Arnar en þetta endurspeglast í text-
anum í „Brennum allt“: „Við eigum allt/við
erum smart/okkur er samt/alltaf svo kalt/
sumarið bjart/annars allt svart/allt ísi lagt/og
ég hata það.“ Ísland í hnotskurn.
Æskan í Skagafirðinum
Arnar og Helgi eru æskuvinir en þeir ólust
báðir upp í Skagafirði, nánar tiltekið á Sauð-
árkróki.
„Ég bjó í Eyrartúni og hann í Dalatúni,
við vorum nánast nágrannar. Ég er einu ári
eldri en Arnar en í litlum bæ vita allir hverj-
ir allir eru. Við vorum báðir í körfu og tók-
um skólarútuna heim saman. En svo kynnt-
umst við í gegnum sameiginlegan áhuga á
rapptónlist,“ segir Helgi en þar kom einnig
við sögu Jóhann Bjarkason sem er núna í
Redd Lights, sem mixaði Tvær plánetur.
„Við þrír urðum óaðskiljanlegir og erum
það ennþá í dag,“ segir Arnar en rappsenan
var merkilega stór á Sauðárkróki.
„Við vorum að stelast til að reykja sígar-
ettur og rappa með stolinn bjór úr búrinu
heima hjá okkur. Þetta voru mjög skemmti-
Náttúruskáld
sem yrkja
um steypu
STRÁKARNIR Í ÚLFI ÚLFI HAFA ALDREI LOGIÐ Í LAGI EÐA SAGT
EITTHVAÐ AÐEINS TIL AÐ UPPHEFJA SJÁLFA SIG. ÞAÐ ER MÖGU-
LEGT AÐ DRUKKNA Í MEÐALMENNSKUNNI EF MAÐUR FLÝTUR
MEÐ STRAUMNUM EN ÞAÐ ER EKKI HROKI AÐ VILJA RÍSA UPP FYR-
IR ÞETTA OG VERÐA BESTA ÚTGÁFAN AF SJÁLFUM SÉR.
Texti: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Myndir: Kjartan Þorbjörnsson golli@mbl.is