Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.09.2015, Blaðsíða 48
Myndhöggvarans Wilhelms Beckmann
(1909-1965) hefur verið minnst á ýmsan hátt
á undanförnum misserum. Í Ólafsvíkurkirkju
er fagurlega útskorinn skírnarfontur eftir
hann og við athöfn í guðsþjónustu í kirkjunni
á sunnudag verður afhjúpaður minningar-
skjöldur um gefendur fontsins, hjónin Mark-
ús Einarsson, framkvæmdastjóra Hraðfrysti-
húss Ólafsvíkur, og Soffíu E. Sigurðardóttur,
konu hans. Að lokinni guðsþjónustunni mun
formaður stjórnar Stofnunar Wilhelms
Beckmann, Jón Þór Þórhallsson, flytja erindi
um listamanninn. Wilhelm Beckmann flýði
nasismann í Þýskalandi, kom til Íslands árið
1935, eignaðist hér fjölskyldu og vann hér að
fjölbreytilegum listaverkum.
GEFENDA MINNST Í ÓLAFSVÍK
SKURÐMEISTARI
Myndskerinn Wilhelm Beckmann við vinnu
sína. Hér sker hann út stóra Kristsmynd.
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.9. 2015
Ár í listheimum
nefnist mynd-
listarsýning
Ránar Jóns-
dóttur og Unn-
ar Óttars-
dóttur sem
opnuð verður í
Anarkíu,
Hamraborg 3, í
dag, laugardag,
kl. 15. „Sýn-
ingin byggist á
ferðum um
listasenu Ís-
lands. Verkefnið byggist á rannsókn-
arferðum sem voru skrásettar í myndum.
Myndlistarmennirnir Rán og Unnur spegla
sig hvor í annarri sem og myndlist-
armönnum samtímans. Listamennirnir
unnu verkin á sýningunni í samvinnu,“ seg-
ir m.a. í tilkynningu. Báðar hafa listakon-
urnar lokið MA-gráðu frá LHÍ, Unnur árið
2015 og Rán árið 2014.
NÝ SÝNING Í ANARKÍU
ÁR Í LISTHEIMUM
Eitt þeirra verka sem sýnt
er í Anarkíu.
Heiðrún Kristín Guð-
varðardóttir söngkona
efnir til tónleika í Fella- og
Hólakirkju í dag, laug-
ardag, kl. 16. Með henni
syngja Davíð Ólafsson,
Kristín R. Sigurðardóttir,
Helga Magnúsdóttir og
sönghópurinn Boudoir.
Meðleikarar eru Julian M.
Hewlett á píanó, Símon
H. Ívarsson á gítar og Guðni Franzson á
klarinett.
„Á tónleikunum verður flutt ljúf og
skemmtileg tónlist úr ýmsum áttum. Tilefni
tónleikanna er tvíþætt. Annars vegar fimm-
tugsafmæli Heiðrúnar, sem var í júlí sl., og
hins vegar fögnuður yfir því að hafa komist
heil á húfi út úr erfiðri krabbameinsmeðferð.
Yfirskrift tónleikanna er „Með bros á vör“,
og er þar vísað m.a. til lagsins „Smile“ sem
Heiðrún hefur haft sérstakt dálæti á í veik-
indunum,“ segir m.a. í tilkynningu.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA
MEÐ BROS Á VÖR
Heiðrún Kristín
Guðvarðardóttir
Menning
Mér fannst þetta mjög áhugavertverkefni þegar leikstjórinn bauðmér það. Ég hafði stuttu áður lesið
bókina og fannst þetta verk eiga erindi í dag
út frá svo mörgu í samtímanum. Auk þess
fannst mér gaman að geta lokað hringnum og
snúið aftur á svið í Samkomuhúsinu þar sem
ég byrjaði að leika hjá Leikfélagi Akureyrar
fyrir rúmum 60 árum,“ segir Arnar Jónsson
sem leikur burðarhlutverk í uppfærslu Leik-
félags Akureyrar á Býr Íslendingur hér? í
leikstjórn Jóns Páls Eyjólfssonar, sem frum-
sýnd var í gærkvöldi, föstudag. Leikmynd og
búninga hannar Íris Eggertsdóttir, um tónlist
sér Davíð Þór Jónsson og lýsingu hannar
Þóroddur Ingvarsson, en meðleikari Arnars
er Benedikt Karl Gröndal.
Leikritið er leikgerð Þórarins Eyfjörð á
samnefndri bók Garðars Sverrissonar og Leifs
Muller sem út kom árið 1988, en leikgerðin
var fyrst leikin í Tjarnarbíói árið 1993. Verkið
segir frá lífshlaupi Leifs sem ólst upp í
Reykjavík en hélt sem ungur maður til Noregs
í nám. Þegar nasistar hernámu Noreg var
Leifur svikinn í hendur Gestapó og endaði í
Þýskalandi Hitlers í Sachsenhausen, alræmd-
um þrælkunar- og útrýmingarbúðum nasista.
Lykillinn að leika sem minnst
Spurður hvernig hann nálgast hlutverk Leifs
í sýningunni segir Arnar lykilinn vera að
leika sem minnst. „Þetta eru það skelfilegar
lýsingar að þú þarft að láta þetta ná til þín
svo sterkt og fara þannig í gegnum þig að
þér finnist þú vera staddur á þessum stað og
vera að upplifa þetta. Það hjálpar okkur leik-
urunum að Leifur er í verkinu að rifja upp
atburðina. Við útfærum þetta þannig að við
Benedikt túlkum Leif á ólíkum tímaskeiðum.
Hans er meira í beinu upplifuninni á því sem
er að gerast í kringum hann, en sá eldri er
meira í minningunni og rifjar upp, þó það séu
eðlilega engin skýr mörk. Við rissum síðan
báðir upp lykilpersónur í kringum Leif, s.s.
foreldra hans og manninn sem sveik hann í
hendur nasista.“
Aðspurður segist Arnar aldrei hafa unnið
með Benedikt Karli áður, en hann ber honum
sem og öðru samstarfsfólki afar vel söguna.
„Þetta er lítill og afar góður hópur sem að
uppsetningunni kemur. Við Jón Páll höfum
leikið saman á sviði, þ.e. í Íslandsklukkunni í
Þjóðleikhúsinu, en hann hefur aldrei leikstýrt
mér áður. Hann er afar fær leikstjóri og
þetta hefur allt verið ákaflega ánægjulegt
ferli og gengið vel þó tíminn hafi verið
skammur. Þetta er mikil brekka, bæði að
læra og klifra upp. Hún er ekki auðveld.“
Spurður hvort gott sé að leika í Samkomu-
húsinu svarar Arnar því játandi. „Leikhúsið
er hannað eftir gullinsniði. Hér ríkir gott
jafnvægi milli sviðs og salar. Það þarf því
ekki að sperra sig mikið.“
Aldrei haft meira að gera
Sem fyrr segir fagnar Arnar því að fá tæki-
færi til að snúa aftur á svið í Samkomuhús-
inu. „Ég var meðal þeirra sem stofnuðu hér
atvinnuleikhús árið 1973, en þá var ég búinn
að vera hér meira og minna frá 1969. Ég var
fastráðinn hér til 1975 þegar við stofnuðum
hér Alþýðuleikhúsið. Ég hef í gegnum tíðina
komið hingað sem gestaleikari í nokkur
skipti,“ segir Arnar sem ílengist á Akureyri
eftir að sýningum á Býr Íslendingur hér?
lýkur. „Við Jón Páll höfðum talað saman áður
en uppsetningin á Býr Íslendingur hér? kom
til og bundist um það fastmælum að ég kæmi
norður með einleikinn Sveinsstykki eftir Þor-
vald heitinn Þorsteinsson, sem er Akureyr-
ingur eins og ég,“ segir Arnar og tekur fram
að hann reikni með að sýna Sveinsstykki á
Akureyri fyrir jól. Þorvaldur skrifaði Sveins-
stykki árið 2003 fyrir Arnar að beiðni Þor-
leifs Arnar Arnarssonar í tilefni af tvöföldum
tímamótum Arnars, þ.e. 40 ára leikafmæli
hans og sextugsafmæli, en Þorleifur leik-
stýrði frumuppfærslunni í Loftkastalnum sem
þá var og hét. Síðla árs 2013 leikstýrði Þór-
hildur Þorleifsdóttir eiginmanni sínum í upp-
færslu verksins á Stóra sviði Þjóðleikhússins
í tilefni þess að það sama ár varð Arnar sjö-
tugur, en með sýningunni kvaddi Arnar form-
lega Þjóðleikhúsið eftir 50 ára farsælt starf,
en hefur síðan leikið bæði í Eldrauninni og
Sjálfstæðu fólki.
„Ég er ekki lengur fastráðinn neins staðar,
það má ekki. Ég er því bara minn eigin
herra. Ég hef verið að vinna í sjónvarpi, m.a.
Rétti, alls kyns stuttmyndum og bíómyndum
á borð við Fúsa. Ég hef eiginlega aldrei haft
meira að gera sem leikari en eftir að ég
komst á aldur og samningi mínum við Þjóð-
leikhúsið lauk,“ segir Arnar.
Heimildarmynd um ævistarfið
Inntur eftir því hvaða verkefni séu framundan
hjá sér segir Arnar ýmislegt í bígerð, en að-
eins megi segja frá litlu broti af því á þessari
stundu. „Á mér hvíla líka vanrækslusyndir
sem ég væri mjög áfram um að geta komist í
að sinna. Mér finnst að mér beri skylda til að
skrá eitthvað í sambandi við Alþýðuleikhúsið.
Auk þess er í bígerð heimildarmynd um ævi-
starfið sem Þór Ómar kemur að. Svo er margt
fleira,“ segir Arnar og bendir á að hann langi
líka til að sinna öllum barnabörnunum sem
skyldi og hafa möguleika á að fylgjast með
börnum sínum sem séu að gera það gott í leik-
listinni erlendis. „Það væri mjög gaman að
geta fylgst betur með þeim. Þannig að það er
engin ládeyða framundan hjá mér.“
Aðspurður segist Arnar alltaf njóta þess
jafnmikið að standa á leiksviðinu. „Með
reynslunni og aldrinum finn ég að ég eflist
sem leikari,“ segir Arnar. Spurður hvort
hann eigi sér enn eitthvert draumahlutverk
eða hvort hann sé búinn að fá tækifæri til að
takast á við allt sem hann gat óskað sér svar-
ar Arnar: „Ég er búinn að fá tækifæri til að
glíma við allt sem ég gat óskað mér og svo
miklu meira en það. Helst vildi maður fást
við eitthvað sem væri bæði krefjandi en um
leið líka eitthvað sem ögraði manni, þ.e. eitt-
hvað sem maður hefði ekki mikið gert áður.
Því maður er búinn að skila því helsta sem
maður vildi. En það væri mjög gaman að tak-
ast á við ögrandi og nýja hluti og hlutverkið í
Býr Íslendingur hér? fellur undir það. Leik-
arinn er mjög nakinn í þessari uppfærslu.
Það eru engin hjálpartæki sem fleyta þér
áfram, þú verður að sækja það allt inn í sjálf-
an þig og þinn reynslubrunn,“ segir Arnar og
nefnir að lokum að þau Þórhildi eiginkonu
hans langi einnig til að vinna meira saman í
framtíðinni. „Við erum með ýmsar hugmyndir
sem okkur langar að koma á koppinn. Þannig
að fólk verður að þola það að hafa mig fyrir
augunum eitthvað áfram,“ segir Arnar að lok-
um.
LEIKFÉLAG AKUREYRAR SÝNIR BÝR ÍSLENDINGUR HÉR?
„Mér fannst gaman að
geta lokað hringnum“
ARNAR JÓNSSON LEIKUR Í SÝNINGUNNI BÝR ÍSLENDINGUR HÉR? SEM FRUMSÝND VAR Í SAMKOMUHÚSINU Á
AKUREYRI Í GÆR. HANN FAGNAR ÞVÍ AÐ FÁ TÆKIFÆRI TIL AÐ SNÚA AFTUR NORÐUR ÞAR SEM HANN TÓK SÍN
FYRSTU SKREF SEM LEIKARI OG MUN SÝNA ÞAR SVEINSSTYKKI EFTIR ÞORVALD ÞORSTEINSSON SÍÐAR Á ÁRINU.
Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is
Ljósmynd/Auðunn Níelsson
„Mér fannst þetta mjög
áhugavert verkefni þegar leik-
stjórinn bauð mér það,“ segir
Arnar Jónsson sem leikur í
Býr Íslendingur hér? ásamt
Benedikt Karli Gröndal.