Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.09.2015, Side 56
Helen Mirren
Leikkona
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
J. K. Rowling
Rithöfundur
Ragna Fossberg
Förðunarmeistari
Heiða Rún Sigurðardóttir, eða Heida
Reed eins og hún kallast í Bretlandi,
kemur fram sem gestaleikari í fimmtu
seríu hinnar geysivinsælu bresku
sjónvarpsþáttaraðar Death in Para-
dise.
Frá þessu er greint í fréttamiðlum í
Bretlandi og vestanhafs svo sem í Huff-
ington Post en aðrir gestaleikarar í nýj-
ustu þáttaröðinni eru meðal annarra
Paul Nicholls úr sjónvarpsþáttunum
The C Word, Emma Catherine Rigby
úr sjónvarpsþáttunum Hollyoaks og
Charlotte Hope úr Game of Thrones.
Death in Paradise hefur í fjögur ár
verið ein vinsælasta sjónvarpsþáttaröð
BBC-sjónvarpsstöðvarinnar og hlotið
mikið lof gagnrýnenda. Þættirnir, sem
teknir eru upp á frönsk-karabísku eyj-
unni Guadeloupe, eru blanda af drama,
spennu og fyndni.
Þættirnir verða teknir til sýningar í
byrjun árs 2016.
Sýningar hófust á Poldark síðasta
sunnudag en sem kunnugt er hefur
Heiða Rún gert nokkurra ára samning
um að leika í þáttunum, sem notið hafa
mikilla vinsælda í Bretlandi.
FRÆGÐARFÖR HEIÐU RÚNAR
Gestaleikari í Death in Paradise
Death in paradise sjónvarps-
þættirnir njóta mikilla vinsælda.
AFP
Heiða Rún Sigurðardóttir
er orðin stórstjarna í
bresku sjónvarpi.
SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2015
„Mér hafði verið sagt að á Íslandi
væri mikið af fallegum stúlkum,
enda var ég fljót að sannfærast um
það þegar ég kom. Þegar ég geng
um göturnar, er ég stöðugt að sjá
stúlkur, sem mig langar til að
stanza og tala við – en ég geri ekki
ráð fyrir að það sé heppileg leið til
að komast í samband við þær.“
Með þessum orðum hófst frétt í
Morgunblaðinu fyrir réttum 45 ár-
um. Skoðum málið nánar:
„Þetta kann að þykja undarlega
mælt af konu, en Christa Fiedler,
sem þetta sagði, hefur sérstaka
ástæðu til að vilja tala við fallegar
íslenzkar stúlkur. Hún rekur
nefnilega umboðsskrifstofu fyrir
ljósmyndafyrirsætur í París og því
er eitt aðalstarf hennar að „upp-
götva“ nýjar fyrirsætur.“
Fiedler upplýsti Morgunblaðið
um að það væri algengur misskiln-
ingur að stúlkur sem kæmu til
Parísar héldu að fyrirsætuvinnan
væri lítið annað en ferðalög og
skemmtanir. Þvert á móti væri
þetta mikil vinna.
Fiedler hafði þegar rætt við
nokkrar áhugasamar íslenskar
stúlkur með samning í huga og
leist mjög vel á sumar, þótt þær
þyrftu aðeins að grenna sig.
GAMLA FRÉTTIN
Horfir á
stúlkur
Christa Fiedler (t.h.) ræðir við ungfrú Reykjavík 1969 og fulltrúa ungu kyn-
slóðarinnar 1970 meðan á heimsókn hennar til landsins stóð haustið 1970.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
Akureyri • Sími 461 1099
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
sé
r
ré
tt
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
.a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
6
7
9
0
4
Sikiley
5.október í 10 nætur
Frá kr.139.900
Sikiley kemur á óvart með áhugaverðri blöndu af
öllu því helsta sem ferðamenn sækjast eftir. Samfelld
3000 ára menningarsaga, einstök náttúrufegurð,
ótrúlegar fornminjar, fallegar byggingar og söfn,
ásamt áhugaverðri matarmenningu og blómlegu
mannlífi – allt þetta og miklu fleira finnurðu á Sikiley.
Heimsferðir bjóða bæði sérferð og sólarferð í beinu
flugi til Sikileyjar í byrjun október á yndislegum
tíma. Hitastigið er ennþá notalegt og hentar bæði
til sólbaða og fyrir þá sem vilja verja tímanum til að
skoða þessar stórbrotnu eyju.
Sérferð
Í sérferðinni er flogið til Palermo og dvalið í 5 nætur
á Campofelica di Rocella ströndinni sem er 45 km
austan við Palermo og um 15 km frá Cefalu bænum.
Þar er boðið upp á kynnisferðir til Cefalu, Palermo
og Monreale, ásamt dagsferð til Corleone. Þann
10. október er ekið til austurstrandarinnar og dvalið
á ferðamannastaðnum Giardino Naxos í 5 nætur
þar sem áhugaverðar kynnisferðir eru í boði með
íslenskum fararstjórum.
Sólarferð
Í sólarferðinni er flogið til Palermo og ekið til
ferðamannastaðarins Giardini Naxos á austurströnd-
inni og dvalið þar í 10 nætur. Bestu baðstrendurnar
á Sikiley eru á austurströndinni og þar er öll þjónusta
við ferðamanninn eins og best verður á kosið. Bæir
og þorp flétta á skemmtilegan hátt saman það besta
úr fortíð og nútíð og matarmenningin sameinar
ítölsk og arabísk áhrif og er afar heillandi. Á Sikiley
eru einnig framleidd afar góð vín.
Frá kr. 199.800
m/hálft fæði og
drykki innifalið
Netverð á mann frá
kr. 199.800 á Fiesta Garden
Beach og Hotel Giradini
Naxos Villas m.v. 2 í
herbergi m/hálfu fæði og
drykkjum með kvöldverð.
Frá kr. 139.900
m/morgunmat
innifalinn
Netverð á mann frá
kr. 139.900 á Hotel
Tysandros m.v. 2 í herbergi
m/morgunmat innifalinn.
SÉ
RT
IL
BO
Ð