Fréttablað - 01.08.1966, Blaðsíða 1
KIWANISKLÚBBURINN HEKLA
4
f
4.tbl. júní - ágúst 1966 1. árg.
SJÓSTANGAVSIÐIN
JEins og skýrt var frá í slðasta blaði, fóru nokkrir meðlimir úr
báðum Kiwanisklúbbunum hér í veiðiferð út á flóa á tveim bátum, Hermóði
og Islending II. Lagt var af stað um miðnætti og komið á miðin snemma
morguns. Nokkur ylgja var, að minnsta kosti þótti okkur landkröbbunum
það, svo að allmargir urðu að gægjast út fyrir borðstokkinn, en hinir,
sem sjóhraustir voru, skemmtu sér við spil o.fl. Um morguninn hófst svo
veiðiskapurinn og aflaðist vel. Um tíma tók þorskurinn svo ört, að varla
gafst tími til að renna færinu í botn áður en fiskur var á hverjum öngli
og fengu sumir jafnvel fimm í einum drætti. Aflinn var að því leyti ó-
venjulegur, að fyrir utan algengustu tegundirnar, þorsk, ýsu, ufsa o.s.frv.
veiddust tveir fuglar, múkki og svartfugl.
Þegar komið var að landi, tók hver og einn með sér nokkra fiska í
soðið, en afgangurinn var seldur og fengust rúmar 5.000 krónur fyrir afl-
ann, og rennur sú fjárhæð í sjóð klúbbsins.
Veiðiferð þessi tókst eins og bezt verður á kosið og er það ekki minnst
skipstjórunum, Jóhannesi á Islendingi II og Gvendi á Hermóði, að þakka, en
þeir tóku ekkert fyrir sína vinnu.
FERÐIN MIÐ VISTFÓLK HRAFNISTU
Laugardaginn 25. júní s.l. fóru Heklu- og Kötlubræður með rúmlega 100
vistmenn af Hrafnistu og konur þeirra í skemmtiferð austur fyrir Fjall.
Aður en ferðin hófst, var útbýtt nestispokum (ávöxtum, kexi, konfekti o.fl.)
til allra þátttakendanna. Síðan ók bílalestin (ca. 35 bílar) undir lögreglu-
fylgd út úr bænura og var ekið í einum áfanga til Selfoss og Mjólkurbú Flóa-
manna skoðað. Þar var gestunum boðið að bragða á framleiðsluvörunum, mjólk,
smjöri, ostum o.fl.
Síðan voru sumardvalahús Alþýðusambandsins, Ölfusborgir við Hveragerði,
heimsótt. Lási kokkur brá sér þar í fótbolta við börn dvalargesta og sýndi
slík tilþrif, að fáir þrítugir gætu gert betur. Eftir nokkra dvöl þar var
farið í Hótel Hveragerði og drukkið síðdegiskaffi þar. Eigandi hótelsins
skemmti fólkinu með harmonikuleik og einn Hrafnisturaanna söng gamanvísur.
Að lokinni kaffidrykkju var litið við hjá Grýtu, sem byrjaði að gjósa
um leið og fyrsti bíllinn birtist. Hinn aldni heiðursmaður Þorsteinn Kjar-
val sýndi talsverðan áhuga á þessu náttúrufyrirbrigði. Hann gekk ósmeykur
að gosholunni og kannaði hana með göngustaf sínum, en ekki lét Grýta það
á sig fá og gaus áfram sem áður. A leiðinni heim var áð hjá Kolviðarhóli,
og veittir gosdrykkir eins og hver vildi. Þaðan var svo ekið í einum áfanga
alla leið heim að Hrafnistu.
Terðin tókst að mestu leyti prýðilega, og var gamla fólkið yfirleitt
afskaplega ánægt og þakklátt fyrir skemratunina. Asgeir Guðlaugsson sá um
fararstjórn með myndarbrag, jafnframt því að hann og Þorgeir Skaftfell
kvikmynduðu allt ferðalagið. Auk þess tók Björn Pálsson fjölda mynda í ferð-
inni, og ætla má að einhver þeirra birtist í Kiwanis Magazine.
AFHENDING GJAFARINNAR TIL LANDSSPÍTALANS
Laugardaginn 11. júní s.l. var Landsspítalanum formlega afhent gjöf