Skólavarðan - 01.10.2005, Page 4
Eecera 8
Alþjóðlegu samtökin Eecera stuðla að kynningum á rannsóknum um uppeldi
og menntun yngri barna. Þröstur Brynjarsson sat ráðstefnu samtakanna í
Dublin en á næsta ári er hún haldin í Reykjavík.
Kennaramenntun á tímamótum 10
Á næstu árum eru fyrirhugaðar miklar breytingar á kennaramenntun
í landinu. Kennaraháskóli Íslands hefur lagt fram metnaðarfulla stefnu
í þessum málaflokki.
Veikindaréttur 12
Ingibjörg Úlfarsdóttir launafulltrúi KÍ skrifar.
Um endurmenntun framhaldsskólakennara 13
Anna María Gunnarsdóttir faglegur ráðgjafi FF í skólamálum segir frá þróun
mála á tímum töluverðs niðurskurðar.
Verðlaun veitt fyrir nýsköpun 14
Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda 2005 er nýlokið með veglegri
athöfn og afhendingu verðlauna. Framtakið hefur haft mikil áhrif á
sköpunarstarf í skólum.
Rannsóknir á námi 16
Hvað er nám? Ingólfur Gíslason tók sér fyrir hendur að þýða merkar
niðurstöður námsrannsókna og Hafþór Guðjónsson skrifar aðfararorð.
eTwinning á Íslandi 17
Einn liður í menntaáætlun Evrópusambandsins. Baldur A. Sigurvinsson
verkefnisstjóri hjá Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins útskýrir málið.
Ekki hús heldur hugmynd 19
Náttúruskóli Reykjavíkur var stofnaður nú á haustdögum. Honum er ætlað
að verða miðstöð þekkingar í umhverfismennt, útinámi og náttúrufræði.
Jólabókin í ár 20
Jón Þorvarðarson hefur setið í fjögur ár við skriftir stórglæsilegrar bókar um
sögu stærðfræðinnar á blómaskeiði hennar. Titill bókarinnar er Og ég skal
hreyfa jörðina.
Þar sem rjúpan verpir við húshornið 22
Skólastarf á Eiðum tekur mið af náttúrunni sem umlykur skólann. Sökum
þess hve skólinn er lítill geta kennarar verið sveigjanlegir varðandi tímamörk
og nýtt góða veðrið þegar það gefst.
Nýjar námsbækur, fjölmenning og Afríka 24
Kristín Loftsdóttir mannfræðingur segir frá því hvernig Afríka birtist í
nýlegum íslenskum námsbókum.
Formannspistill 3
Sigrún Grendal skrifar.
Gestaskrif 5
Hrund Ólafsdóttir leikskáld og framhaldsskólakennari segir leiklistina með
öllu ómissandi í skólastarfi og útskýrir af hverju í grein sinni Af hverju leiklist?.
Smiðshöggið 29
Magnús Þorkelsson er ánægður með Power Point en ekki hvernig við notum
það. Af alsælu og ósælu kallar Magnús pistil sinn um málið.
Að auki...
er blaðið fullt af fréttum af námsefni, tilkynningum og fleiru
að ógleymdum leiðara.
Kennarafjölskyldan
Að mörgu er að hyggja í stórri fjölskyldu. Kennarasamband Íslands
minnir um margt á stórfjölskylduna þar sem fólkið er á ýmsum aldri
og með ólík áhugamál en samt tengt órjúfanlegum böndum. Þekkt er
að í stærðinni er styrkurinn fólginn en það er þó ekki eina ástæða þess
að kennarar kjósa að starfa saman. Önnur meginástæða er samstarfið
sjálft, hið daglega ferli sem er eina raunverulega tryggingin fyrir því
að málefni kennara séu til umræðu jafnt í kennarasamfélaginu sem
utan þess. Kennarar eiga kennslureynsluna sameiginlega og enginn
veit betur en þeir að til þess að geta kennt verður maður að geta lært
af öðrum. Kennarasambandið er hornsteinn kennarasamfélagsins og
staðurinn þar sem þetta nám fer fram. Því lýkur ekki með prófgráðu en
afurðin er þróun í átt að meiri þátttöku kennara í mótun samfélagsins,
betri kjörum, styrkari sjálfsmynd og bættri líðan. Á hverjum degi berst
starfsmönnum Kennarahússins erindafjöld sem sýnir vaxandi breidd
og dýpt í því sem kennarar láta sig varða. Sinnuleysið sem rætt er um
á götuhornum, í saumaklúbbum og á fréttastofum á svo sannarlega
ekki við um kennara.
Að sjálfsögðu hringir fólk í Kennarahúsið og spyr um kaup sín og
kjör; orlofsmál, veikindarétt og launaflokka. Þannig á það líka að
vera. En margir koma með ábendingar um mikilsverð verkefni fyrir
samtökin, færa fréttir af akrinum, setja fram hugmyndir um kjara,-
mennta – og menningarmál. Kennarasambandið er tíu þúsund manna
heildarsamtök og kennarar eru áhrifamikil rödd í samfélaginu. Á því
leikur enginn vafi. Að frátöldu starfi með nemendum, foreldrum og
samstarfsmönnum sitja kennarar í sveitarstjórnum, nefndum og ráðum,
þeir skrifa greinar í blöð, skipuleggja ráðstefnur og fundi, gegna
stjórnunarstöðum hjá hinu opinbera og í einkageiranum og upplýsa
vini og ættingja um skólamál. Kennarasamband Íslands, summan af
einstaklingunum sem mynda það, er fjölbreytt og sterkt afl.
• Átak Landsvirkjunar til að ná augum og eyrum upprennandi liðs-
heildar ber vott um stórhug og hugmyndaauðgi. Hví skyldi fyrirtækið
ekki leita leiða til að afla fylgis? Það er ekki Landsvirkjunar að ganga
í berhögg við almenna viðskiptahætti og krefja sjálfa sig um siðferði.
Það er hlutverk okkar hinna. Almenningur, stjórnmálamenn, foreldrar
og kennarar eiga að mótmæla innrásum markaðsafla í skólastarf og
skilgreina með skýrum hætti aðskilnað skóla og fyrirtækja. Um er að
ræða eitt öflugasta fyrirtæki landsins sem stendur í einni umdeildustu
framkvæmd Íslandssögunnar, eins og Ólafur Páll Jónsson kallar Kára-
hnjúkavirkjun í grein í Netlu sem ber titilinn „Skólinn, börnin og
blýhólkurinn“. Ég hvet kennara til að lesa þessa grein, slóðin er netla.
khi.is/greinar/2005/013
• Hinn nýstofnaði Náttúruskóli er kynntur til sögunnar í þessari
Skólavörðu. Áhugi skólamanna á útivist og útikennslu fer vaxandi og
hlutverk Náttúruskólans verður fyrst og fremst að koma á samstarfi
milli þeirra sem sinna þessum þætti skólastarfs. Einnig að þróa nýjar
leiðir og fræðslu sem styðja kennara til að uppfylla þær kröfur sem
gerðar eru til umhverfismenntar og útikennslu í námskrá.
Kennaramenntun tekur miklum breytingum á næstu árum.
Þetta er eitt stærsta viðfangsefni kennarasamfélagsins um þessar
mundir. Kennaraháskólinn á hrós skilið fyrir að stefna beint að fimm
ára heildstæðu kennaranámi til meistaraprófs og koma fram með
jafnglæsilega stefnu og raunin er. Meira um þetta inni í blaðinu.
• Þrjátíu ár eru liðin síðan íslenskar konur breyttu heimssögunni
á kvennafrídegi sínum. Þegar þetta er skrifað er 24. október ekki
runninn upp en þá munu konur enn á ný ganga af vinnustöðum því
til áréttingar að launamunur og annað misrétti er enn við lýði, í okkar
fagra og annars ágæta landi á því herrans ári 2005.
Krístin Elfa Guðnadóttir
4
LEIÐARIEFNISYFIRLIT
FASTIR LIÐIR
SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 5. ÁRG. 2005
Ritstjóri: Kristín Elfa Guðnadóttir kristin@ki.is
Ábyrgðarmaður: Helgi E. Helgason helgi@ki.is
Umsjónarmaður félagatals: Sigríður Sveinsdóttir
sigridur@ki.is / sími 595 1115
Hönnun: Zetor ehf.
Ljósmyndir: Jón Svavarsson, nema annars sé getið
Forsíðumynd: Forsíðumyndin er af nýbökuðum
verðlaunahöfum í Nýsköpunarkeppninni 2005
Auglýsingar: Stella Kristinsdóttir
stella@ki.is / sími 595 1142 eða 867-8959
Prentun: Svansprent
Skólavarðan, s. 595 1118 (Kristín) og 595 1119 (Helgi).
Laufásvegi 81, 101 Reykjavík