Skólavarðan - 01.10.2005, Blaðsíða 12
SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 5. ÁRG. 2005
Í síðasta tölublaði skrifaði ég um
fæðingarorlof, en nú er ætlunin að taka
fyrir veikindarétt. Það er ekki óalgengt
að fólk velti lítið fyrir sér veikindarétti
sínum fyrr en á þarf að halda. Mig langar
að minnast á nokkur atriði sem mest er
spurt um hér hjá KÍ varðandi veikindi,
veikindi barna og langtímaveikindi
maka og barna.
Veikindaréttur miðast við starfsaldur og
verður mest 360 dagar eftir 18 ár í starfi.
Laun í veikindum eru þó ekki greidd
lengur en ráðningu er ætlað að standa.
Ef starfsmaður flytur sig milli skóla eða
sveitarfélaga flyst veikindaréttur með
viðkomandi. Til að geta flutt veikindarétt
með sér þarf starfsmaður að hafa unnið
einhvern tíma í 12 mánuði samfellt hjá
sama vinnuveitanda.
Ef starfsmaður verður óvinnufær vegna
veikinda eða slyss þarf að tilkynna það
yfirmanni þegar í stað sem svo ákveður
hvort læknisvottorðs skuli krafist og
hvort það skuli vera frá trúnaðarlækni
hlutaðeigandi stofnunar. Ef starfsmaður
er óvinnufær vegna veikinda eða slyss
um langan tíma verður viðkomandi að
endurnýja læknisvottorð sitt eftir nánari
ákvörðun yfirmanns en þó ekki sjaldnar
en mánaðarlega. Frá þessu má þó veita
undanþágu eftir tillögu trúnaðarlæknis ef
ljóst er að um lengri veikindafjarvist verði
að ræða.
Yfirmaður getur krafist vottorðs
hvenær sem er ef þörf þykir á og skiptir þá
ekki máli hvort heldur er skammtíma- eða
langtímaveikindi. Starfsmaður þarf aftur á
móti ekki að að gefa yfirmanni nákvæma
lýsingu á veikindum sínum þar sem yfir-
maður á rétt á að senda viðkomandi til
trúnaðarlæknis og fá vottorð ef þörf þykir
á. Rétt er að benda á að launagreiðandi
skal endurgreiða starfsmanni gjald vegna
læknisvottorða sem krafist er og einnig
gjald vegna viðtals hjá lækni til að afla
vottorðs.
Varðandi veikindi í sumarorlofi þá er
rétturinn mismunandi eftir því hvaða
félagi viðkomandi tilheyrir innan KÍ: Nái
grunnskólakennari ekki að nýta orlofsrétt
sinn (24, 27 eða 30 daga) á tímabilinu 15.
júní til 15. ágúst telst það sem á vantar
veikindi í orlofi. Veikist leikskólakennari í
orlofi telst sá tími, sem veikindum nemur,
ekki til orlofs, enda sanni hann með læknis-
vottorði að hann geti ekki notið orlofs.
Sé framhaldsskólakennari veikur í sumar-
hléi svo nemi einum mánuði eða lengri
tíma skal það, sem fram yfir er, skoðast
veikindi í orlofi allt að fullum orlofstíma.
Sé tónlistarkennari veikur á tímabilinu 1.
júní til 31. ágúst svo nemi einum mánuði
eða lengri tíma skal það, sem fram yfir
er, skoðast veikindi í orlofi allt að fullum
orlofstíma. Undir öllum kringumstæðum
skulu veikindi skýlaust sönnuð og vottorði
skilað svo fljótt sem auðið er.
Foreldrar barna yngri en 13 ára eiga
rétt á að vera frá vinnu í samtals 10
vinnudaga (80 vinnuskyldustundir m.v.
fullt starf) á hverju almanaksári og endur-
nýjast sá réttur um hver áramót. Ekki er
nauðsynlegt að taka þessa daga út í heilum
dögum heldur má taka út hálfa daga eða
jafnvel nýta nokkrar klukkustundir í senn.
Ekki eru greidd laun vegna langtíma-
veikinda maka en Sjúkrasjóður greiðir þó
12
Ingibjörg Úlfarsdóttir
launafulltrúi KÍ skrifar um: Veikindarétt
Ingibjörg hjá ki.is Ljósmynd: keg
sjúkradagpeninga vegna sjóðfélaga sem
verða fyrir tekjuskerðingu sem er afleiðing
alvarlegra langtímaveikinda maka eða
barna, enda hafi veikindin staðið í a.m.k.
þrjá mánuði.
Þess má geta að þeir sem fullnýta
veikindarétt sinn geta í framhaldinu sótt
um sjúkradagpeninga til Sjúkrasjóðs KÍ
sem greiðast í allt að 360 daga vegna
veikinda sjóðfélaga.
Í lokin langar mig að minna ykkur á
netfangið mitt ingibjorg@ki.is ef þið hafið
frekari spurningar um veikindarétt eða
annað.
Ingibjörg Úlfarsdóttir
Höfundur er launafulltrúi KÍ.
KJARAMÁL
Með því að kynna sér stöðu mála af eigin
raun og miðla nemendum sínum og
öðrum af reynslunni leggur maður sitt
af mörkum til friðar og friðaruppeldis.
Borgþór Kjærnested stendur fyrir ferð
til Palestínu og Ísrael um jólin og enn
eru laus sæti. Frést hefur af kennurum
sem ætla að slást í för með Borgþóri en
ferðin stendur yfir frá 22. desember til
2. janúar. Millilent er í Kaupmannahöfn
og Istanbúl á leiðinni til Jerúsalem. Á
aðfangadagskvöld er snætt í Betlehem
að afloknum fundi með friðarsamtökum
og messu. Ítarleg dagskrá liggur fyrir og
allar nánari upplýsingar gefur Borgþór
Kjærnested, borgtor@mmedia.is
Ferð til Palestínu og Ísrael um jólin
– laus sæti
Veggspjald af leikriti um málefni
Palestínu og Ísrael