Skólavarðan - 01.10.2005, Page 14
14
NÝSKÖPUNARKEPPNI
SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 5. ÁRG. 2005
Tvennt er öðru farsælla í uppbyggingu
og viðhaldi samfélagsins: Siðmennt og
sköpun. Í íslensku skólastarfi er báðum
þáttum sinnt en skórinn kreppir hvað
varðar sköpunarþáttinn sem gjarnan er
settur undir hatt „sérverkefna“ og fær
lítinn sess í samræmdum prófum.
Leikskólar og tónlistarskólar búa að hefð
og hugmyndafræði sem veldur því að
sköpunin verður síður útundan en jafnt þar
sem á öðrum vígstöðvum þurfa kennarar
þó að standa vörð um skapandi hugsun
meðan samfélagið siglir hraðbyri í hina
áttina, til sífellt meiri mötunar. Af þessum
sökum er uppgangur nýsköpunarkeppni
grunnskólanemenda svo gleðilegur. Það
er kannski ofmælt að kalla hana ljós í
myrkrinu en hún minnir okkur reglulega
á að sköpunaraflið er nokkuð sem við
verðum að virkja og halda í heiðri.
Verðlaunaafhending vegna keppninnar
á þessu ári fór fram í Vetrargarðinum
í Smáralind í Kópavogi sunnudaginn
2. október sl. Forseti Íslands, hr. Ólafur
Ragnar Grímsson, afhenti verðlaunin ásamt
því að opna sýningu á hugmyndunum
úr keppninni og opna vefinn fyrir næstu
keppni. Þetta var í 14. sinn sem keppnin
var haldin og inn komu 1994 hugmyndir
frá 40 skólum. Alls tóku 1328 börn þátt
í keppninni, 696 stúlkur og 632 drengir.
Flestar hugmyndir komu frá Foldaskóla,
síðan Hafnarskóla á Hornafirði og Lækjar-
skóla í Hafnarfirði.
Hugmyndir voru flokkaðar eftir
bekkjum og dreifðust svona:
3. bekkur 33 hugmyndir
4. bekkur 125 hugmyndir
5. bekkur 676 hugmyndir
6. bekkur 417 hugmyndir
7. bekkur 334 hugmyndir
8. bekkur 118 hugmyndir
9. bekkur 29 hugmyndir
10.bekkur 24 hugmyndir
Lögð er áhersla á að allar hugmyndir
barnanna séu sendar í keppnina og metnar
af fagaðilum í matsnefnd hennar. Eitthvað
hefur borið á því að skólar hafi einungis
sent inn hugmyndir sem viðkomandi
kennurum fannst góðar eða hæfar.
Verðlaunaflokkar voru fjórir: Uppfinn-
ingar, hugbúnaður, útlits- og formhönnun
og loks þemaverkefni, en sá flokkur var
að frumkvæði Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar og liður í lífsleikninámskeiðinu
Geimálfurinn frá Varslys sem ætlað er 4.,
5. og 6. bekk. Verkefnið fólst í að börn
unnu hugmyndir út frá slysavörnum. Af
innsendum hugmyndum voru 58 frá 19
skólum tengd þessu þemaverkefni.
Að loknu mati á hugmyndum voru 56
þeirra valdar úr og hugmyndasmiðum
gefinn kostur á að vinna þær frekar í
vinnusmiðjum í Foldaskóla dagana 10.-
11.september. Að því loknu valdi verð-
launanefnd hugmyndir fyrir 1., 2. og 3.
sæti í fjórum flokkum keppninnar.
Kynning á næstu keppni er að hefjast
og verða gögn send til allra grunnskóla.
Þeir sem vilja fá aðstoð við framkvæmdina
eða frekari upplýsingar hafi samband við:
Elínu Maríu Björnsdóttur s. 590-3100
elin@sjalandsskoli.is
Umsóknarfrestur er til 24. mars 2006 og
fyrirspurnir sendist á nkg@sjalandsskoli.is
Vefur keppninnar er hýstur á www.nkg.is
Ekki er öllu lokið þótt hugmynd hafi
unnið til verðlauna. Hópur manna á vegum
keppninnar vinnur að því í sjálfboðavinnu
að fleyta völdum hugmyndum áfram og
vonast er til að að árangur náist fljótlega.
Þess má geta að þessi þáttur tilheyrir ekki
sjálfri keppninni. Um þessar mundir eru
viðræður í gangi við aðila í Svíþjóð um
að fá stórt og þekkt fyrirtæki til að koma
einni til tveimur hugmyndum barna í sölu
árlega. Börn frá þeim Norðurlöndum sem
halda nýsköpunarkeppni eiga möguleika
á að fá hugmynd sína framleidda ef þetta
gengur eftir.
Keppnin heitir fullu nafni Nýsköpunar-
keppni grunnskólanemenda og Marel.
Fyrirtækið Marel hf. kom inn sem aðal-
styrktaraðili keppninnar fyrir ári. Það
er fagnaðarefni að fyrirtæki skuli sjá sér
hag í því að styrkja nýsköpunarstarf með
fjárframlögum án annarra skuldbindinga
en að nafns þess sé getið. Afrakstur
keppninnar á ugglaust eftir að koma
íslensku atvinnulífi og fyrirtækjum til
góða þegar fram líða stundir og frekar
fyrr en síðar.
keg
VERÐLAUNAHAFAR ÁRIÐ 2005
Uppfinningar:
1.sæti
Hjólagrind með lás - Foldaskóli
Þórey Birgisdóttir 5. bekk.
Linda Steinarsdóttir 5. bekk.
2.sæti
Ofnhanki - Melaskóli
Hrönn Guðmundsdóttir 6. bekk.
3.sæti
Rósaþyrnaskeri - Hjallaskóli
Ivan Titov 6. bekk.
3.sæti
Hljóðdeyfisogskálar fyrir borvélar
– Víkurskóli
Hjördís L Hlíðberg 5. bekk.
Hugbúnaður:
1.sæti
Puttamús – Hvolsskóli
Hrafn Sigurðsson 7. bekk.
2.sæti
Nafnaleikurinn – Melaskóli
Guðrún María Johnsson 6. bekk.
3.sæti
Hljóðkjuðar – Grunnskóli Húnaþings
vestra
Grétar Þór Bjarnason 7. bekk.
Nýsköpunarkeppni 2005 lokið og sú næsta að hefjast
Verðlaun veitt fyrir nýsköpun
Útlits- og formhönnun:
1.sæti
Gítarhótel – Hvassaleitisskóli
Jóhann Einarsson 9. bekk.
Ólafur Freyr Gíslason 9. bekk.
2.sæti
Hringsmekkur – Víðistaðaskóli
Iðunn Björk Ragnarsdóttir 5. bekk.
3.sæti
Könnuhellarinn – Flúðaskóli
Jóhanna Ýr Bjarnadóttir 7. bekk.
3.sæti
Sundferðateljari - Selásskóli
Helga Maren 5. bekk.
Þemaverkefni:
1.sæti
Ljósahjálmur – Hjallaskóli
Embla Ísabella Pearl Róbertsdóttir 6. bekk.
2.sæti
Sætisbeltaskynjari – Setbergskóli
Fanney Þóra Þórsdóttir 5. bekk.
3.sæti
Hjaralás – Grunnskóli Húnaþings vestra
Stefán Freyr Halldórsson 6. bekk.