Skólavarðan - 01.10.2005, Qupperneq 17
17
eTwinning er ein af fjórum undir-
áætlunum eLearning menntaáætlunar
Evrópusambandsins. Henni er ætlað að
gefa ungu fólki í Evrópu á aldrinum 12-20
ára aukin tækifæri til náms með rafrænu
samstarfi milli grunn- og framhaldsskóla
í Evrópu. Markmið eTwinning er, líkt
og í Sókrates áætluninni, að auka
hreyfanleika fólks innan Evrópu, bæta
tungumálakunnáttu, styrkja menningar-
tengsl og koma á tengslum milli landa
og menntastofnana. Fyrir kennara er
eTwinning leið til að efla gagnvirkar og
fjölbreyttar kennsluaðferðir. Fyrir jafnt
kennara sem nemendur er þetta aðferð
til að komast í bein og óhindruð kynni
við fólk af öðru þjóðerni og uppruna.
Í eTwinning geta nemendur og kennarar
komið á samvinnu við aðra skóla í Evrópu
um námsverkefni sem tengjast námsefni
skólanna. Algengasta form eTwinning
samstarfs er á milli tveggja skóla en engar
hömlur eru á því hversu margir skólar geti
verið í samstarfi á sama tíma. Verkefnin
geta verið að stærð, umfangi og hraða
eins og hentar hverjum og einum. Eina
skilyrðið er að verkefnið falli að uppeldis-
og kennslufræðilegum markmiðum
skólans og taki til þátta á borð við
fjöltyngi og fjölmenningu í evrópsku
sam-hengi. Þannig er hægt að byrja með
lítil og þægileg verkefni sem síðan er
hægt að víkka út þegar á líður eftir því
sem hverjum og einum hentar. Slíkt er
samkomulag milli samstarfsskólanna.
Verkefnin geta verið á sviði tungumála,
samfélagsfræði, landafræði, sagnfræði,
stærðfræði, eðlisfræði, líffræði, o.s.frv.
Einnig er hægt að vinna fleiri en eitt
verkefni ásamt þverfaglegum verkefnum
sem nýtast í mörgum kennslufögum. Sam-
starfið getur einnig leitt til frekari tengsla
við samstarfsskólann og þannig orðið til
stöðugt og gagnvirkt vinaskólasamband
sem gagnast báðum aðilum. Hægt er að
byggja á þeirri reynslu sem margir skólar
hafa þegar aflað sér með þátttöku í
öðrum áætlunum. Reynslan af eTwinning
getur einnig auðveldað þátttöku víðar,
eins og til dæmis í Sókrates-Comenius og
Nordplus Junior.
eTwinning áætlunin býður kennurum
og nemendum upp á marga kosti, svo sem
margmiðlunartækni til að gera kennsluna
fjölbreyttari og nemendur virkari.
Áætlunin gerir fólki kleift að komast í
samband við önnur evrópsk samfélög og
menningu og eykur tungumálakunnáttu
nemenda og kennara. Kennslan verður
skemmtilegri og fjölbreyttari en ella og
dýpkar skilning og þekkingu þátttakenda
á lífi fólks í Evrópu.
Verkefni, ráðgjöf og samkeppni
Nokkrir íslenskir skólar hafa nú þegar
tekið þátt í eTwinning.
• Samstarf um verkefnið Water Babies
er milli Víkurskóla í Reykjavík og IES A. J.
Cavanilles skólans á Spáni en það fjallar
um líf ungs fólks á Íslandi og Spáni og
upplifun þess á eigin samfélagi. Verkefnið
var einfalt í upphafi en var í lokin farið
að teygja anga sína út í aðra þætti
skólastarfsins.
• Water & Fire kallast verkefni á vegum
Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu og
Kolcsey Ferenc Gimnazium í Ungverjalandi
sem fjallar um nýtingu jarðvarma, samfélag
og menningu og líf ungs fólks í löndunum
tveimur. Verkefnið hefur gengið vel og
á vetri komanda munu þátttakendur
heimsækja skóla hvor annars.
• The Image of the Other er unnið af
Flensborgarskóla í Hafnarfirði og Länsi-
Lapin Ammatti-Instituutti í Finnlandi,
en það er verkefni sem nýtir sér kosti
margmiðlunartækni til að varpa ljósi á sýn
nemenda á hver annan. Hefur vinnan við
það verkefni gengið mjög vel og vakið
eTwinning á Íslandi
eTwinning áætlunin var formlega opnuð í Brussel í Belgíu 14.-16. janúar 2005
og var meira en 300 kennurum og sérfræðingum á kennslusviði í Evrópu
boðið á opnunarhátíðina. Fyrir hönd Íslands voru (frá vinstri til hægri) Hjördís
Skírnisdóttir frá Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu, Jónas Helgason
frá Menntaskólanum á Akureyri, Baldur A. Sigurvinsson frá Alþjóðaskrifstofu
háskólastigsins, Ágústa Bárðardóttir frá Víkurskóla í Reykjavík, Guðrún Á.
Guðmundsdóttir frá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði, Kristín Jónsdóttir frá
Langholtsskóla í Reykjavík og Sigurður Sigursveinsson frá Fjölbrautarskóla
Suðurlands á Selfossi.
MENNTAÁÆTLUN ES
Lj
ós
m
yn
d
fr
á
Ba
ld
ri
A
S
ig
ur
vi
nn
ss
yn
i