Skólavarðan - 01.10.2005, Síða 28
28
NÁMSEFNI
SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 5. ÁRG. 2005
Verkefnabókin Áfram, áfram, áfram
íslenska! – Dropar brosandi orða fyrir
þyrsta málnotendur kom út í byrjun
hausts og er þegar komin í notkun víða
um land, enda þörfin brýn. Um er að
ræða 100 verkefni í íslensku fyrir þá sem
hafa íslensku sem annað tungumál.
Leitast er við að virkja nemendur til
sjálfsmats á námi sínu og eru í því skyni
birtar lausnir í bókinni og aðferðir til þess
að meta rétt og röng svör. Bókin er hugsuð
til notkunar í efstu bekkjum grunnskóla
og í framhaldsskóla. Að sögn höfundar,
Gunnars Þorra framhaldsskólakennara í
Vestmannaeyjum, er framhald væntanlegt
á næsta ári. Bókinni fylgja glærur, leikir,
leiðbeiningar, hljóðskrár og fleira sem
notendur geta einnig hlaðið inn á tölvu af
vef höfundar og breytt að vild, en glærur
á vef eru sumar ítarlegri en í bókinni og
með gagnvirkum æfingum. Slóðin er
www.ismennt.is/not/thorri/
„Kennarar hafa sjaldnast verið höfundar
að breytingum á skólastarfi þrátt
fyrir að þeim sé ætlað að fylgja þeim
eftir,“ segir í nýútkominni bók sem
ber titilinn Fagleg kennsla í fyrirrúmi
og er eftir þær Hafdísi Guðjónsdóttur,
Matthildi Guðmundsdóttur og Árdísi
Ívardsdóttur.
Höfundar hafa margháttaða reynslu af
skólastarfi; grunnskólakennslu, nám-
skeiðahaldi, kennsluráðgjöf, rannsóknum
og leiðsögn kennaranema ásamt fleiru.
„Kennarar búa yfir mörgum frábærum
hugmyndum en minnst af þeim er til
skráð,“ segir í formála og höfundar, með
aðstoð annarra kennara, leggja hér með
sitt af mörkum til að bæta úr skortinum.
Bókin er ætluð öllum sem hafa áhuga á
skólamálum og kennslu en ekki síst þeim
sem starfa með börnum á aldrinum fimm
til níu ára.
Í inngangi er efni bókarinnar lýst svo:
„Megininnihald bókarinnar er hagnýt
kennslufræðileg ráðgjöf og hugmyndir
fyrir kennara og kennaranema sem kenna
á byrjendastigi grunnskólans. Við leggjum
áherslu á að stöðugleiki og samkvæmni
eru lykilatriði að árangursríku skipulagi.
Bekkjarstjórnun er skipulag og stjórnun á
Íslenska sem annað tungumál
Efnisyfirlit er í grófum dráttum eftir-
farandi:
1. Leikir, bingó, setja rétt orð í rétta
kassa.
2. Stafróf, framburður hljóða, orða og
setninga á íslensku.
3. Tölur, raðtölur, litlar og stórar tölur.
Hvað er klukkan? Peningar.
4. Líkami, föt, heimili, vinna og umhverfi,
margræð orð, andheiti og samheiti.
5. Persónufornöfn. Fjölbreyttar æfingar.
6. Tjáning í skóla, frasar, orðasambönd og
spurningar. Algeng sagnorð.
7. Ákveðinn greinir. Margar æfingar.
8. Sagnorð og spurningar. Margvíslegar
æfingar.
Áhugasamir geta pantað bókina og
fengið nánari upplýsingar með því
að senda tölvupóst til Gunnars Þorra:
thorri@ismennt.is
keg
bekkjarumhverfinu þannig að aðstæður
skapist til að kennsla og nám geti farið
fram. Umsjónarkennari ber ábyrgð á að
móta og hlúa að góðum bekkjaranda.
Þetta er starf kennarans í hnotskurn. Við
leggjum áherslu á þau málefni sem kennar-
inn þarf að hafa í huga við skipulagningu
kennslunnar þannig að komið sé í veg
fyrir ýmiss konar vanda og að tækifæri
til að læra sé í hámarki. Kennarar þurfa
að þekkja og nota fjölbreyttar kennslu-
og námsmatsaðferðir sem taka tillit til
margbreytilegra hæfileika nemenda,
persónuleika þeirra og mismunandi vinnu-
bragða og vinnuhraða. Um þessa þætti
fjöllum við í handbókinni.“
Meðal annars er fjallað um:
• Einstaklingsmiðað nám og kennslu
• Námsumhverfi og bekkjarstjórn
• Samvirkt nám sem byggir á samvinnu og
ábyrgð einstaklingsins
• Ýmsar hugmyndir að námsmati
• Samstarf kennara og foreldra
• Kennsluáætlanir þar sem komið er til
móts við fjölbreytta kennarahópa
Fagleg kennsla í fyrirrúmi er til sölu í Bóksölu
kennaranema í KHÍ, Bóksölu stúdenta
í HÍ og Skólavörubúðinni. Nánari upp-
lýsingar gefa höfundar; Árdís Ívarsdóttir
ardis@borgaskoli.is, Hafdís Guðjónsdóttir
hafgud@khi.is og Matthildur Guðmunds-
dóttir mattgud@simnet.is
keg
Nýútkomin og hagnýt
Höfundar bókarinnar
Fagleg kennsla í fyrirrúmi
Lj
ós
m
yn
d
fr
á
hö
fu
nd
um