Skólavarðan - 01.08.2006, Page 3
3
FORMANNSPISTILL
SKÓLAVARÐAN 5.TBL. 6. ÁRG. 2006
Þegar nýir herrar taka við völdum verða gjarnan breytingar. Þetta
á til dæmis við þegar nýir forstjórar taka við fyrirtækjum, nýir
skólastjórar taka við skólum og þegar nýir meirihlutar komast til
valda í sveitarstjórnum. Sumar breytingar eru af hinu góða og
vekja ánægju starfsmanna og þeirra sem í hlut eiga, aðrar síður
skynsamlegar og þar af leiðandi umdeilanlegar.
Í aðdraganda síðustu sveitarstjórnakosninga voru leikskólamál
töluvert í brennidepli. Rætt var um skólagjöld, einstaklingsmiðað
nám, samstarf og tengsl skólastiga. Þetta, ásamt fleiru, var
til umræðu á opnum fundi sem Reykjavíkurdeild Félags
leikskólakennara boðaði til með fulltrúum stjórnmálaflokka í
Reykjavík skömmu fyrir kosningar. Hvorki þar né annars staðar
komu fram hugmyndir um að kljúfa leikskólann frá skólakerfinu
með þeim hætti sem nú er verið að gera í Reykjavík.
Skipta á menntasviði upp í tvö aðskilin svið og endurvekja
með því leikskólaráð, en fyrir rúmu ári voru fræðsluráð og
leikskólaráð sameinuð í menntaráð og Leikskólar Reykjavíkur og
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur sameinuð í Menntasvið Reykjavíkur.
Það var talið framfaraskref og liður í því að líta á menntun barna
allt frá leikskóla sem heildstætt ferli. Eitt svið og eitt ráð með
aðkomu foreldra, kennara og skólastjóra á báðum skólastigum
átti að skapa umgjörð um málaflokkinn og tryggja öflugt
samstarf skólastiganna og faglega umræðu um menntun barna
og kennsluaðferðir á mótum skólastiga.
LEIKSKÓLINN Í STJÓRNKERFINU
- afturför í Reykjavík
Björg Bjarnadóttir
Síðastliðin ár hafa æ fleiri sveitarfélög sameinað málaflokka
leik- og grunnskóla til að undirstrika þessa sýn og tengja með
því leik- og grunnskóla betur. Menntamálaráðherra hefur
undanfarin misseri unnið að því með markvissum hætti að
setja leikskólann við hlið grunnskólans og horfa á menntaferli
barnsins og skólaumhverfið sem heild. Þessi breyting kemur því
eins og þruma úr heiðskíru lofti og málsmeðferðin og sá flýtir
sem viðhafður er, eru með öllu óskiljanleg.
Það er ótrúlegt ef það er einlægur vilji meirihlutans í Reykjavík
að aðskilja leikskólann frá öðrum hlutum menntakerfisins og
einangra hann með því. Einu rökin sem fram hafa komið eru að
málaflokkurinn sé of umfangsmikill. Varla eru það nægjanleg
rök, fagleg eða rekstrarleg, til að réttlæta þessa breytingu. Það
læðist því óneitanlega að manni sá grunur að verið sé að fjölga
formannsstólum enda bítast menn um slíka stóla. Ef sú er raunin
er það miður og sýnir í raun lítilsvirðingu í garð leikskólans þar
sem faglegum hagsmunum og framtíðarsýn er fórnað í pólitískum
slag.
Það er skoðun mín að þetta sé skref afturábak og endurspegli
gamaldags hugsunarhátt sem er sem betur fer víðast á undanhaldi.
Ég tel að meirihluti leikskólakennara og leikskólastjóra í Reykjavík
hafi ekki átt von á því að búið væri að gera þessa róttæku
breytingu í skjóli sumarleyfa þegar fólk kom úr fríi og án þess að
fá tækifæri til að láta álit sitt í ljós. Hvar er faglegur metnaður,
lýðræðið og samstarf við þá fagaðila sem málið varðar? Spyr sá
sem ekki veit.
Björg Bjarnadóttir
Það er ótrúlegt ef það er einlægur
vilji meirihlutans í Reykjavík að
aðskilja leikskólann frá öðrum
hlutum menntakerfisins og einangra
hann með því.