Skólavarðan - 01.08.2006, Blaðsíða 14
14
FÉLAG TÓNLISTARSKÓLAKENNARA
SKÓLAVARÐAN 5.TBL. 6. ÁRG. 2006
Um þessar mundir er það einkum
tvennt sem ber hæst í starfsemi Félags
tónlistarskólakennara. Annars vegar
yfirstandandi kjarasamningaviðræður
og hins vegar svæðisþing tónlistarskóla
sem haldin verða á fyrstu vikum
skólaársins sem nú fer í hönd.
KJARASAMNINGAVIÐRÆÐUR
Samninganefndir Félags tónlistarskóla-
kennara, Félags íslenskra hljómlistarmanna
og Launanefndar sveitarfélaga undirrituðu
viðræðuáætlun 8. júní sl. vegna yfir-
standandi kjarasamningaviðræðna, en þar
kemur m.a. fram að stefnt er að undirritun
nýs kjarasamnings áður en gildistími
núgildandi kjarasamnings aðila rennur út,
þ.e. 30. september 2006.
• Samninganefnd Launanefndar sveitar-
félaga skipa: Birgir Björn Sigurjónsson,
Guðrún Ósk Sigurjónsdóttir og Kristinn
Kristjánsson.
• Í samninganefnd FT sitja: Sigrún
Grendal Jóhannesdóttir, Árni Sigur-
bjarnarson, Jón Hrólfur Sigurjónsson,
Jón Sigurðsson, Kristjana Helgadóttir,
Ólafur Flosason, Sigurður Sævarsson,
Sæmundur Rúnar Þórisson og Vilberg
Viggósson.
• Samninganefnd FÍH skipa: Björn Th.
Árnason, Björk Jónsdóttir, Edward
Fredriksen, Snorri Örn Snorrason,
Jón Aðalsteinn Þorgeirsson, Matthias
Hemstock, Örnólfur Kristinsson og
Ásdís Arnardóttir.
Þrír úr samninganefnd FT og jafnmargir
frá FÍH skipa síðan viðræðunefnd sem
fundar með samninganefnd Launanefndar
sveitarfélaga en öll samninganefndin
kemur saman svo oft sem þurfa þykir til
að taka ákvarðanir í öllum stærri málum
og til að leggja viðræðunefndinni línur.
Á vordögum fengu allir félagsmenn
sent bréf með drögum að helstu áherslum
FT og FÍH í samningaviðræðunum en þau
byggjast að mestu á áhersluatriðum sem
lögð voru fram árið 2004. Eins og sumir
muna þá náði sá kjarasamningur, sem
hafði gildistímann tvö ár, nær einungis til
launatengdra atriða en kerfislegir þættir
og aðrar breytingar á kjarasamningi voru
látnar bíða þar til nú tæpum tveimur árum
síðar.
Í fyrrnefndu bréfi kom fram að nú
sem fyrr er byggt á könnunum sem
gerðar hafa verið meðal félagsmanna.
Tvær kannanir voru gerðar á árinu,
önnur meðal skólastjórnenda og hin
meðal trúnaðarmanna, en jafnframt
hafa samninganefndir FT og FÍH kjara-
málakönnunina sem lögð var fyrir alla
félagsmenn árið 2004 til hliðsjónar við
samningavinnuna. Þá voru félagsmenn
hvattir til að koma með ábendingar
og athugasemdir í vor en með þessu
móti reynum við að endurspegla vilja
félagsmanna sem best við kjarasamnings-
gerðina.
Samningsaðilar funda nú að jafnaði
tvisvar í viku og var fyrsti fundur að loknum
sumarfríum haldinn þann 14. ágúst.
SVÆÐISÞING TÓNLISTARSKÓLA
Svæðisþing tónlistarskóla eru nú haldin í
fjórða sinn en þau eru haldin í samvinnu
Félags tónlistarskólakennara, Félags
íslenskra hljómlistarmanna og Samtaka
tónlistarskólastjóra.
Þingin verða haldin á eftirtöldum stöðum:
• Á Hótel Stykkishólmi fyrir Vesturland
og Vestfirði þriðjudaginn 29. ágúst.
• Á Hótel KEA, Akureyri, fyrir Norður-
og Austurland föstudaginn 15.
september.
• Í Reykjavík, Tónlistarskóla FÍH, fyrir
Suðurland, Suðurnes og höfuðborgar-
svæðið föstudaginn 22. september.
DAGSKRÁRLIÐIR:
UMRÆÐUR UM REYNSLUNA AF
PRÓFANEFND TÓNLISTARSKÓLA
Framsöguerindi flytja:
• Fulltrúar í ritstjórn greinanámskráa
aðalnámskrár tónlistarskóla: Kristín
Stefánsdóttir formaður og starfsmaður
prófanefndar og aðstoðarskólastjóri
Tónlistarskóla Kópavogs og Sigurður
Flosason tónlistarmaður og aðstoðar-
skólastjóri Tónlistarskóla FÍH.
• Einn skólastjóri tónlistarskóla á hverju
svæðisþingi fyrir sig: Haraldur Árni
Haraldsson skólastjóri Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar, Lárus Sighvatsson
skólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi,
varðandi framsöguerindi á Akureyri er
nafn enn óstaðfest.
Fyrirspurnir og umræður – flytjendur
framsöguerinda sitja í pallborði.
KYNNING Á NÝJU SAMSTARFSVERKEFNI
UM KENNARA- OG SKÓLASTJÓRASKIPTI Á
NORÐURLÖNDUM
Vilberg Viggósson, skólastjóri Tónskólans
Do Re Mí, kynnir nýtt samstarfsverkefni
á vegum NUMU, sem eru Norræn samtök
tónlistaruppalenda, um kennara og skóla-
stjóraskipti á Norðurlöndum.
Fyrirspurnir.
PÆLINGAR UM SVEIGJANLEIKA OG
FJÖLBREYTNI Í TÓNLISTARKENNSLU
• Kennsla yngri barna
• Tónlistarkennsla/kennslu-
fræði fullorðinna
• Einstaklingskennsla
• Hópkennsla
EINSTAKLINGSMIÐAÐ NÁM?
Framsöguerindi flytja:
Árni Sigurbjarnarson varaformaður
Félags tónlistarskólakennara og skóla-
stjóri Tónlistarskóla Húsavíkur og Jón
Hrólfur Sigurjónsson tónlistarkennari
og formaður skólamálanefndar Félags
tónlistarskólakennara.
Á hverju þingi verða fengnir þrír
skólastjórar til að gera grein fyrir fjöl-
breytileika í tónlistarkennslu í sínum skóla.
Umræður.
STAÐAN Í KJARASAMNINGA-
VIÐRÆÐUM FT/FÍH OG LN
Í lok þinganna verður fundur um samn-
ingamálin þar sem Björn Th. Árnason
formaður Félags íslenskra hljómlistar-
manna og Sigrún Grendal formaður
Félags tónlistarskólakennara fara yfir
stöðu mála.
frá félagi tónlistarskólakennara
FRÉTTIR