Skólavarðan - 01.08.2006, Qupperneq 16
16
NORSKIR LEIKSKÓLAR
SKÓLAVARÐAN 5.TBL. 6. ÁRG. 2006
Dagana 20. til 24. apríl sl. lögðu allir
starfsmenn leikskólans Bergheima í
Þorlákshöfn, 21 talsins, land undir fót
og fóru í námsferð til Noregs. Ákveðið
var að heimsækja leikskóla sem ynnu
með útivist, fjölmenningu og tónlist
auk þess að stofna til vinasambands
við leikskóla í Rygge sem er rétt utan
við Osló, en Rygge er einn af fjórum
vinabæjum Ölfuss.
Í Rygge fengum við höfðinglegar mót-
tökur hjá bæjarstjóra, Aud Kristin Löken,
starfsfólki sveitarfélagsins og fulltrúum
Norræna félagsins. Vinasamband var
stofnað við leikskólann Öreåsen sem
starfar eftir þeirri hugsjón að vera „hinn
góði leikskóli“ og er unnið með alla
þroskaþætti barnsins í gegnum listgreinar.
Þar eru notuð leikföng sem eru búin til
úr náttúrulegu efni. Sögur og upplifun
eru teknar og unnið með þær áfram, til
dæmis með því að setja upp leiksýningar
og/eða mála myndir um ákveðin atriði úr
sögunni.
Við höfum skuldbundið okkur til að
halda sambandi við leikskólann Öreåsen
bæði í gegnum börnin og starfsfólkið. Við
munum hefja leikinn með því að senda
þeim pakka um okkur í máli og myndum
og síðan höfum við áhuga á því að koma
upp vefmyndavél og sjá hvernig slíkt
kemur út. Starfsfólk kemur til með nota
tölvupóst sín á milli til að undirbúa og
ákveða hvernig framhaldið verður. Þess
má geta að næsta sumar verður haldið
vinabæjamót í Þorlákshöfn og fulltrúar
Norræna félagsins hvöttu starfsfólk
Öreåsen til að koma með í þá ferð til að
endurgjalda heimsóknina.
Það stendur til að byggja nýjan leikskóla
en að sögn heimamanna var þessi bæði
orðinn gamall, 26 ára, og lítill en við
upplifðum hann notalegan, hæfi lega
stóran og barnvænan.
Við heimsóttum einnig grunnskóla í
Rygge, þ.á m. Vang skólann sem rekur
sérdeild fyrir mikið fötluð börn af miklum
sóma og er svo komið að fólk fl yst til
Rygge til að geta komið börnum sínum að.
Aðbúnaður var mjög góður, hjálpartæki
og húsnæði allt af nýjustu gerð og fagfólk
í öllum stöðum, en tveir til þrír starfsmenn
voru um hvert barn.
Frístundaheimilin sem við fórum í líktust
mjög því sem við þekkjum hér heima,
mörg börn, allir að koma og fara. Mestan
áhuga höfðum við á að vita hvernig
hefði gengið að taka sex ára börnin inn
í grunnskólann, en áður voru þau sjö ára
þegar þau byrjuðu í skóla. Ekki reyndist
hægt að fá upplýsingar um það en einhver
misskilningur var á ferðinni um hvað við
vildum og fengum við í staðinn að skoða
aðbúnað, stofur og ganga í metravís.
Áætlað að fjölga karlkyns
starfsfólki í 30%
Í Osló heimsóttum við tvo leikskóla, Dumpa
og Rudshögda, sem reknir eru af Kanvas
sem er einkafyrirtæki. Kanvas rekur 34
leikskóla í fi mm sveitarfélögum með um
500 starfsmenn og 2000 börn. Við urðum
varar við í það Danmörku fyrir tveimur
árum að kröfur og skyldur einkarekinna
leikskóla um námsviðmið, aðbúnað og
fjölda barna voru ólíkt meiri en á leik-
skólum sveitarfélaganna og því lék okkur
forvitni á að vita hvort þetta væri eins í
Noregi. Í ljós kom að þar er ekki munur
á einkareknum leikskólum og leikskólum
sem sveitarfélögin reka. Launin eru eins
og miðað er við sömu kjarasamninga.
Það er m.a. í framtíðaráætlun Kanvas að
fjölga karlkyns starfsfólki í 30% hlutfall
en karlmennirnir eru ekki nógu margir
eins og er. Leikskólarnir vinna innra
gæðamat (líkt og Ecers gæðakvarðinn
hjá okkur) þar sem starfsfólk spyr sig
um starfi ð, hvernig talað er við börnin,
foreldra og hvernig starfsfólk talar hvert
við annað. Þannig keppa leikskólarnir hjá
fyrirtækinu innbyrðis um eftirsóknarverð
gæðaverðlaun.
Stafræn myndavél á hverri deild
Leikskólinn Rudshögda Naturbarnehage
er fjölmenningarlegur náttúruleikskóli.
Um 50% barnanna eru norsk en einnig
dvelja þar börn frá Tyrklandi, Pakistan og
Sri Lanka.
Það er mikið verið úti og skógurinn
og næsta nágrenni eru mikið notuð, á
dimmasta tímanum er svæðið lýst upp
með ljósum í trjánum og stundum fá
börnin vasaljós og ljós á höfuðið líkt og
námumenn.
Börnin fá morgunverð í leikskólanum
MIKILL FAGLEGUR ÁRANGUR
HLÝST AF NÁMSFERÐUM
Undir norska og íslenska
fánanum í leikskólanum
Öreåsen í Rygge.
Lj
ó
sm
yn
d
ir
f
rá
h
ö
fu
n
d
u
m