Skólavarðan - 01.08.2006, Qupperneq 30
30
SKÓLAVARÐAN 5.TBL. 6. ÁRG. 2006
Ómar Árnason framkvæmdastjóri Félags
framhaldsskólakennara lætur af störfum
1. september nk. vegna aldurs. Oddur
S. Jakobsson framhaldsskólakennari við
Kvennaskólann í Reykjavík hefur verið
ráðinn í 50% starf hjá félaginu sem fulltrúi
frá 1. ágúst sl. Oddur var í samninganefnd
FF á starfstímabili síðustu stjórnar. Hann
mun sinna aðstoð og ráðgjöf við stjórn og
samninganefnd við framkvæmd, túlkun
og þróun kjarasamninga, kannanir á
launaþróun í framhaldsskólum með
samanburði við launaþróun innan annarra
heildarsamtaka opinberra starfsmanna
og á almennum vinnumarkaði, stefnu-
mótun og undirbúning við gerð kjara-
samninga. Oddur vinnur nú að úttekt á
stofnanasamningnum framhaldsskólanna
sem verður kynnt þegar hún liggur fyrir.
Er Oddur boðinn velkominn til starfa.
Ómari er þakkað fyrir allt hans mikla
starf í þágu félagssamtaka kennara og
kennarastéttarinnar um áratugaskeið.
Hans verður sárt saknað.
Breytingar á erindrekstri
Aðalfundur Félags framhaldsskólakennara
2005 samþykkti að ráða erindreka í
25% starf til að rækta sambandið við
félagsmenn. Haukur Már Haraldsson
varaformaður FF gegndi því starfi sl.
geti líka þróað eftir eigin leiðum samstarf
við þá háskóla og einstakar deildir sem
nám þeirra miðar að.
Hvað svo?
Starfsnámsnefndin hóf störf skömmu
áður en 10 punkta samkomulag KÍ og
menntamálaráðherra kom til í byrjun
febrúar sl. en þar er m.a. kveðið á um
að efl a verk- og starfsnám í grunn- og
framhaldsskólum, einfalda skipulagið
og auka aðsókn í námið. Í greinargerð
verkefnisstjórnar KÍ og menntamála-
ráðuneytis um útfærslu á 10 punkta
samkomulaginu í apríl sl. segir að skýrsla
starfsnámsnefndar fari til umfjöllunar
vetur. Á þeim tíma heimsótti hann lang-
fl esta framhaldsskóla landsins og hélt
fundi með stjórnum kennarafélaga,
fulltrúum kennara í samstarfsnefndum
og trúnaðarmönnum á hverjum stað.
Fundarefni voru nánast öll þau atriði
sem snerta samskipti kennarafélaga og
FF, starfsumhverfi trúnaðarmanna og
samstarfsnefnda. Ekki var gert ráð fyrir
að erindreki leysti vandamál á staðnum
heldur tæki þau með sér og kynnti þau fyrir
stjórn félagsins og framkvæmdastjóra til
nánari meðferðar eftir atvikum. Fundirnir
voru ekki síður hugsaðir sem kynning fyrir
félagsmenn á þessum nýja þætti í starfi
félagsins. Í heild hefur erindreksturinn
gengið mjög vel og almenn ánægja með
hann. Haukur Már hefur óskað eftir að láta
af starfi sem erindreki og því verða gerðar
breytingar á fyrirkomulagi erindrekstursins
næsta vetur til reynslu, með þeim hætti að
hver fulltrúi í stjórn félagsins tekur að sér
nokkra skóla í „fóstur“, sinnir erindrekstri
fyrir þá og verður tengiliður þeirra við
stjórn félagsins. Nánari lýsing á þessu
nýja fyrirkomulagi - ásamt fl eiri atriðum
í starfsáætlun félagsins á næsta skólaári
- verður kynnt í fréttabréfi FF sem sent
verður kennurum við upphaf skólastarfs.
í starfshópi um endurskoðun náms og
námsskipunar í grunn- og framhaldsskólum,
starfshópi um endurskoðun laga um
framhaldsskóla og starfshópi um þarfi r
nemenda sem stunda nám á almennri
námsbraut. Starfsnámsnefndinni var því
snemma ljóst að tillögur hennar myndu
fara inn í þetta vinnuferli sem hefur líka
komið á daginn í opinberri umræðu eftir
að þær voru birtar.
Tillögur nefndarinnar eru afar
þýðingarmikið innlegg í starf allra hópa
að 10 punkta samkomulaginu og þá
sérstaklega þess hóps sem mun vinna
að endurskoðun á námi og námsskipun
grunn- og framhaldsskóla. Efl aust kemur
skýrslan líka til kasta nefndar sem vinnur
nú að endurskoðun laga um grunnskóla.
Mikilvægt er að tillögurnar verði teknar
til ítarlegrar skoðunar á öllum stigum
og að um þær verði opin og breið
fagleg umfjöllun. Með því móti má
koma menntamálaumræðunni út úr því
öngstræti sem hún hefur verið stödd í um
langa hríð og snúa henni upp í starf að
löngu tímabærum umbótum og þróun í
menntamálum þjóðarinnar.
Aðalheiður Steingrímsdóttir
Höfundur er formaður Félags fram-
haldsskólakennara og fulltrúi KÍ í starfsnámsnefnd.
Mikilvægt er að tillögurnar verði teknar til ítarlegrar skoðunar á öllum stigum og að um
þær verði opin og breið fagleg umfjöllun. Með því móti má koma menntamálaumræðunni
út úr því öngstræti sem hún hefur verið stödd í um langa hríð og snúa henni upp í starf
að löngu tímabærum umbótum og þróun í menntamálum þjóðarinnar.
FRÉTT FRÁ ORLOFSSJÓÐI
Golfvöllurinn Glanni var vígður
laugardaginn 1. júlí. Orlofssjóður
KÍ á aðild að rekstrarfélagi
golfklúbbsins.
Völlurinn er í næsta nágrenni
orlofsbyggða BSRB í Munaðarnesi og
Stóru Skógum og fá félagsmenn í KÍ
helmings afslátt á völlinn. Almennt
verð á völlinn er 1800 kr. en félagar
í KÍ borga 900 kr. Þetta er níu
holu völlur í mjög fögru umhverfi .
Afsláttarkort fyrir félagsmenn KÍ liggja
frammi í golfskálanum og á skrifstofu
Orlofssjóðs KÍ.
Ekki er að efa að þetta mælist vel fyrir
hjá þeim fjölmörgu félagsmönnum KÍ
sem hafa áhuga á golfíþróttinni.
Sjá myndir á heimasíðu orlofssjóðs
ki.skyrr.is/orlof/Glanni/
Kær kveðja til félagsmanna fyrir
hönd Orlofssjóðs KÍ,
Valgeir Gestsson varaformaður.
Golfvöllurinn
Glanni
FRÉTTIR FRÁ FÉLAGI FRAMHALDSSKÓLAKENNARA
Ómar lætur af störfum
SKÝRSLA STARFSNÁMSNEFNDAR, FRÉTTIR