Skólavarðan - 01.09.2007, Síða 7
7
KJARAMÁL, FRÉTT
SKÓLAVARÐAN 6.TBL. 7. ÁRG. 2007
Í þetta sinn ætla ég að skrifa um leyfi og
styrki vegna tæknifrjóvgunar. Einhver
gæti spurt hvort það tengdist eitthvað
kjara- og réttindamálum og svarið er já. Í
fyrra voru gerðir tveir nýir kjarasamningar,
við Félag leikskólakennara annars vegar
og Félag tónlistarskólakennara hins vegar
og í þeim báðum eru ákvæði um leyfi á
launum vegna tæknifrjóvgunar. Að auki
geta félagsmenn sótt um styrk vegna
tækni- og glasafrjóvgunar til Sjúkrasjóðs
KÍ. Í lokin ætla ég líka að minnast á reglur
um veikindi í sumarorlofi því mikið er spurt
um þau mál núna í upphafi skólaárs.
Leyfi á launum vegna
tæknifrjóvgunar
Fyrir ári skrifuðu leikskólakennarar og
tónlistarskólakennarar undir nýja kjara-
samninga. Nýjar greinar bættust þá við,
þ.m.t. réttur til leyfis á launum vegna
tæknifrjóvgunar, en þar segir orðrétt:
„Þeim starfsmönnum sem eru fjarverandi
vegna tæknifrjóvgunar verði greidd
dagvinnulaun og eftir atvikum vaktaálag
skv. reglubundinni verðskrá (eins og vegna
veikinda barns) í allt að 15 vinnudaga ef
nauðsyn krefur. Starfsmaður skili vottorði
frá viðkomandi lækni sem framkvæmir
tæknifrjóvgunina eða þeim lækni sem
sendir starfsmanninn í þessa aðgerð, en þá
verður það að koma fram á vottorðinu að
um slíka ákvörðun sé að ræða.” Enn sem
komið er á þessi grein eingöngu við um
félagsmenn Félags leikskólakennara og
Félags tónlistarskólakennara.
Styrkur frá Sjúkrasjóði KÍ vegna
tækni- og glasafrjóvgunar
Sjúkrasjóður KÍ endurgreiðir hluta
kostnaðar af tækni- og glasafrjóvgun.
Þegar sótt er um þessa styrki þarf félags-
maður að skila inn frumritum reikninga
ásamt umsóknareyðublaði sem nálgast má
á vef KÍ. Ef foreldrar eru báðir félagsmenn
í KÍ eiga þeir rétt á að sækja hvor um sinn
styrkinn í sjúkrasjóðinn, en styrkurinn er
þó aldrei hærri en sem nemur kostnaði.
Rétt er að geta þess að af þessum styrkjum
er dregin staðgreiðsla skatts áður en til
útborgunar kemur.
Veikindi í sumarorlofi
Réttur vegna veikinda í sumarorlofi er
mismunandi eftir því hvaða félagi innan
KÍ viðkomandi tilheyrir. Nái grunn-
skólakennari ekki að nýta orlofsrétt sinn
(24, 27 eða 30 daga) á tímabilinu 15.
júní til 15. ágúst telst það sem á vantar
veikindi í orlofi. Veikist leikskólakennari í
orlofi telst sá tími sem veikindum nemur
ekki til orlofs, enda sanni hann með
læknisvottorði að hann geti ekki notið
orlofs. Sé framhaldsskólakennari veikur
í sumarhléi svo nemi einum mánuði eða
lengri tíma skal það sem fram yfir er skoðast
veikindi í orlofi allt að fullum orlofstíma.
Sé tónlistarskólakennari veikur á tíma-
bilinu 1. júní til 31. ágúst svo nemi einum
mánuði eða lengri tíma skal það sem fram
yfir er skoðast veikindi í orlofi allt að fullum
orlofstíma. Undir öllum kringumstæðum
skulu veikindi skýlaust sönnuð og vottorði
skilað svo fljótt sem auðið er.
Ef þið hafið einhverjar spurningar um þessi
mál er ykkur velkomið að hringja til mín í
síma 595 1111 eða senda mér tölvupóst á
netfangið ingibjorg@ki.is
Ingibjörg Úlfarsdóttir
launafulltrúi KÍ
Ingibjörg Úlfarsdóttir
launafulltrúi KÍ
Lj
ó
sm
y
n
d
:
S
te
in
u
n
n
J
ó
n
a
sd
ó
tt
ir
Tæknifrjóvgun/veikindi í sumarorlofi
Í samþykkt formannafundar Félags
framhaldsskólakennara 14. september
sl. er lögð áhersla á að endurskoðun
framhaldsskólalaga fái þann tíma sem
nauðsynlegur er. Ennfremur að vinnan
taki mið af tillögum starfshópa sem
lokið hafa störfum.
Þá segir í samþykktinni: „Í endurskoðun
verði horft á skólagöngu nemenda frá
upphafi grunnskóla til loka framhaldsskóla
í samhengi og áhersla lögð á greiða leið
nemenda milli skólastiga. Fundurinn leggur
áherslu á að tillögur um fræðsluskyldu
og gjaldfrjálsan framhaldsskóla til 18 ára
aldurs og um rétt nemenda til að velja
sér skóla nálægt heimili sínu nái fram að
ganga. Einnig leggur fundurinn áherslu
á að tveggja ára einstaklingsmiðað fram-
haldsskólapróf verði skilgreint í nýjum
lögum fyrir framhaldsskóla til að fjölga
þeim sem útskrifast með lokapróf úr
framhaldsskóla.“
Síðar í samþykktinni segir: „Fundurinn
hafnar öllum hugmyndum um skerðingu
á námi og leggur áherslu á að nám til
stúdentsprófs veiti áfram góða almenna
menntun og traustan undirbúning fyrir
nám í innlendum og erlendum háskólum.
Skilgreint verði fjölbreytt og sveigjanlegt
nám til undirbúnings sérhæfðu námi
að loknum framhaldsskóla og fyrir
störf á vinnumarkaði. Fundurinn styður
tillögur um meiri ábyrgð framhaldsskóla
á námsframboði og námsskipulagi sínu
en krefst þess um leið að skólunum
verði tryggt aukið fjármagn til að sinna
verkefnum sínum og styrkja stoðkerfi
sín.“
Í lok samþykktarinnar er skorað á
menntamálaráðherra að leggja fram
frumvarp um lengri kennaramenntun og
lögverndun fyrir leikskólakennara um
leið og Alþingi kemur saman. Þá er sagt
brýnt að verkefnisstjórn KÍ og mennta-
málaráðherra verði kölluð saman og henni
falið að draga saman helstu niðurstöður
um það í hvaða umbætur verði ráðist
í skólakerfinu í málum sem tíu skrefa
samkomulagið frá 2. febrúar 2006 fjallar
um.
Endurskoðun framhaldsskólalaga fái þann tíma sem þarf
er krafa FF í nýlegri samþykkt fundar formanna félagsdeilda.
Öllum hugmyndum um skerðingu náms hafnað.