Skólavarðan - 01.09.2007, Qupperneq 8
8
FRÉTTIR OG TILKYNNINGAR
SKÓLAVARÐAN 6.TBL. 7. ÁRG. 2007
Langar þig í evrópskt skólasamstarf?
Comenius styrkir eru veittir til kennara
og skólastjórnenda til að sækja evrópskar
tengslaráðstefnur víðs vegar í Evrópu,
fl estar ráðstefnur eru haldnar á haustin.
Hægt er að velja eftir skólastigi og
þemum.
Nánari upplýsingar á www.lme.is,
og rz@hi.is
Viltu verja sumrinu í Sviss?
Kennarahjón vilja skipta á húsnæði
Due to a sabbatical, we (two teachers with two small children),
are going to stay in Iceland next summer. Therefore we would
like to exchange our house in Lucerne/Switzerland with an
Icelandic family from/near Reykjavik. We are looking for a house
or fl at for eight to ten weeks, preferably between end of May
and end of July. We are looking forward to giving you further
information about us and our house when you contact us (in
English, French or German): k.mez@bluewin.ch (Konstanze).
Leikskólasérkennarar
funda 30. október
Næsti fundur faghóps leikskólasérkennara
verður haldinn þriðjudaginn 30. október
kl.14-16 á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, 2.
hæð. Fundarefni verður það sem efst er á
baugi í okkar málum, en dagskráin verður
auglýst nánar síðar. Faghópurinn hefur
opnað eigin heimasíðu á vefslóðinni www.
ki.is/fl s Þar eru meðal annars fréttabréf
félagsins, fréttir af væntanlegum nám-
skeiðum og ráðstefnum og margt fl eira.
Sérkennslusýning og ráðstefna
í London
Árleg sýning á kennslugögnum og fyrir-lestrahald á vegum
bresku sérkennarasamtakanna verður í London dagana 19. og 20.
október n.k. Nánari upplýsingar á þessari slóð:
www.teachingexhibitions.co.uk/Exhibitions/NASEN_&_TES_Special_
Needs_Exhibition/London/2007/
Málþing um hönnun skólabygginga
Stjórn Félags leikskólakennara heldur málþing á Grand Hótel
í Reykjavík föstudaginn 23. nóvember n.k.
Aðalumfjöllunarefni er hönnun skólabygginga. Fyrr á þessu ári
skilaði nefnd um leikskólabyggingar og áhrif þeirra á námsumhverfi
barna af sér skýrslu og var ákveðið í framhaldi að halda þetta
málþing. Félagsmenn eru hvattir til þátttöku á málþinginu.
www.kennarinn.is
Kennarinn.is er nýr spjallvefur fyrir
kennara á leikskóla-, grunnskóla- og
framhaldsskólastigi sem fór í loftið í
vor. Vefurinn er umræðuvettvangur
fyrir kennara þar sem þeir geta skipst
á góðum ráðum og hugmyndum, rætt
um kennsluefni og kennsluaðferðir eða
bara um daginn og veginn. Markmiðið
með vefnum er að skapa vettvang þar
sem kennarar geta miðlað af reynslu
sinni og leitað góðra ráða hjá öðrum
og þannig efl t sig og styrkt í starfi nu.
Á vefnum eru borð sem er skipt upp eftir
námsgreinum en einnig eru borð fyrir
önnur málefni eins og agamál, skólastefnur
og léttari umræður eins og kennaragrín
og almennar umræður. Vefurinn býður
skráðum meðlimum að halda sambandi við
gömlu félagana úr kennaranáminu með því
að skrá sig undir sínum útskriftarárgangi.
Hópar geta líka fengið lokuð borð sem eru
ekki aðgengileg öðrum. Þetta geta skólar,
samstarfshópar eða gamlir vinahópar
nýtt sér sem vilja fá sín eigin spjallborð.
Nýlegar og spennandi greinar
á Netlu - veftímariti um
uppeldi og menntun:
Notkun 10. bekkinga á enskum orðasam-
böndum í ritun eftir Auði Torfadóttur
Sagt er frá rannsókn þar sem keppikefl ið
var að fá yfi rlit yfi r notkun enskra
orðasambanda í ritun nemenda við lok 10.
bekkjar grunnskóla.
Opnar lausnir - frumherjarnir eftir Sigurð
Fjalar Jónsson
Fjallað er um frjálsan og opinn hugbúnað.
Í þessari fyrstu grein af þremur eru raktir
helstu þættir úr sögu frjáls eða opins
hugbúnaðar og kynntir til sögunnar þeir
einstaklingar sem mest hafa mótað þróun
hans.
Uppeldi til ábyrgðar - uppbygging til
sjálfsaga eftir Guðlaugu Erlu Gunnars-
dóttur og Magna Hjálmarsson
Lýst er þeirri hugmyndafræði sem
höfundar kenna við uppeldi til ábyrgðar
eða uppbyggingu (restitution) en allmargir
skólar hér á landi byggja á henni í starfi
sínu. Upphafsmaður er Diane Gossen sem
hefur bækistöðvar í Kanada en starfar
víða um heim.
Fleiri góðar greinar verða birtar á næstu
vikum. Lesið Netlu, www.netla.khi.is