Skólavarðan - 01.09.2007, Síða 10
10
ALÞJÓÐADAGUR KENNARA
SKÓLAVARÐAN 6.TBL. 7. ÁRG. 2007
Kennarasamband Íslands heldur upp
á alþjóðadag kennara 5. október nk.
með veglegri kjaramálaráðstefnu í
húsakynnum Kennaraháskóla Íslands
við Stakkahlíð. Þetta er stærsta
ráðstefna sem KÍ hefur gengist fyrir á
sviði kjaramála. Búist er við að um 300
félagsmenn sæki hana auk fulltrúa
viðsemjenda.
Fjallað verður um ýmis mál sem
tengjast kjörum félagsmanna KÍ sem
og annars launafólks. Meðal fyrirlesara
verður Ole Petter Blindheim formaður
samninganefndar norska Kennarasam-
bandsins (Utdanningsforbundet).
Ráðstefnan hefst kl. 09:30 með ávarpi
Að forgöngu UNESCO er 5. október sér-
staklega helgaður kennurum. Alþjóða-
dagur kennara er nú haldinn hátíðlegur
í yfir 100 löndum. Almenn yfirskrift
Alþjóðadags kennara er „hæfir kennarar
tryggja gæði menntunar“ (quality teachers
for quality education), en að þessu sinni
er sérstök áhersla lögð á vinnuumhverfi
kennara. Jafnframt er bent á að bætt
vinnuumhverfi kennara leiðir til betra
lærdómsumhverfis nemenda.
Fjörutíu og eitt ár er liðið frá því
aðildarríki UNESCO og ILO gáfu út yfir-
lýsingu um sameiginlega sýn á stöðu
kennara í heiminum óháð lagasetningu,
reglugerðum og hefðum einstakra landa.
Tíu ár eru liðin frá því að UNESCO gaf
út yfirlýsingu um stöðu kennara á efstu
skólastigum.
Í tilefni Alþjóðadags kennara hafa Alþjóða-
samtök kennara (Education International)
sent frá sér eftirfarandi kröfugerð:
Við krefjumst:
Sæmandi vinnuumhverfis
• öruggs og heilbrigðs lærdómsumhverfis
fyrir kennara og nemendur, viðunandi
bekkjarstærða og nægjanlegra kennslu-
gagna og annarra kennsluauðlinda í
bekkjarstofunni;
Launa fyrir lífið
• launa sem sjá kennurum fyrir viðunandi
lífsviðurværi og eru greidd út reglu-
lega;
Jafnra launa og jafnra
réttinda kvenna
• konur eiga ekki að þurfa að þola misrétti
af nokkru tagi og stjórnvöld verða
að tryggja styrkingu (empowerment)
kvenna í menntageiranum, í ákvarðana-
töku og á vinnustað;
Frum- og áframhaldandi
starfsþróunar
• að kennarar eigi möguleika á að afla sér
og þroska áfram faglega færni, að þeir
fái tækifæri til að fylgjast með nýjustu
upplýsingum og kennslufræðilegum
aðferðum og móta og efla starfsferil
sinn;
Þátttöku í stefnumótun
• félagsleg samræða verður að vera inn-
byggð í alla stefnumótun og áætlanagerð
í menntun til að tryggja að ný stefnumið
endurspegli veruleika bekkjarstofunnar;
Sameiginlegra samninga-
viðræðna til að verja og auka
réttindi kennara
• semja ber um vinnuumhverfi og mat á
kennsluferðum af fulltrúum stjórnvalda/
vinnuveitenda og fulltrúum stéttarfélaga
á sviði menntunar.
Kennarar eru hvattir til að leggja sitt
af mörkum til að auka samræðu um
kennslu og menntun, vinnuumhverfi
kennara og lærdómsumhverfi nemenda
hérlendis sem erlendis. Á slóðinni http://
www.ei-ie.org/worldteachersday/en/
resources_download.php eru vegg-
spjöld, dreifimiðar, bæklingur með
upplýsingum og hugmyndum að
aðgerðum og fleira efni sem tengist
Alþjóðadegi kennara og unnt er að
hala niður frítt.
keg
Eiríks Jónssonar formanns KÍ. Að því
loknu flytur Ole Petter Blindheim fyrirlestur
sem hann nefnir „Slik forhandler vi“ og
ræðir um samningsumhverfi kennara og
skólastjórnenda í Noregi. Ólafur Darri
Andrason hagfræðingur ASÍ fjallar síðan
um samspil kjarasamninga og efnahagslífs
og Gunnar Páll Pálson formaður VR ræðir
um samningsumhverfi verslunarmanna.
Að loknu hádegishléi munu Karl Björnsson
sviðsstjóri kjarasviðs Sambands íslenskra
sveitarfélaga, Elín Björg Jónsdóttir
stjórnarmaður í BSRB og Eiríkur Jónsson
formaður KÍ velta fyrir sér hvers konar
launamyndunarkerfi sé besta leiðin
til réttlátra launa. Að loknu kaffihléi
ræða Katrín Ólafsdóttir hagfræðingur,
Halldóra Friðjónsdóttir formaður BHM og
Aðalheiður Steingrímsdóttir formaður FF
um stofnanasamninga og skólaumhverfi
og kynbundin áhrif þeirra. Elna Katrín
Jónsdóttir varaformaður KÍ dregur saman
efni ráðstefnunnar í lok hennar. Stefnt er
að því að ráðstefnunni ljúki kl. 16:00. Sjá
nánar á www.ki.is
Kjaramálaráðstefna KÍ á
alþjóðadegi kennara 5. október
Alþjóðadagur kennara 5. október
Bætt vinnuumhverfi kennara tryggir betra lærdómsumhverfi nemenda