Skólavarðan - 01.09.2007, Qupperneq 13
13
STARFENDARANNSÓKNIR
SKÓLAVARÐAN 6.TBL. 7. ÁRG. 2007
veita þeim aukið sjálfstraust og úthald.
Þriðja dæmið er sókratísk aðferð í
umræðum í lífsleikni til að auka færni
nemenda í rökræðum, auka virkni þeirra í
umræðum og auðvelda mat á frammistöðu
þeirra í þeim.
Fjórða dæmið er að íhuga viðbrögð
kennara við óvæntum atvikum í kennslu-
stundum til að bæta samband kennara og
nemenda.
Fimmta dæmið er notkun eyðublaða í
viðtölum stjórnenda við nemendur vegna
agabrota og kvartana nemenda, til að gera
viðtöl skilvirkari og eftirfylgni markvissari.
Kennarar setji fram eigin
kenningar um kennslu
Haldnir hafa verið samtals 22 umræðu-
fundir í sjálfsmatshópnum. Þeir hafa
gefið okkur mikið; samskiptin eru opin,
heiðarleg og tilfinningaleg. Þar er bæði
rætt um það sem vel tekst og einnig
það sem miður fer í starfinu. Fundirnir
rjúfa einangrun kennara, hjálpa okkur
að tengja fræðin við raunveruleikann og
auka fagleg tengsl milli kennara í ólíkum
kennslugreinum. Ráðgjafi okkar, Hafþór
Guðjónsson, hefur bent á að umræður af
þessu tagi geta opnað kennurum nýja sýn
á nám og kennslu.
Hópurinn kynnti rannsóknir sínar í
málstofu á ráðstefnu RKHÍ haustið 2006
og á ráðstefnu um starfendarannsóknir
(action research) í St. Mary´s University
College í London vorið 2007. McNiff
leggur mikla áherslu á að kennarar kynni
niðurstöður rannsókna sinna fyrir öðrum
kennurum. Hún telur að kennarar eigi
að setja fram sínar eigin kenningar um
kennslu sem byggjast á reynslu þeirra og
starfendarannsóknum.
Hópurinn hefur fengið fjárhagslegan
stuðning til þessa verkefnis frá Þróunar-
sjóði framhaldsskóla hjá mennta-
málaráðuneyti, Menntaskólanum við
Sund, Vísindasjóði Félags framhaldsskóla-
kennara og Samstarfsnefnd um endur-
menntun framhaldsskólakennara.
Við teljum að starfendarannsóknir efli
okkur í starfi og færi okkur skrefi nær
nemendum. Það er einnig sann-færing
okkar að með því að leggja áherslu
á breytingar innan kennslustofunnar
muni starf okkar verða til hagsbóta fyrir
nemendur skólans og bæta skólastarfið í
MS. Við erum staðráðin í að halda áfram
rannsóknarstarfinu og segja má að
niðurstaða okkar sé að starfendarannsókn
eða starfsrýni kennara sé lífsstíll frekar en
afmarkað verkefni.
Hjördís Þorgeirsdóttir
Höfundur er konrektor Menntaskólans við Sund.
Heimildir:
Hafþór Guðjónsson (2007). Learning to Talk About Our
Experiences. Erindi á ráðstefnu um action research í St.
Mary´s University College, London 3. – 4. febrúar 2007.
Hafþór Guðjónsson (2003). Að rannsaka eigin rann frá
pragmatískum sjónarhóli. Rannsóknir í félagsvísindum
IV. Félagsvísindadeild, bls. 333-342. Friðrik H. Jónsson
(ritstjóri). Reykjavík: Félagsvísindastofnun Háskóla
Íslands.
Hjördís Þorgeirsdóttir (2006 og 2007). Sjálfsmat
kennara – Rannsókn á eigin starfi. Skýrslur um starfið
skólaárið 2005-2006 og 2006-2007. Menntaskólinn við
Sund. http://www.msund.is/page.asp?id=1893&x=
Jóna G. Torfadóttir og Ósa Knútsdóttir (2006). Actions
speak louder than words - Starfendarannsókn. Erindi á
kennarafundi MS 26. maí 2006.
McNiff, J. & Whitehead, J. (2006). All You Need
To Know About Action Research. London: SAGE
Publications.
jeanmcniff.com
Jean McNiff er einn virtasti fræðimaður heims á sviði starfendarannsókna. Hún er væntanleg hingað til
lands í október nk. Heimasíða hennar er www.jeanmcniff.com og þar er m.a. að finna stórgóðan bækling;
Action research for professional development: Concise advice for new action researchers. Þar útskýrir Jean
starfendarannsóknir, markmið þeirra, tilgang og framkvæmd og svarar ýmsum spurningum sem algengt er
að kvikni. Sjá www.jeanmcniff.com/booklet1.html
Íslenski hópurinn í London með ráðgjöfum sínum, Hafþóri og Jean.
Aftari röð: Hannes Hilmarsson stærðfræðikennari og námsráðgjafi, Þorbjörn Guðjónsson efnafræðikennari,
Hrefna Guðmundsdóttir félagsfræðikennari, Sjöfn Guðmundsdóttir lífsleikni-, sálfræði- og
myndlistarkennari, Ósa Knútsdóttir dönskukennari og verkefnisstjóri hópsins, Jóna Guðbjörg Torfadóttir
íslenskukennari.
Fremri röð:
Hafþór Guðjónsson dósent við KHÍ og ráðgjafi hópsins, Guðný Guðjónsdóttir félagsfræðikennari, Jean
McNiff prófessor við St. Mary´s University College í London, Hjördís Þorgeirsdóttir konrektor, Halla
Kjartansdóttir íslenskukennari. Á myndina vantar: Pétur Rasmunssen dönskukennara, Sigurrós Erlingsdóttur
kennslustjóra og Fanny Ingvarsdóttur frönskukennara en þau voru ekki með í ferðinni til London.