Skólavarðan - 01.12.2007, Side 16
16
FORVARNIR
SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 7. ÁRG. 2007
Það þarf heilt þorp til að ala upp barn.
Þessi viturlegu orð kannast allir við. En
ef til vill hafa ekki allir velt því fyrir sér
að þau merkja líka: Það þarf heilt þorp
til að bjarga barni. Hér er óskað eftir
sjálfboðaliðum til að hrinda af stað
forvarnarstarfi, um er að ræða einfalda
og áhrifaríka aðferð til að koma í veg fyrir
sjálfsvíg. Þótt aðferðin sé upphaflega
sniðin að börnum og ungmennum
hjálpar hún líka fullorðnum.
Að meðaltali svipta þrír til fjórir sig lífi
í hverjum mánuði hérlendis. Forvarnir
gegn sjálfsvígum eru allt of veikar og
vanmáttugar. „Hvert sjálfsvíg er harm-
leikur“ eins og segir í grein Salbjargar
Bjarnadóttur verkefnisstjóra átaksins Þjóð
gegn þunglyndi sem landlæknisembætt-
ið hefur staðið að frá árinu 2003. Það eru
ekki bara fjölskyldur og vinahópar sem
eru lamaðir af sorg þegar ungmenni svipta
sig lífi heldur heilu skólarnir og hverfin,
jafnvel bæjarfélögin. Það tekur tíma og
mikla vinnu að komast í gegnum sorgina.
Þegar rætt er um álag á kennara gleymist
stundum að nefna hversu mikið álag það
er að horfa upp á vanlíðan nemenda og
hafa fá úrræði, að ekki sé rætt um að
missa barn úr nemendahópnum. Michael
Emme fyrirfórsér árið 1994. Hann var
sautján ára gamall. Foreldrar hans sátu
og ræddu þennan skelfilega atburð við
vini unga mannsins þegar þeim datt í hug
forvarnaraðferð sem er í senn einföld og
áhrifarík.
Aðferðin kallast Guli borðinn.
Hún felst í því að:
1) Búa til kort á stærð við nafnspjöld
með einföldum skilaboðum. Það er
hægt að búa kortið til í tölvu eða í
höndunum. Myndir af framhlið og
bakhlið bandarísku fyrirmyndarinnar
eru hér:
Framan á spjaldinu er mynd af gulum
borða og þar stendur:
Þessi borði er líflína!
Það er fullt af fólki sem stendur ekki á
sama og vill hjálpa þér.
Ef þér finnst erfitt að biðja um hjálp
farðu þá með þetta kort til kennara, vinar,
foreldris, ættingja, ráðgjafa, prests eða
læknis.
Réttu honum það og segðu: „Ég þarf
að nota gula borðann minn.“
Aftan á spjaldinu stendur:
Þú ert í lykilhlutverki. Bjargaðu lífi!
• Ekki víkja frá manneskjunni sem rétti
þér þetta spjald.
• Þú ert líflínan hennar! Hlustaðu,
raunverulega hlustaðu!
• Taktu hann alvarlega! Farðu eða
hringdu eftir hjálp strax!
Það er OK að biðja um hjálp. • Neyðarlína
112 • Hjálparlína RKÍ 1717
2) Dreifa spjöldum (og öðru efni) í
hverfinu: Í skóla, íþróttahús, félagsmið-
stöðvar, bókasöfn, kirkjur, kaffi-
hús, heilsugæslustöðvar og víðar.
Hafa spjöldin á áberandi stað og svo
aðgengileg að auðvelt sé að kippa
með sér spjaldi. Ræða við skóla um
að dreifa spjöldunum til nemenda í
upphafi hverrar annar. Útskýra hvernig
á að nota spjöldin - rétta einhverjum
spjald ef mann vantar hjálp og fara
eftir því sem stendur á bakhliðinni ef
maður tekur við spjaldi.
Þetta tvennt ofangreint er aðalatriðið.
Hér eru viðbótarleiðir sem eru líka
mjög mikilvægar:
3) Útbúa eftir föngum límmiða (á
stílabækur o.fl.), bókamerki, vegg-
spjöld og gula borða til að hengja
upp og binda um tré á ljósastura,
grindverk, stuðara bíla og fleiri staði.
Einnig Gula borðann með nælu til að
næla í barminn.
4) Hafa samband við skóla, félags-
miðstöðvar og t.d. presta í tengslum
við fermingarfræðslu um að fá að
Einfalt og áhrifaríkt forvarnarverkefni
Guli borðinn - forvörn gegn sjálfsvígum
Evelyn Gilroy aðgerðasinni í Belfast, í
viðtali um sjálfsvíg ungmenna.
Veggspjald hannað af unglingi í Timbo
high school í Arkansas, í tengslum við
forvarnarátak.
Framhlið Bakhlið