Skólavarðan - 01.12.2007, Blaðsíða 22

Skólavarðan - 01.12.2007, Blaðsíða 22
22 SAGA ALMENNINGSFRÆÐSLU 1880-2007 SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 7. ÁRG. 2007 Hugmyndin að sögu almennings- fræðslu á Íslandi hafði lengi legið í loftinu þegar skólaráð Kennaraháskóla Íslands ályktaði um það árið 1991 að efla skólasöguritun. Þetta upplýsir Loftur Guttormsson prófessor við skólann sem jafnframt er ritstjóri tveggja binda verks um almenningsfræðslu sem kemur út í mars nk. Loftur segir ekki vanþörf á ritinu enda hefur ekkert yfirlitsrit verið gefið út um þetta málefni í hartnær sjötíu ár. Almenningsfræðsla á Íslandi 1880-2007 kemur út í tilefni af því að rétt um hundrað ár eru liðin frá því að lög um fræðslu barna og um kennaraskóla tóku gildi. Ritverkið er um 800 bls. að stærð með ríkulegu myndefni, fullt af áhugaverðum upplýsingum um formlega menntun og skólalíf á Íslandi, skipulag þess, umfang og inntak í tengslum við samfélagsþróun í heild sinni. Þetta er rit sem allir kennarar og aðrir, sem hafa áhuga á að auka vitneskju sína um þann bakgrunn sem þeir eru sprottnir úr, ættu að festa kaup á. Það vekur nokkra furðu að rit á borð við þetta skuli ekki hafa verið gefið út áður. „Það hefur ekki komið út yfirlitsrit á þessu sviði síðan Saga alþýðufræðslunnar eftir Gunnar M. Magnúss var gefin út 1939,“ segir Loftur Guttormsson. „Sú bók ber þess merki að nokkur fljótaskrift var á en Gunnar setti hana saman á skömmum tíma til að minnast 20 ára afmælis Sambands íslenskra barnakennara. Það hefur tilfinnanlega skort yfirlit frá miðri síðustu öld að telja því þá fer þetta allt að verða reglulegra kerfi, æ fleiri sækja framhaldsskóla og svo framvegis. Kennaranemar hafa alltaf fengið yfirlit yfir almenningsfræðslu í námi sínu en notast hefur verið við alls kyns greinar, heimildir og upplýsingar sem kennarar við Kennaraháskólann hafa sjálfir aflað og samið. Þetta verk verður því kennaranemum og stórum hópi kennara og fyrrverandi kennara til mikillar glöggvunar og vonandi ýtir það einnig undir samsemd stéttarinnar.“ Loftur áréttar að þótt aðalleikarar í ritverkinu séu kennarar og nemendur þá sé saga kennara sem slíkra enn óskráð. Sagan af starfi kennara og stéttarsamtaka þeirra má líklega bíða þess enn um stund að vera sögð en Loftur bendir á að í Noregi og Danmörku hafa verið gefin út sögurit helguð kennurum. Um þessar mundir er Loftur að vinna að félagsfræðilegri grein- ingu á barnakennurum á fyrri hluta 20. aldarinnar ásamt Helga Skúla Kjartanssyni. „Þessi greining sem við erum að vinna núna er mjög forvitnileg, sérstaklega staða kvenna,“ segir Loftur. „Konur þurftu lengi framan af að ákveða hvort þær kenndu eða giftust, það var tæpast um það að Hundrað ára skólasaga Glæsilegt ritverk Fjórði hluti seinna bindis: Hvoru bindi verksins er skipt í fjóra hluta; hér getur að líta efnisyflirlit fjórða og síðasta hluta seinna bindisins svo að áhugasamir geti áttað sig á uppbyggingu verksins: Fjórði hluti. Valddreifing í skólamálum 1985–2007 Einstaklings- og markaðshyggja í sókn Vöxt eða velferð Jafnréttishugmyndir á samkeppnistímum Hversu sjálfstæðir skólar? Menntaumbætur í krafti tölvutækni Innlend stefnumið og alþjóðleg viðmið Stefnumótun og verkaskipting Leikskólinn hluti af almennu skólakerfi Grunnskólar færðir undir sveitarstjórnir Íslenskt skólastarf og umheimurinn Skóli fyrir alla? Skóli fyrir alla tekur á sig mynd Sérskólar og stofnanir Sérkennsla eða samskipan Hve margir njóta sérkennslu? Skólaþróun og skólamenning Hlutverk og þróun gunnskólans Einstaklingsmiðað skólastarf Námskrár, kennsla og samræmd próf Valddreifing og stjórnunarvæðing Áhrif foreldra á skólastarf Loftur Guttormsson

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.