Skólavarðan - 01.12.2008, Síða 16

Skólavarðan - 01.12.2008, Síða 16
16 SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 8. ÁRG. 2008 FRAMHALdSSKóLINN FUNdAR Félag framhaldsskólakennara hélt auka- fulltrúafund á Grand hóteli í Reykjavík þann 7. nóvember sl. Fundurinn var vel sóttur og stútfullur af áhugaverðu efni. Aðalheiður Steingrímsdóttir formaður FF fjallaði um kjaramál í kreppuumhverfi og um nýju framhaldsskólalögin í inngangserindi sínu. Hún sagði m.a. að vinnan að útfærslu laganna þyrfti að hafa í sér fólgna tiltekna yfirsýn og samræmingu þar sem lögin myndu leiða til mikilla breytinga á skólastarfinu. „Það þarf því að festa vel niður tjaldhælana áður en skólarnir geta reist tjaldið“, sagði Aðalheiður. Margir fyrirlestrar voru fluttir á fundinum og meðal fyrirlesara var Guðrún Geirsdóttir lektor á menntavísindasviði HÍ með erindið Námskrárþróun í ljósi viðmiða ESB um menntun og lokapróf. Hvað þarf til? Ávinningur fyrir nám, kennslu og skólastarf? Fyrirlesturinn vakti mikla athygli en Guðrún var í stýrihópi í HÍ sem sá um innleiðingu hæfniviðmiða í skólanum og situr einnig í ráðgjafanefnd menntamálaráðuneytis um styrkveitingar til þróunarverkefna í framhaldsskólum og til fullorðinsfræðslu. Um útfærslu og framkvæmd námskráa lagði Guðrún áherslu á að hugmyndafræðivinnan þyrfti að fara fram á allri kennarastofunni. „Ef kennarar kaupa ekki nýju námskrána þá hrynur hún,“ sagði Guðrún. Hún hvatti hvern og einn kennara til að spyrja sjálfan sig: Hvað er það sem skiptir máli í minni grein? Og sagði námskrárbreytinguna taka til hagnýtra hluta og líka hugmyndafræðilegra – mikilvægt væri að vera vakandi fyrir muninum á þessu. Sem dæmi mætti nefna muninn á eftirfarandi spurningum: Hvað er mikilvæg hæfni? og Hvernig á að skrifa sjálf hæfniviðmiðin? Guðrún lagði áherslu á mikilvægi eignaraðildar (ownership) í námskrárvinnu, eða með öðrum orðum virkrar þátttöku sem flestra kennara í náms- krárþróun. Skapa þyrfti gott svigrúm til vinnunnar, samnýta þekkingu innan og milli skóla og sækja stuðning, ráðgjöf og aðstoð. Mikil gerjun á sér stað í námskrárþróun um þessar mundir og sagði Guðrún aðspurð um efni fyrirlestrarins að hluti umræðunnar væri nú þegar að úreldast. Því væri nær lagi að ræða við hana fyrir næsta tölublað Skólavörðunnar, enda væri þá ef til vill tíðinda að vænta. Oddur S. Jakobsson hélt fyrirlesturinn Fjárhagsstaða framhaldsskóla - kjaraþróun kennara - næstu kjarasamningar. Hann sagði meðal annars að ef hann ætti að sýna einungis eina glæru með fyrirlestrinum innihéldi hún hugtakið óvissa og ekkert annað. Oddur fór m.a. yfir hugsanleg áhrif nýrra framhaldsskólalaga á væntanlega kjarasamninga s.s. vegna flutnings náms- mats af prófatíma yfir á kennsludaga. Aðrir fyrirlesarar voru Eiríkur Jónsson, Elna Katrín Jónsdóttir, Arnór Guðmundsson, Guðni Olgeirsson, Sigurjón Mýrdal og Magnús Ingólfsson. Efni fundarins er á www. ki.is á vef Félags framhaldsskólakennara, nánar tiltekið hér: ff.ki.is/lisalib/getfile. aspx?itemid=5587 Á fundinum voru samþykktar tvær ályktanir, annars vegar um brýnar aðgerðir í menntamálum vegna samfélagsþrenginga og hins vegar um stöðu framhaldsskólans í tengslum við útfærslu og framkvæmd nýrra menntalaga. Í ályktun um aðgerðir segir meðal annars að efnahagur fjölskyldna megi ekki ráða úrslitum um það hverjir geti notið þeirrar þjónustu sem stendur til boða í skólum landsins. „Draga þarf stórlega úr gjaldtöku í skólakerfinu til að létta undir með fjölskyldum og heimilum,“ segir ennfremur í ályktuninni. „Þeir sem missa atvinnu sína eiga að geta styrkt stöðu sína með námi í framhaldsskólum og háskólum. Öll börn og ungmenni verða að geta notið námsvistar í leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum. Stórefla þarf Lánasjóð íslenskra námsmanna og styrkja félagslegt hlutverk hans.“ Í ályktun um stöðu framhaldsskólans er meðal annars kallað eftir því að samvinna komist á milli KÍ, yfirvalda menntamála og skólastjórnenda um framkvæmd nýju laganna, inntak reglugerða, námskrármál og tengsl laganna við kjarasamninga. Jóhann Kristjánsson, kennari við MÍ, spurði: Hvaðan koma ákvæðin í lögunum um 180 starfsdaga nemenda að lágmarki? Svar barst úr sal að bragði: Til að deilingin gangi upp, 180 dagar/3d/e = 60e! Aukafulltrúafundur FF 2008 Guðrún Geirsdóttir

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.