Skólavarðan - 01.03.2001, Side 19
Kynning á fagfé lag i
21
Í samtali við Arnfríði Ólafsdóttur formann
félagsins kom fram að félagið hefur starfað
um tveggja áratuga skeið og félagsmenn eru
nú um 190 talsins. Námsráðgjöf hefur verið
kennd við félagsvísindadeild Háskóla Ís-
lands síðastliðin tíu ár, en námið er fram-
haldsnám að loknu BA prófi í sálfræði eða
uppeldis- og menntunarfræði, BEd. prófi
frá Kennaraháskólanum eða BA/BS gráðu
og kennsluréttindanámi frá HÍ.
Náms- og starfsráðgjafar starfa á öllum
skólastigum, hjá vinnumiðlunum og einka-
fyrirtækjum. Flestir starfa innan skólakerf-
isins og felst starf þeirra í ráðgjöf, stuðn-
ingi og miðlun upplýsinga til nemenda
varðandi áhugasvið, námsval, vinnubrögð í
námi og stuðning og ráðgjöf í persónuleg-
um málum.
„Eitt af meginhlutverkum FNS er að sjá
um fræðslu og endurmenntun félagsmanna
sinna,“ segir Arnfríður, „og félagið heldur
fræðslufundi og skipuleggur sérhæfð endur-
menntunarnámskeið árlega í þeim tilgangi.
Félagsmenn sækja jafnframt fundi og ráð-
stefnur um fagleg málefni erlendis og má í
því samhengi nefna að formennska og
stjórn norrænu náms- og starfsráðgjafasam-
takanna sem FNS á aðild að er í höndum
Íslendinga um þessar mundir.“
Rannsóknarþjónusta Háskóla Íslands rek-
ur Evrópumiðstöð í náms- og starfsráðgjöf
sem styrkt er af Evrópusambandinu. Mark-
miðið er að styðja náms- og starfsráðgjafa á
Íslandi og stuðla að evrópsku samstarfi á
sviði upplýsingatækni, starfsþjálfunar og sí-
menntunar.
Fræðslunefnd FNS sér um útgáfu frétta-
bréfs, Skutlu, sem kemur út 4-5 sinnum
á ári.
Að sögn Arnfríðar er mikill vaxtarbrodd-
ur í náms- og starfsráðgjöf hérlendis líkt
og í nágrannalöndum okkar. Hvað námið
við HÍ varðar verður bætt við fjarnámi í
náms- og starfsráðgjöf í haust og undirbún-
ingur er nú þegar hafinn að meistaranámi í
greininni.
„Um þessar mundir er vaxandi þörf fyrir
námsráðgjöf bæði í grunn- og framhalds-
skólum með tilkomu nýrra aðalnámskráa. Í
grunnskólum þurfa nemendur að velja sér
samræmd próf og í framhaldsskólum verða
inntökuskilyrði inn á námsbrautir, mismun-
andi eftir brautum, þar sem lágmarksein-
kunn þarf að vera á samræmdum prófum.
Nemendur framhaldsskólans þurfa einnig
að velja sér kjörsvið á stúdentsbrautum í
samræmi við það nám sem þeir hyggjast
stunda á háskólastigi. Þetta kallar auðvitað
á aukna upplýsingamiðlun og ráðgjöf við
námsval,“ segir Arnfríður. „Mikil þörf er á
menntuðum náms- og starfsráðgjöfum til
starfa á svæðisvinnumiðlunum á lands-
byggðinni. Einnig sjá einkafyrirtæki í
auknum mæli hag í því að ráða til sín fólk
með menntun í náms- og starfsráðgjöf í
starfsmannastjórnun og sem fræðslufulltrúa
svo að eitthvað sé nefnt.“
Mikill meirihluti félagsmanna í FNS er í
Kennarasambandi Íslands og sótt hefur ver-
ið um að félagið verði sérfélag innan KÍ.
„Nefnd skipuð aðilum frá KÍ og FNS hefur
unnið að málinu síðan í fyrrahaust,“ segir
Arnfríður að lokum, „en félagsmenn telja
að sérstöðu og hagsmuna námsráðgjafa inn-
an skólakerfisins verði betur gætt með þess-
um hætti.“
Vaxandi þörf fyrir námsráðgjöf
Kennarasambandi Íslands tengjast
fjölmörg fagfélög, eitt þeirra er Félag
náms- og starfsráðgjafa (FNS).
Sótt hefur verið um að
FNS verði sérfélag innan
KÍ og að sögn Arnfríðar
Ólafsdóttur telja félags-
menn að sérstöðu og
hagsmuna námsráðgjafa
innan skólakerfisins
verði betur gætt með
þessum hætti.
Er gaman í starfinu?
Já, þetta er mjög gefandi starf. Sér-
staklega er gaman þegar jákvæðar
breytingar verða í málum sem ég er að
vinna að.
Skilar starfið árangri?
Já, það er ég fullviss um. Ég fæ stað-
festingu á því hjá nemendum, foreldrum og samstarfsfólki.
Hvernig gengur dagurinn fyrir sig?
Engir tveir dagar eru eins. Suma daga verða óvæntar uppákomur sem þarf að bregðast fljótt við. En flesta daga er ég með
bókuð viðtöl eða fundi með nemendum, foreldrum og samstarfsfólki. Þessa dagana er ég líka að fara í heimsóknir í framhalds-
skóla með nemendum 10.bekkjar.
Hvað þarf að bæta í starfskilyrðum námsráðgjafa?
Það sem mér er efst í huga núna er handleiðsla fyrir námsráðgjafa. Ég vildi að námsráðgjöfum í grunnskólum yrði gert
mögulegt að sækja faglega handleiðslu reglulega. Líta þarf á handleiðslu sem sjálfsagðan hluta af starfi okkar.
Guðný Pálsdóttir námsráðgjafi
í Seljaskóla tók því vel að
svara nokkrum spurningum
um starfið: