Skólavarðan - 01.03.2001, Side 25
Yfirlýsing frá stjórn Skólastjóra-
félags Íslands:
Í Skólavörðunni 2. tbl. 1. árg. er viðtal við for-
mann Félags grunnskólakennara, Guðrúnu
Ebbu Ólafsdóttur, um nýjan kjarasamning og
niðurstöðu úr atkvæðagreiðslu um hann.
Þar er látið að því liggja að skólastjórar
muni mismuna kennurum og kennarar fái
ekki það út úr samningum sem þeim ber!
Orðrétt stendur: „En við viljum koma í veg
fyrir að skólastjórar geti misnotað aðstöðu
sína og að sveitarstjórnir greiði ekki laun í
samræmi við samninginn“.
Stjórn SÍ lýsir furðu sinni á slíkum yfir-
lýsingum og því hugarfari sem þar kemur
fram í garð stjórnenda og sveitarfélaga og
telur slík ummæli ekki til þess fallin að auð-
velda framkvæmd nýs samnings.
Þá er látið að því liggja að skýringin á því
hve margir greiddu atkvæði gegn samn-
ingnum sé sú að skólastjórar hafi skilið
samninginn á annan hátt en formaður FG
og rangtúlkað hann.
Samningurinn er mjög skýr og stjórn SÍ
fullyrðir að félagsmenn SÍ hafi farið eftir
orðanna hljóðan við túlkun á honum.
Stjórnin vísar því alfarið á bug að skóla-
stjórar eigi „sök“ á því að hlutfall þeirra
sem samþykktu samninginn varð ekki hærra
en raun bar vitni.
Sé forysta FG ósátt með niðurstöðu at-
kvæðagreiðslunnar, þar sem nær 60%
greiddu atkvæði með samningi sem felur í
sér jafnmiklar breytingar og þessi gerir,
verður hún að leita ástæðna annars staðar
en hjá skólastjórum.
F.h. stjórnar SÍ
Þorsteinn Sæberg
Svar Guðrúnar Ebbu:
Ég mótmæli yfirlýsingu stjórnar Skóla-
stjórafélags Íslands þar sem orð mín í við-
tali við Helga E. Helgason í síðasta tölu-
blaði Skólavörðunnar eru slitin úr sam-
hengi. Orðrétt segir í viðtalinu: „Að sögn
Guðrúnar Ebbu óttast sumir kennarar að
skólastjórar geti mismunað kennurum, þeir
fái ekki það út úr samningnum sem þeim
ber og njóti ekki sama stuðnings stéttar-
félagsins og áður“. Eins og Þorsteinn Sæ-
berg, félagi minn í stjórn Kennarasambands
Íslands til nokkurra ára, veit manna best
felast í þessum orðum mikil sannindi og
einnig skilaboð til okkar í forystu félaganna
um að á þessari tortryggni þurfi að taka á
félagslegum grunni.
Þorsteinn situr einnig með mér í verk-
efnisstjórn samningsaðila en þar höfum við
farið yfir túlkun á ákvæðum kjarasamnings-
ins og undirbúið sameiginleg námskeið fyr-
ir trúnaðarmenn, skólastjóra og fulltrúa
sveitarfélaganna. Á námskeiðunum er lögð
höfuðáhersla á góða stjórnsýslu og þar segir
orðrétt í texta með einni glærunni: „Jafn-
ræðisreglan vísar til þeirrar skyldu stjórn-
enda að gæta samræmis og jafnræðis og
mismuna ekki starfsmönnum í neinu tilliti.
Þannig verður ákvörðun skólastjóra að
grundvallast á þekktum leikreglum.“ Þessi
texti var einmitt settur inn til að draga úr
ótta kennara og leggja áherslu á góða
stjórnsýslu skólastjóra. Ég held að stjórn
Skólastjórafélags Íslands mætti hugleiða
betur þá ímynd sem margir kennarar hafa
af skólastjórum sem stjórnendum og hvers
vegna sumir þeirra óttast að skólastjórar
muni mismuna kennurum.
Guðrún Ebba Ólafsdóttir
Sjónarmið
27
Í síðasta tölublaði Skólavörðunnar
birtist viðtal við Guðrúnu Ebbu Ólafs-
dóttur og pistill eftir Hannes Þor-
steinsson sem vöktu talsverða at-
hygli, meðal annars vegna þess að
þar var komið inn á hugsanlega ólíka
túlkun SÍ og FG, á kjarasamningi
grunnskólans á kynningarfundum í
skólunum. Nú er umræðunni fram
haldið með yfirlýsingu SÍ sem hér
birtist og svari Guðrúnar Ebbu Ólafs-
dóttur.
Túlkun
kjarasamnings grunnskólans
• Samningurinn er mjög skýr og stjórn SÍ fullyrðir að
félagsmenn SÍ hafi farið eftir orðanna hljóðan við túlk-
un á honum. Stjórnin vísar því alfarið á bug að skóla-
stjórar eigi „sök“ á því að hlutfall þeirra sem sam-
þykktu samninginn varð ekki hærra en raun bar vitni.
• Ég held að stjórn Skólastjórafélags Íslands mætti
hugleiða betur þá ímynd sem margir kennarar hafa af
skólastjórum sem stjórnendum og hvers vegna sumir
þeirra óttast að skólastjórar muni mismuna kennurum.
Skólasamfélagið byggir á samvinnu margra hópa
og þrífst á stöðugri umræðu þeirra á milli.