Skólavarðan - 01.04.2001, Qupperneq 2
Ég var að vafra um á netinu um
daginn og gluggaði þar stuttlega í
pistil um íslenska tónlistarsögu. Þar
sagði meðal annars frá miklum há-
tíðarhöldum í tilefni 1000 ára afmæl-
is Alþingis árið 1930. Þá var öllu til
tjaldað og Hljómsveit Reykjavíkur
fengin til að gera hátíðarhöldin eftir-
minnileg. Hljómsveitinni til stuðn-
ings voru fengnir níu hljóðfæraleikarar frá Dan-
mörku og erlendur hljómsveitarstjóri, dr. Franz
Mixa, var ráðinn til að starfa með henni í eitt ár.
Um leið og ég las þetta komu önnur hátíðarhöld
upp í hugann, þ.e.a.s. kristnihátíð á Þingvöllum sem
haldin var síðasta sumar í tilefni 1000 ára afmælis
kristnitöku Íslendinga. Þetta var mikil menningar-
veisla og ekkert til sparað. Tónlistaratriði af ýmsu
tagi skipuðu háan sess en hins vegar virtust viðhorf
til tónlistarmanna vera nokkuð önnur en fyrir 70
árum. Það er ekkert launungarmál að síðasta sumar
reyndu opinberir aðilar hvað eftir annað að prútta
við flytjendur um laun þeirra sem þóttu alltof há. Á
sama tíma fannst engum neitt tiltökumál þótt ljósa-
búnaður á sviðinu kostaði tuttugu sinnum meira. Ég
veit ekki til þess að nokkur önnur stétt en tónlistar-
menn sé jafnoft beðin um að gefa vinnu sína.
Vegur þungt í forvarnarstarfi
Á nýliðnu menningarborgarári hafa menn keppst
við að halda á lofti menningu þjóðarinnar, gildi list-
arinnar fyrir mannlífið og öðru því sem við hæfi er á
tyllidögum. Í ljósi þess á ég afar erfitt með að átta
mig á og sætta mig við skilningsleysi ráðamanna
þegar kemur að kjaramálum tónlistarskólakennara.
Um 90 tónlistarskólar eru starfandi í landinu og í
þeim eru u.þ.b. 11.000 nemendur. Þau gildi sem
ungir Íslendingar tileinka sér með tónlistarnámi
nýtast þeim allt lífið. Að læra á hljóðfæri er krefj-
andi nám sem krefst mikillar einbeitingu og aga.
Nemendur bera ábyrgð á stórum hluta námsins
sjálfir, þeir þurfa að æfa sig heima á milli tíma og
það krefst skipulagningar og sjálfsaga. Í tónlistar-
skóla læra börn að hlusta á og flytja tónlist, þau læra
að koma fram og túlka verkefni á eigin hátt. Þau
þroska tilfinningar sínar og styrkja sjálfsmynd sína,
þau læra að greina og skapa. Að kynnast tungumáli
tónlistarinnar og fá innsýn í heim hennar veitir
gleði og lífsfyllingu.
Mikilvægi þeirra gilda sem fylgja tónlist og tón-
listarnámi verður sífellt meira í nútímasamfélagi.
Þjóðfélagið tekur sífelldum breytingum sem felast
meðal annars í hraðri tækniþróun, breyttum heimil-
isaðstæðum og meiri staðreyndakennslu í skólum.
Þáttur skólastofnana í uppeldi barna verður æ stærri
og enginn skyldi vanmeta hlut tónlistarskóla í því
samhengi.
Yfir 25% Íslendinga iðka tónlist og flestir þekkja
einhvern sem er í lúðrasveit, hljómsveit eða syngur í
kór í frístundum, ellegar hafa sjálfir gert það. Ég
held að allir geti verið sammála um að sú starfsemi
hafi jákvæð áhrif á manneskjuna og við skyldum því
ekki vanmeta þau áhrif sem kerfisbundið tónlistar-
nám hefur á börn og unglinga. Þau góðu gildi sem
þar lærast eru þung lóð á vogarskálarnar þegar talið
berst að hverskonar forvarnarstarfi.
Foreldrar nemenda minna hafa talað um að tón-
listarskólinn bjargi börnum þeirra, að ef ekki væri
fyrir tónlistarnámið vissu þau ekki hvað gera skyldi.
Þar takast nemendur á við krefjandi hluti við þeirra
hæfi og fá útrás fyrir sköpunarþörf. Sú tónlistar-
menntun sem er í boði í skólastofnunum landsins er
mikilvæg uppvexti barna og unglinga nú á tímum
og liður í að byggja upp og þroska einstaklinga
þessa samfélags.
Makalausir píanókennarar
Tónlistarskólakennarar hafa dregist verulega aftur
úr í kjaramálum og birtist það með ýmsum hætti
eins og lítil saga sem hér fer á eftir ber með sér. Um
daginn sat ég á kaffistofu tónlistarskóla þar sem ég
kenni og ræddi kjaramál eins og svo oft áður.
Ónefndur píanókennari sagði mér þá að þegar hún
var ung að árum og að klára sitt píanónám höfðu
ungir piltar á orði að vænlegur kostur væri að ná sér
í píanókennara þar sem þær væru á svo góðum laun-
um. Hún tók fram að systir hennar sem var hjúkrun-
arfræðingur hefði þar ekki staðið henni á sporði. Nú
er þessu aldeilis öfugt farið og píanókennarar upp til
hópa makalausir.
Eins og flestum mun kunnugt gerðu tónlistar-
skólakennarar skammtímasamning við launanefnd
sveitarfélaga í janúar sl. og samkvæmt yfirlýsingu
sem honum fylgdi var stefnt að því að hefja viðræð-
ur á ný eigi síðar en 15. apríl. Fyrsti fundur
samningsaðila var haldinn 18. apríl en þar lagði
samninganefnd tónlistarskólakennara áherslu á að
kröfugerð þeirra frá því í haust væri í fullu gildi og
þeir gætu ekki sætt sig við lægri grunnlaun en við-
miðunarhópar þeirra. Þrátt fyrir að fulltrúar okkar
vilji hraða þessu máli sem mest þeir mega er næsti
fundur með viðsemjendum okkar ekki boðaður fyrr
en 2. maí.
Að öllu samanlögðu má ljóst vera að við höldum
ótrauð áfram að berjast fyrir rétti tónlistarskóla-
kennara og reyna að rétta hlut þeirra með tilliti til
samanburðarhópa og annarra stétta í þjóðfélaginu.
Mikilvægi tónlistarkennslu er ótvírætt en hætt er
við að hæfir kennarar hverfi fljótlega til annarra
starfa ef við mætum endalaust skilningsleysi yfir-
valda og þeirra sem öllu ráða.
Sigrún Grendal
Formannspist i l l
Engin stétt beðin jafnoft
um að gefa vinnu sína
3