Skólavarðan - 01.04.2001, Side 5
Frétt i r og smáefni
Þann 24. apríl var haldin netráðstefna um fjármögnun sérkennslu. Ráð-
stefnan var haldin á vegum Evrópumiðstöðvar fyrir þróun í sérkennslu
(European Agency for Development in Special Needs Education) og kom
til vegna mikils áhuga á málefninu í kjölfar skýrslu sem stofnunin gaf út
nýverið. Evrópumiðstöðin fyrir þróun í sérkennslu er sjálfstæð stofnun
sem menntamálaráðuneyti átján þátttökuþjóða standa að, þ.e. ESB-land-
anna fimmtán og Íslands, Noregs og Sviss - ásamt Evrópusambandinu sem
veitir styrki til ákveðinna verkefna. Eistrasaltslöndin þrjú, Eistland, Lettland og
Litháen taka þátt í starfseminni sem áheyrnaraðilar. Markmið miðstöðvarinnar
er að vinna að auknum gæðum og endurbótum í sérkennslumálum og skapa
öflugt samstarf á Evrópugrundvelli á þessu sviði til framtíðar.
Núverandi forgangsmál eru m.a.:
• Bekkjar- og skólastarf
Rannsókn á námi í skólum án aðgreiningar með sérstöku tilliti til hagkvæmni-
sjónarmiða.
• Leiðin úr skóla og út á vinnumarkað
Greining á þeim leiðum sem farnar eru í Evrópu þegar fatlaðir ljúka skóla-
göngu og þurfa að aðlaga sig þátttöku í daglegu lífi og starfi.
• Upplýsinga- og samskiptatækni
Rannsókn á notkun upplýsinga- og samskiptatækni (ICT) á sviði sérkennslu.
• Tækni upplýsingasamfélagsins og sérkennsluþarfir
Uppbygging European Network of Excellence sem sameinar hópa rannsókn-
araðila og sérfræðinga, annars vegar á sviði upplýsingatæknisamfélagsins (IST)
og hins vegar á sviði sérkennsluþarfa (SEN).
Á vefsíðu miðstöðvarinnar, www.european-agency.org, er að finna saman-
burðarupplýsingar um hvernig sérkennsla fer fram hjá öllum þátttökuþjóðun-
um og einnig ítarlegar greinargerðir frá hverju landi fyrir sig ásamt upplýsing-
um um tengiliði. Einnig er þar að finna upplýsingar um uppákomur, áhugavert
útgáfuefni, tengingar við aðrar vefsíður, útdrætti úr útgáfuefni á ýmsum tungu-
málum og upplýsingar um verkefni innan Sókrates-menntaáætlunar Evrópu-
sambandsins.
Skýrslan sem varð hvati að netráðstefnunni heitir Financing of special needs
education og byggir á rannsókn sem unnin var í sautján löndum (þ.á.m. Íslandi)
á samhengi milli fjárveitinga til sérkennslu og náms í skóla án aðgreiningar.
Niðurstöður rannsóknarinnar eru kynntar í skýrslunni ásamt með tillögum.
Skýrslan er 180 bls. og fáanleg á ensku og frönsku og væntanleg á þýsku.
Útgefið efni miðstöðvarinnar má panta skriflega, í síma eða með faxi hjá að-
alskrifstofunni: The European Agency for Development in Special Needs Ed-
ucation, Secretariat, Teglgaardsparken 100 · DK 5500 Middelfart · Denmark
Sími: +45 64 41 00 20, fax: +45 64 41 23 03, netfang:
adm@european-agency.org
Útdrættir eru einnig á ýmsum tungumálum á vefsíðunni. Nokkur eintök af
skýrslunni eru til hjá menntamálaráðuneytinu, hafið samband við Guðna
Olgeirsson.
Fjármögnun sérkennslu
Undanfarin tvö ár hefur verið gefið út ritið
Listir-saga-menning-náttúra en þar er að finna
á einum stað upplýsingar um hina fjölþættu
fræðslustarfsemi sem fram fer í ýmsum stofn-
unum í Reykjavík og nágrenni. Í ritinu sem
gildir fyrir skólaárið 2000-2001 eru kynnt um
50 verkefni sem grunnskólanemendum
standa til boða en í ritinu eru Árbæjarsafn -
Minjasafn Reykjavíkur, Listasafn Reykjavíkur,
Þjóðminjasafn Íslands, Fjölskyldu- og hús-
dýragarðurinn, Sorpa og Borgarleikhúsið auk
ótal annarra. Allir þessir aðilar bjóða upp á
markvissa fræðslu fyrir skólanema og þar er
sérhæft starfsfólk sem tekur á móti hópum.
Í riti þessu er að finna söfn og stofnanir út
um allt land sem kennarar geta leitað til, bæði
til að afla upplýsinga og koma með nemendur
í heimsókn og gefa þeim þannig tækifæri til
að sjá viðfangsefni skólabókanna frá nýjum
sjónarhóli. Markmið með útgáfu kynningar-
ritsins er meðal annars að auðvelda kennur-
um störf en á bakhlið þess er almanak þar
sem sjá má hvað er í boði, hvar og hvenær.
Við sem að útgáfunni stöndum teljum mikil-
vægt að kennarar geti tengt þessar fræðslu-
ferðir við verkefni sem nemendur glíma við í
skólunum, að heimsóknir á söfn eða stofnanir
verði hluti af námi hvers nemanda. Þannig
verður vinna okkar allra markvissari og nem-
endur fá meira út úr heimsóknunum. Nú er
unnið að útgáfu þriðja ritsins sem mun gilda
fyrir skólaárið 2001-2002 og eru allar ábend-
ingar um breytingar og lagfæringar vel þegn-
ar. Ritstjórar eru Gerður Róbertsdóttir deildar-
stjóri fræðsludeildar Árbæjarsafns - Minja-
safns Reykjavíkur gr@rvk.is og Ólöf K. Sigurð-
ardóttir deildarstjóri fræðsludeildar Listasafns
Reykjavíkur loa@rvk.is
Vettvangsferðir
og safnaheimsóknir -
er það fyrir þig?
7