Skólavarðan - 01.04.2001, Page 9
En hvað er helst líkt og hvað ólíkt? Skóla-
varðan fékk Elnu Katrínu Jónsdóttur og
Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur til að velta
þessu fyrir sér.
Elna: Staða grunnskóla- og framhalds-
skólakennara í kjaramálum var lík áður en
gengið var til samninga og líkar áherslur
birtust í viðhorfskönnunum á vegum FG og
FF svo sem að megináherslu bæri að leggja
á stórhækkuð grunnlaun.
Guðrún Ebba: Ef við athugum það sem
er ólíkt kemur samningaferlið strax í hug-
ann enda um mjög ólíka viðsemjendur að
ræða. Annað sem greinir á milli er að helstu
breytingar í kjarasamningi grunnskóla
koma ekki til framkvæmda fyrr en með nýju
skólaári.
Elna: Veruleg grunnkaupshækkun í
framhaldsskólum kom til framkvæmda strax
í janúar en þar er þó á ferð blanda af launa-
hækkun og tilfærslu milli vinnuþátta. Í upp-
hafi stóð ekki til að upptöku nýs launakerfis
og tilfærslur bæri svona brátt að, en eftir
tveggja mánaða verkfall var komin gríðar-
leg pressa á að ná ávinningi í launaumslagið
strax.
Guðrún Ebba: Aðdragandinn hljómaði
skynsamlega hjá okkur og þó að hann sé
langur er hann vissulega nauðsynlegur skól-
unum til að undirbúa nýtt kerfi. Við settum
á laggirnar sérstaka verkefnisstjórn sem hélt
um tug námskeiða fyrir trúnaðarmenn,
skólastjóra og fulltrúa sveitarfélaga. Margir
bíða eftir handbókinni en í henni verður að
finna verklagsreglur vegna framkvæmdar-
innar.
Einföldun vinnutímakafla
Elna: Einnig er mikill munur fólginn í
því að FG er með yfir hundrað viðsemjend-
ur en FF aðeins einn og innan við þrjátíu
skóla. Ef við víkjum að því sem er líkt, var
náttúrulega sama áhersla á mikla hækkun
dagvinnulauna. Hjá okkur bættist við að
auka hlut þeirra í heildarlaunum, enda
meiri munur þar en hjá FG. Svo einfölduð-
um við vinnutímakaflann mjög mikið og
drógum úr skilgreiningum, en gerðum ekki
grundvallarbreytingar á kennsluskyldu,
hvorki í vikustundum talið né í samsetningu
kennslu og undirbúnings.
Guðrún Ebba: Við einföldum líka á
þennan hátt en göngum lengra í að færa
ákvarðanir um vinnutíma út í skólana. Við
segjum ekki nákvæmlega hvernig vinnutími
kennara skuli vera og í þessu felst viss vörn
sem ég vona að kennarar komi auga á,
þ.e.a.s. að einhvern tíma er vinnutíma
lokið og yfirvinna tekur við. Það getur
verið yfirvinna vegna undirbúnings
eða umsjónarstarfa alveg eins og vegna
kennslu. Við erum ekki að rýma
til fyrir nýjum störfum, þá þyrfti að
lækka kennsluskyldu og það er seinni
tíma mál. Við leggjum áherslu á að
umsjónarkennari fái tíma til að sinna
umsjónarstarfi eins og aðalnámskrá og
samfélagið í heild kalla á, og eins og
búið er að tala um árum saman. Þegar
hans vinnu sleppir er vinnutíminn í
raun búinn og lítill tími fyrir ný störf.
Elna: Þetta á ekki við um FF en
einnig við leggjum meiri áherslu á
launaröðun en ekki aðeins á vinnutíma
vegna viðbótarstarfa. Breytingar á kafla um
vinnutíma eru mjög ólíkar í kjarasamning-
um FF og FG enda gerðum við uppskurð á
þeim kafla framhaldsskólasamninga 1997.
Margt af því reyndist ekki nógu vel en ann-
að gat auðveldlega komið inn í samninginn
núna. Við hverfum til dæmis frá nákvæm-
um mælingum. Margt er líkt í nýjum skil-
greiningum í vinnutímakaflanum en að-
ferðir eru ólíkar. Enda eru þrjú ár ekki
langur tími í samningavinnu, þetta er þróun
sem heldur áfram og hluti af því að laga
skóla að samfélagsbreytingum.
Vanir miðlægum kjarasamningum
Guðrún Ebba: Við drögum úr nákvæm-
um skilgreiningum í kjarasamningum en
við hefðum getað gert miklu róttækari
breytingar því að mörkin milli mismunandi
starfa kennara eru svo oft óljós og þess
vegna vildum við ekki skilgreina of ná-
kvæmlega.
Elna: Í þessum samningum er mikið
sögulegt samhengi. Megináherslur eru líkar
en ólíkar leiðir farnar í sumum málum og
endurskipulagning einstakra þátta kjara-
samninga á sér stað á mismunandi tíma.
Guðrún Ebba: Það eru ekki margar til-
viljanir í þessu.
Elna: Nei. Ef ég hugsa um grunnskóla-
samninginn finnst mér fólk vera allt of
Samningar
12
Árið 1995 sömdu grunnskóla- og fram-
haldsskólakennarar saman enda voru
þá grunnskólar reknir af ríkinu. Árið
1997 var samið á mismunandi tíma og
hafði grunnskólinn þá fengið nýjan
viðsemjanda eftir flutning hans til
sveitarfélaga. Öflug samvinna var þó
milli HÍK og KÍ og sátu formenn hvors
þeirra í báðum samninganefndum.
Þannig er hefð fyrir samstarfi um
samninga- og kjaramál milli skólastiga
sem nýtt félagaskipt Kennarasam-
band heldur á lofti og engan þarf að
undra að kennarar eiga margt sameig-
inlegt varðandi samningamál og
breytingar á launum og starfskjörum,
óháð því hvaða stigi þeir kenna á.
Samningar grunnskólakennara og framhaldsskólakennara
Margt líkt en annað ólíkt
Guðrún Ebba: Þessi leið,
að skilja eftir tiltekinn
fjölda launaflokka fyrir
skólana að deila út, er að
vissu leyti tilraun sem
fólk ákveður í næstu
kjarasamningum hvort
það vill ganga lengra
með eða færa inn í töflu.