Skólavarðan - 01.04.2001, Page 13
„Nýr kjarasamningur framhaldsskólakenn-
ara er varla kominn til framkvæmda en
ljóst er að hann mun hafa veruleg áhrif á
endurmenntun,“ segir Hafdís Ingvarsdóttir
lektor í uppeldis- og menntunarfræði, sem
jafnframt stýrir námi í kennslufræði til
kennsluréttinda og situr í
endurmenntunarnefnd fram-
haldsskóla. „Nú eru ekki
lengur gefin endurmenntun-
arstig og meira lagt upp úr
að fólk ljúki formlega ein-
hverju námi. Lögð er áhersla
á meiri dýpkun í endur-
menntuninni sem er mjög
jákvætt.“
Hafdís segir nýjar náms-
leiðir sem í boði eru fyrir
framhaldsskólakennara vera í
takt við þessa áherslubreyt-
ingu. „Við gátum séð fyrir
mikilvægi þess að dýpka og
lengja endurmenntun og
hafa hana fjölbreyttari, og
uppeldis- og menntunar-
fræðin er að bregðast við því.
Hingað til hafa stutt sumar-
námskeið einkennt endur-
menntunina en sennilega
mun draga úr þeim.“ Hafdís telur þó ekki að
sumarnámskeið muni leggjast af vegna þess
að kennarar muni halda áfram að sjá sér
bæði faglegan og félagslegan ávinning af að
sækja þau. „Sumarnámskeiðin verða ekki
lengur þungamiðja vegna þess að annars
konar endurmenntun mun koma í þeirra
stað, en þau þurfa engu að síður að vera
áfram í boði. Miklu máli skiptir að kennarar
úr ólíkum skólum og frá ólíkum stöðum á
landinu fái tækifæri til að hittast og skiptast
á skoðunum. Sumarnámskeið eru líka góð
til að kynna nýjungar. Kennarar verða að
hafa forsendur til að ákveða sjálfir hvaða
endurmenntun þeir vilja og til þess þurfa
þeir að vita hvað er nýjast og velja úr því. Ég
sé sumarnámskeiðin einmitt fyrir mér sem
þess háttar kynningu,“ segir Hafdís.
Nýjar námsleiðir í Háskóla Íslands
Uppeldis- og menntunarfræði við HÍ
býður nú upp á þrjár tegundir af framhalds-
námi, þar af tvær sem eru nýjung á þessum
vettvangi. „Annars vegar er Dipl.Ed. nám-
ið,“ segir Hafdís. „Það er 15 eininga nám
sem unnt er að stunda með vinnu. Þetta
nám skiptist í þrjár línur. Sú fyrsta er mat
og þróunarstarf sem er mjög nauðsynlegt
vegna þess að þótt ætlast sé til mats af öll-
um skólum eru kennarar ekki endilega til-
búnir að fara í tveggja ára meistaranám í
þeim tilgangi að geta innt þetta starf af
hendi. Þessar 15 einingar eiga að gefa næga
þekkingu til þess að fólk geti stýrt
matsvinnu í skólanum.
Önnur línan er kennslufræði og náms-
efnisgerð sem felst í kynningu á nýjungum í
kennslufræði þeirrar greinar sem kennarinn
kennir, nýjungum í almennri kennslufræði,
m.a. í fjarkennslu, og loks námsefnisgerð.
Fjarkennslan er í stöðugri sókn,“ segir Haf-
dís og brosir, „hún er eins og fiskeldið, allir
vilja eiga hlutdeild í henni. Ég vona bara að
þetta fari betur en í fiskeldinu!“ Hafdís seg-
ir að vegna nýrrar aðalnámskrár þurfi að
semja mikið af nýju námsefni. „Það er ekki
sjálfgefið að góðir og reyndir kennarar
kunni að semja námsefni.“
Þriðja línan ber heitið fræðslustarf og
stjórnun. „Fólk sem starfar ekki í skólakerf-
inu hefur verið að koma inn í kennslufræði-
námið. Þetta er fólk sem starfar í fyrirtækj-
um og stofnunum við fræðslu og forvarnir
og hefur rekið sig á að það vantar kennslu-
fræði. Kennsluréttindanámið
sem slíkt er hins vegar miðað
við þarfir skólakerfisins. Þessu
fólki þarf að bjóða annan kost
og það er ætlunin með þessari
línu. Þar er fjallað um skipulag
fræðslu, gerð fræðsluefnis og
nýjar stjórnunarkenningar, til
dæmis um mun á konum og
körlum sem stjórnendum.“
Fyrir þá sem vilja halda
áfram er boðið upp á M.Ed.
nám sem er 45 eininga starfs-
tengt meistaranám, þar sem
lögð er áhersla á að þjálfa fólk
í þróunarstarfi. „Þetta er það
sem stundum er kallað pro-
fessional master á ensku og
snýst um að auka hæfni fólks í
því starfi sem það er í nú þeg-
ar,“ segir Hafdís. „Einnig er
að sjálfsögðu í boði 60 eininga
M.A. nám þar sem áherslan er
á að þjálfa fólk til rannsókna.“
Vettvangsnám er það sem koma skal
Endurmenntun færist smám saman meira
inn í skólana að sögn Hafdísar. „Ótal rann-
sóknir gefa sterkar vísbendingar um að
endurmenntun sem fer fram á skólatíma
tengd starfsvettvangi sé miklu skilvirkari en
þriggja til fjögurra daga námskeið utan
vettvangs,“ segir hún og nefnir meðal ann-
ars skrif Kanadamannanna Fullan og
Hargreaves í þessu samhengi. „Framboð á
Framhaldsmenntun
17
Á seinni árum hefur umræðan um
menntun alla ævi orðið æ fyrirferðar-
meiri og um þessar mundir er bein-
línis gengið að því sem gefnu í mörg-
um fyrirtækjum að starfsmenn end-
urmennti sig árlega. Skólinn hefur
ekki farið varhluta af þessari þróun.
Þeir sem sinna endurmenntun kenn-
ara eru með á nótunum eins og fram
kemur í viðtölum við þau Hafdísi
Ingvarsdóttur, Andrés Guðmundsson
og Ingvar Sigurgeirsson.
Endurmenntun símenntun framhaldsmenntun
Breytingar á framboði,
formi og innihaldi
Mikil gerjun -
hver verður þróunin?