Skólavarðan - 01.04.2001, Page 14
vettvangsnámi er allt of lítið vegna þess að
það er dýrt og fjármunir sem eru settir í
endurmenntun eru allt of litlir. Þó höfum
við getað boðið upp á heilsvetrar vettvangs-
nám undanfarinn áratug og tökum þá yfir-
leitt fyrir eitt til tvö greinasvið á vetri. Þetta
nám er bundið við 80% þátttöku kennara á
viðkomandi sviði í hverjum skóla sem sækir
um. Í þessu námi tengjast skólar víða á
landinu sem annars eru í litlu eða engu
sambandi og vinna náið saman.“ Hafdís
segir að vettvangsnámið hafi hlotið mjög
jákvæðar viðtökur og kennarar tali um að
það skili góðum árangri.
Einnig setur endurmenntun framhalds-
skólakennara upp sérstök áhersluverkefni,
sem dæmi má taka mjög vel sótt 15 eininga
nám í námskrárgerð og vettvangsnám
vegna almennrar námsbrautar sem áður
hefur verið kynnt hér í blaðinu. Ein tegund
náms fær sérstaka fjárveitingu en það er
nám í upplýsingatækni, „og kemur engum á
óvart,“ segir Hafdís og brosir. „Kennarar
velja sér námskeið sem viðurkenndir aðilar
annast og geta sótt um að taka eitt til tvö
námskeið á vetri.“
Vilji og áhugi kennara og skóla-
stjórnenda er fyrir hendi
„Endurmenntunarnefnd fundaði með for-
mönnum faggreinakennara í haust þar sem
þeir voru beðnir um að gera stefnuáætlun í
endurmenntun, hver fyrir sitt félag, og þær
eru að koma inn núna. Það þýðir að stefnu-
mótun er í höndum kennara sem er mjög
mikilvægt. Hins vegar skortir að fjármagn sé
sett í fleiri hluti en upplýsingatækni, sem er
einskis virði ef kennslufræðin fylgir ekki
með. Ekki er nóg að hafa tækin og tólin,
það þarf líka að vita hvernig á að nota þau,“
segir Hafdís. „En þetta tekur tíma. Skóla-
þróun er alltaf hægfara. Skóli er geysilega
flókin stofnun og það er í mannseðlinu að
óttast breytingar. Samband nemenda og
kennara er viðkvæmt og af hverju á kennari
að fara að taka áhættu og kenna einhvern
veginn öðruvísi ef allt gengur vel að hans
mati? Mikilvægt er að allir skilji að breyt-
ingar gerast ekki í einu vetfangi og að kenn-
arinn er algjör lykilmaður í öllu þróunar-
starfi. Ef hann vill ekki breyta þá verður
ekki breytt. Námskrá breytir engu þar um.“
Hafdís er spurð að lokum hvað hún
myndi gera ef hún hún hefði í höndum
ótakmarkað fé til endurmenntunar. „Ég
myndi veita fé í þróunarstarf þar sem unnið
væri í hverjum skóla fyrir sig. Sérfræðingar
færu þá inn í skóla og ynnu með kennurum
á þeirra forsendum. Kennarar myndu stýra
náminu sjálfir og skilgreina þarfirnar. Til
að þetta væri unnt þyrfti að tryggja kennur-
um nægan tíma, þ.e. að þeir gætu kennt
minna á meðan þróunarstarfið varir.“
Miklar breytingar á símenntun
grunnskólakennara
Andrés Guðmundsson veitir Símenntun-
arstofnun Kennaraháskóla Íslands forstöðu
en stofnunin er að nokkru leyti í rekstrar-
legu millibilsástandi um þessar mundir þar
sem fjármagn til hennar er ekki tryggt.
„Það má segja að símenntun sé að ganga í
gegnum mikið breytingaferli sem hófst
með flutningi grunnskóla til sveitarfélaga. Í
kjölfarið var endurmenntunarsjóður grunn-
skóla stofnaður árið 1999 og nýafstaðinn
kjarasamningur mun einnig hafa áhrif. Við
lifum á spennandi óvissutímum,“ segir
Andrés og brosir.
Áður sá endurmenntunardeild KHÍ alfar-
ið um endurmenntun grunnskólakennara
og fékk til þess fasta upphæð á fjárlögum
sem síðan var skipt upp og útdeilt til kenn-
ara í formi sæta á námskeiðum. Til þess að
þau fengjust metin til stiga þurftu þau að
vera 20 kennslustundir og tóku að jafnaði
þrjá daga. Með stofnun endurmenntunar-
sjóðs breyttist fjármögnunin á þann hátt að
peningarnir sem upphaflega runnu til KHÍ
voru settir í sjóð sem allir gátu sótt um í.
Hugmyndin að baki var sú að þetta hvetti
fleiri til að sækja um, til að mynda símennt-
unarmiðstöðvar í dreifbýli. „Endurmennt-
unarsjóður hefur því byggðastefnu að leið-
arljósi og útdeilir fé meðal annars eftir því
hvar námskeið eru haldin. Í þessu samhengi
er litið á KHÍ sem Reykjavíkurskóla sem
hefur áhrif á möguleika hans til að sækja í
sjóðinn,“ segir Andrés. „Fram á þetta ár
fengum við aukafjárveitingu en því hefur nú
verið hætt og Símenntunarstofnun er því í
dag rekin eins og hvert annað einkafyrir-
tæki á markaði en faglega séð hefur hún
öflug tengsl við skólakerfið.
Við allar þessar breytingar á rekstrar-
formi breytist símenntunin sjálf einnig.
Námskeið færast af sumartíma yfir á starfs-
tíma skóla sem er í sjálfu sér ágætt en tekur
tíma og krefst nokkurra fórna. Þetta er
4000 manna stétt og 30-40 aðilar sem
keppast um símenntun henni til handa. Í
síðustu úthlutun veitti endurmenntunar-
sjóður grunnskóla rúmlega 26 miljóna
króna styrk til 142 námskeiða sem 36 aðilar
standa að og að mínu mati er verið að kasta
peningum á glæ,“ segir Andrés. „Þetta eru
Framhaldsmenntun
18
Hafdís: Ótal rannsóknir
gefa sterkar vísbendingar
um að endurmenntun
sem fer fram á skólatíma
tengd starfsvettvangi sé
miklu skilvirkari en
þriggja til fjögurra daga
námskeið utan vettvangs.