Skólavarðan - 01.04.2001, Side 20
Við ræktum með börnunum heil-
brigðan metnað og kennum þeim að
vinna af alúð, fullviss þess að þau nái
árangri. Við leitumst við að taka eitt
skref í einu og látum þessi skref leiða
okkur áfram til frekari skilnings og
mannkærleika.
(Marsibil aðstoðarskólastjóri)
Á síðari hluta 9. aldar bjó í Noregi maður
að nafni Flóki Vilgerðarson. Hann sigldi til
Íslands ásamt fríðu föruneyti. Söguna af því
hvernig hann náði til lands með aðstoð
hrafna sinna þekkja flestir en Flóki fékk í
kjölfarið viðurnefnið Hrafna-Flóki. Á leið
sinni til baka frá Íslandi höfðu Hrafna-
Flóki og hans fólk viðkomu í Hafnarfirði.
Þar fundu þau hval á eyri einni og kölluðu
hana Hvaleyri.
Ríflega níuhundruð árum síðar var skóli
tekinn í notkun á holtinu fyrir ofan Hval-
eyrina og tók nafn af eyrinni, Hvaleyrar-
skóli.
Verum jákvæð og sanngjörn gagn-
vart nemendum okkar og stefnum
markvisst að því að hverjum og einum
líði sem best. Þannig náum við há-
marksárangri.
(Hjördís J. kennari)
Hvaleyrarskóli tók til starfa haustið 1990
í nýju hverfi í Hafnarfirði sem var í hraðri
uppbyggingu. Helga Friðfinnsdóttir var
ráðin skólastjóri og í hennar höndum var
að móta skólastarfið í hinum nýja skóla.
Hugmyndir hennar voru skýrar,
hún vildi að skóli og starfsfólk settu
sér á hverju hausti markmið sem
yrðu skráð niður og farið eftir.
Meginmarkmið skólans eru ,,að
stuðla að vellíðan nemenda, alhliða
þroska og heilbrigði og góðum ár-
angri þeirra í starfi. Bjargföst trú
okkar sem í skólanum starfa er að
við náum þessu meginmarkmiði að-
eins með jákvæðu og öflugu sam-
starfi við heimilin. Því er annað
meginmarkmið Hvaleyrarskóla já-
kvæð og lifandi samvinna heimila og skól-
ans, segir Helga“.
Á þessa leið hljóðaði markmiðslýsing
Helgu skólastjóra fyrir veturinn 1999 til
2000 en hún og annað starfsfólk setja sér
markmið að hausti og endurskoða þau eftir
þörfum.
Við reynum að taka okkur sjálf ekki
of hátíðlega, bæði börn og fullorðnir,
heldur að sjá skoplegu hliðarnar á til-
verunni og okkur sjálfum.
(Helga skólastjóri)
,,Strax fyrsta veturinn settum við mark-
mið. Með því að hafa markmið og gildi
skólans skýr, stuðlum við að aukinni vellíð-
an barnanna og starfsfólks skólans og rækt-
um þannig góðan skólaanda. Síðan höfum
við byrjað hvert skólaár áður en kennsla
hefst á að endurskoða og setja ný markmið
og áherslur. Við höfum fengið til liðs við
okkur fólk utan skólans eins og heimspek-
ing, sálfræðinga, leikara, íslenskufræðinga
og leikskólastjóra sem hjálpa okkur að
skerpa markmiðin og finna nýjar leiðir til
að ná þeim,“ segir Helga.
Í fyrravetur var gengið lengra og útbúin
handbók um hvernig hlutirnir ættu að vera;
í raun leiðbeiningar um skólastarfið í Hval-
eyrarskóla. Þar er meðal annars að finna
verklagsreglur skólans sem samdar voru
samkvæmt mati á skólastarfi 1999 til 2000
og skráðar og samþykktar af öllu starfsfólki
skólans. Helga telur miklu einfaldara að
hafa reglur skráðar og það auðveldi fólki að
fara eftir þeim.
Með áhuga og gleði getum við víkk-
að sjónarhorn nemenda á lífið og til-
veruna. Agi og skipulag er ramminn
fyrir hugarflug í hæstu hæðir.
(Hafdís kennari)
Helga leggur mikla áherslu á áætlanagerð
af ýmsu tagi, allt frá heilsársáætlunum niður
í sérhverja stund hvers dags og telur það
hafa reynst mjög vel, bæði hvað varðar
bættan námsárangur og sérstaklega þegar
forföll verða. Einnig eru haldnir reglulegir
deildarstjóra- kennararáðs-, kennara-,
deildar- og starfsmannafundir þar sem hver
starfsmaður fær tækifæri til að láta skoðanir
sínar í ljós. Þannig er starf skólans stöðugt
metið; það sem vel er gert og það sem bet-
ur mætti fara. Allt er þetta skráð niður og
fundnar leiðir til úrbóta.
Aðrar leiðir til að ná markmiðum skólans
eru ýmis samvinnu- og þróunarverkefni.
Einu sinni á ári er unnið að verkefni sem
kallast K-B-F sem stendur fyrir
kennarar - börn - foreldrar. Margs
konar verkefni hafa verið unnin, til
dæmis um samskipti, fjölskylduna,
,,bæinn minn“, jólin og leiki.
Í október árið 2000 var farið af
stað með átaksverkefnið Kurteisi og
agi, en í raun var byrjað að vinna
með þau hugtök strax árið 1993. Þá
fór starfsfólk skólans til Glasgow
þar sem þau heimsóttu skóla og
tóku þátt í námskeiðum. Helga segir
að þau hafi hrifist af þeim jákvæða
aga sem er í skoskum skólum og í kjölfarið
þróað áætlun um kurteisi og aga og samið
umgengisreglur sem allir áttu að starfa og
fara eftir í skólanum. Áætlunin var tileinkuð
Vigdísi Finnbogadóttur forseta.
Grunnhugmyndin er að koma fram við
aðra eins og við viljum láta koma fram við
okkur. Þetta samvinnuverkefni gengur út á
það að foreldar fá sendar heim þær reglur
sem gilda í skólanum og eru beðnir um að
fara yfir þær með börnunum, skrifa undir
þær og senda blaðið til baka þar sem börn
og foreldrar samþykkja að gangast undir
reglurnar.
,,Það er mjög gott að hafa þetta svona“
segir Helga og bendir á að það sé gott að
geta bent foreldrum og nemendum á að
þeir hafi skrifað undir reglurnar. Í Hvaleyr-
arskóla er starfandi fagstjóri í kurteisi og
aga sem hefur unnið geysilega gott starf og
er formaður eineltisteymis skólans.
Heimsóknin
26
Hvaleyrarskóli
,,Það er okkur að kenna
ef nemanda gengur ekki nógu vel í skólanum”
Efri mynd: Helga skólastjóri
Neðri mynd: Marsibil aðstoðarskólastjóri