Skólavarðan - 01.04.2001, Blaðsíða 22
Alls sóttu 1033 félagar um orlofshúsnæði í sumar. Af þeim sendu 386, eða 37,4%, inn umsókn á orlofsvefnum sem er mjög
gott miðað við að þetta er í fyrsta skipti sem sá möguleiki er í boði. Vinsælustu staðirnir eru Ásabyggð, Hallormsstaður,
Kjarnaskógur, Munaðarnes, Aðaldalur, Auðnufell, Stóru-Skógar og Garðshorn við Hæðargarðsvatn. Vinsælasta vikan er 20. til
27. júlí. Um 10% þeirra sem sóttu um nýttu sér aðeins einn kost á umsóknareyðublaðinu sem þýðir mun minni möguleika á út-
hlutun.
Úthlutun fór fram 21. apríl og allir fengu sent bréf strax að henni lokinni. Seinni úthlutun verður lokið um miðjan maí. Þær
vikur sem ekki ganga út verða settar strax á net-
ið þar sem gildir að fyrstur fær. Hringið eða
sendið tölvupóst.
Vakin er athygli á að fréttir eru birtar reglu-
lega á orlofsvef KÍ.
Valgeir Gestsson, ritari orlofssjóðs
Umsóknarfrestur er útrunninn en vikur sem ekki
ganga út verða settar á netið
Kennarasamband Íslands og Félag íslenskra leikskólakennara standa
fyrir skólamálaþingi í september á þessu ári. Þingið verður haldið að
Borgartúni 6 í Reykjavík þann 8. september kl. 9.00 til 14.30 og í Mennta-
skólanum á Akureyri þann 29. september kl. 9.30 til 14.30.
Viðfangsefni þingsins verður fagmennska kennara. Fjall-
að verður um hana bæði í tengslum við breytingar á
skólastarfi og áhrif einkavæðingar á skólastarf. Á þinginu
flytja erindi bæði erlendir og innlendir fyrirlesarar. Meðal fyrir-
lesara verða Andy Hargreaves prófessor við University of
Toronto, Páll Skúlason rektor HÍ, Sigurjón Mýrdal dósent við
KHÍ, Jóhanna Einarsdóttir dósent við KHÍ og Þórir Þórisson
kennari við Tónmenntakennaradeild Tónlistarskólans í Reykja-
vík. Nánari dagskrá og skráning verður auglýst síðar.
Að þinginu standa kennarar, stjórnendur og ráðgjafar í leik-
skólum, grunnskólum, tónlistarskólum og framhaldsskólum.
Skólamálaþing 2001
Eins og undanfarin ár verður tekið á móti skólahópum í
Viðey í apríl og maí en vakin skal athygli á því að síma-
númer hefur breyst. Oddný, ráðsmaður í Viðey, tekur á
móti skólahópum í vor. Hún tekur á móti pöntunum og
veitir upplýsingar í síma 568 0535.
Gerður Róbertsdóttir, deildarstjóri fræðsludeildar Árbæj-
arsafns - Minjasafns Reykjavíkur.
Kennarar athugið breytt
símanúmer í Viðey!
Námskeiðið verður haldið að Reykholti í Borgarfirði dagana 9. og 10. ágúst, kl. 09:00 til 22:00 fyrri daginn og 09:00 til 17:00
þann síðari. Nánari námskeiðslýsing er á slóð Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi, www. simenntun.is
Gengið er út frá því að notkun sagna efli sjálfstraust og þjálfi hlustun nemenda og bæti aðgang að reynsluheimi, menningu
og tungutaki þess samfélags sem viðkomandi hrærist í. Efling frásagnarlistar í skólum er jafnframt andsvar við hraða nútíma-
þjóðfélags og afþreyingu þess (bíómyndum, sjónvarpi, tölvuleikjum o.fl.), minnkandi fortíðarvitund og byggist á hinum sígilda
málshætti að maður er manns gaman.
Markmið
• Að kennarar verði færir um að segja sögur og nota í kennslu, bæði eigin frásagnir og sögur nemenda.
• Að hvetja kennara til að flétta sögur og sagnir inn í kennslu sína.
• Að kennarar örvi nemendur til að segja sögur, bæði frumsamdar og sem þeir hafa heyrt
(bannað er að læra sögur utanbókar, einungis kjarna þeirra og spinna síðan út frá honum).
• Að kennarar og nemendur þeirra styrki tengsl við umhverfi sitt, sögu og menningu í nútíð og fortíð með því að segja sögur.
Kennarar
Kennarar eru David Campbell og Claire Mulholland. Auk þess að vera sjálfur vel þekktur sagnamaður kenndi David Camp-
bell ensku í tíu ár og vann í fimmtán ár við fræðslusjónvarp BBC. Hann hefur stjórnað námskeiðum í sagnahefð víða um heim
og nýtur hylli fyrir hæfni til að hvetja og næra upprennandi sagnamenn. David rekur fyrirtækið Story Teller Scotland. Claire
Mulholland er frá Norður-Írlandi en hefur undanfarin ár verið búsett í Skotlandi. Hún er vinsæll sagnamaður og segir sögur
sína á ýmsum vettvangi, allt frá leikskólum til alþjóðlegra hátíða. Hún hefur unnið ötullega í skólum við að hvetja börn og ung-
menni til að segja sögur. Claire hefur haft umtalsverð áhrif á endurreisn sagnahefðar sem hluta samfélags í Edinborg og víðar
í Skotlandi og er einn af helstu frumkvöðl-
um á því sviði.
Námskeiðsgjald er 35.000- kr.
Með gistingu og fullu fæði: 46.000 kr.
EHÍ niðurgreiðir framhaldsskólakennurum
hluta námskeiðsgjaldsins. Umsóknarfrestur er
til 20. júní.
Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi,
Bjarnarbraut 8 Borgarnesi. S. 437 2390
www.simenntun.is
simenntun@simenntun.is
Sumarnámskeið fyrir kennara: Notkun
sagnahefðar í kennslu
er nýtt verkefni evrópska skólanetsins. Aðalviðburðir í tengslum við
eSchola standa vikuna 7. - 11. maí en þegar hefur verið opnuð eSchola-síða
á http://eschola.eun.org þar sem kennurum og skólum gefst færi á að skrá
verkefni sín til verðlauna. Einnig má skrá skóla og einstök verkefni í gagna-
grunn til að vekja athygli á þeim. Aðalmarkmið eSchola er að hvetja til sam-
vinnu skóla og kennara í Evrópu, einkum á sviði upplýsingatækni.
Íslensk eSchola síða er á http://www.fva.is/harpa/enis/-
eschola/escholaindex.html og eSchola-tengill á Íslandi er Harpa Hreinsdótt-
ir, netfang: harpa@ismennt.is
eSchola - Lærum saman
Smáauglýs ingar og t i lkynningar
28