Skólavarðan - 01.08.2001, Page 11
Á Evrópsku tungumálaári 2001 er bæði
samevrópsk og innlend dagskrá. Það var
formlega sett hér á landi í Þjóðmenningar-
húsinu 8. febrúar síðastliðinn með ávarpi
menntamálaráðherra, Björns Bjarna-
sonar.Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi
forseti Íslands og núverandi sendiherra
tungumála hjá UNESCO, fjallaði um mik-
ilvægi tungumálakunnáttu almennt og
Hulda Styrmisdóttir frá Íslandsbanka FBA
ræddi um mikilvægi hennar í atvinnulífinu.
Erlendir jafnt sem innlendir aðilar komu
fram og skemmtu með söng, upplestri og
dansi. Opinber setningarathöfn Evrópsks
tungumálaárs 2001 fór fram í Lundi í Sví-
þjóð dagana 18.-20. febrúar.
Samevrópska dagskráin felst einkum í
viku tungumálanáms innan fullorðins-
fræðslu sem var haldin 5.-11. maí og
evrópskum tungumáladegi 26. september
nk. Endurmenntunarstofnun HÍ hlaut
styrk frá Evrópusambandinu fyrir verkefni
sitt Babelturninn en það fól í sér að standa
að og skipuleggja viku tungumálanáms inn-
an fullorðinsfræðslu í samstarfi við ýmsa
hagsmunaaðila. Af því tilefni lét mennta-
málaráðuneytið þýða og staðfæra leiðbein-
ingahandbók fyrir tungumálanemendur
sem Evrópuráðið og Evrópusambandið
gáfu út sameiginlega. Hún ber titilinn
Leiðir til að læra tungumál á árangursríkan
hátt og er unnt að nálgast hana á heimasíðu
menntamálaráðuneytis, Evrópskt tungu-
málaár 2001, www.menntamalaraduneyti.is
Endurmenntunarstofnun HÍ gaf einnig út
bækling með upplýsingum um helstu
stofnanir hérlendis sem bjóða upp á tungu-
málanám fyrir almenning. Hann heitir
Tungumál opna dyr. Finndu þinn lykil.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins
hefur tvívegis veitt styrki til verkefna vegna
tungumálaársins í aðildarlöndum ESB og
EFTA-EES löndunum Íslandi, Noregi og
Lichtenstein. Í fyrri um-
ferð, í janúar síðastliðn-
um, hlaut Endurmennt-
unarstofnun HÍ styrk til
aðgerða í viku tungumála-
náms innan fullorðins-
fræðslu. Í seinni umferð, í
júní, hlaut verkefni á veg-
um Rannsóknarþjónustu
HÍ styrk. Það ber heitið
Nýir valkostir í kennslu og námi tungumála
og felur í sér ráðstefnu í Reykjavík 8.-9.
nóvember nk.
Hugmyndir að dagskrá og aðgerðum
á tungumáladaginn
Eins og fyrr sagði verður evrópskur
tungumáladagur haldinn 26. september nk.
Dagskrá hans er enn í mótun en m.a. hafa
verið send bréf til allra skóla á landinu þar
sem minnt er á daginn og hvatt til aðgerða
í tilefni hans. Opnaður hefur verið hug-
myndabanki á heimasíðu menntamálaráðu-
neytis, Evrópskt tungumálaár 2001, og
hvet ég skólana til að senda inn hugmyndir
að dagskrá eða aðgerðum á tungumáladag-
inn. Ýmsar hugmyndir hafa þegar borist.
Til dæmis mætti nefna að búa til tungu-
málavegg og tungumálakeðju í skólum,
merkja allar sérstofur á sem flestum tungu-
málum, setja upp leikrit, syngja og fara
með texta á erlendum málum, vera með
tungumálakeppni, sýna evrópskar kvik-
myndir, kynna evrópska matarmenningu,
siði og venjur, virkja öll tungumál sem töl-
uð eru í skólanum og ýmislegt fleira. Það
væri vissulega afar ánægjulegt að sem flestir
skólar sæju sér fært að setja upp e.k. dag-
skrá í tilefni dagsins. Hægt er að fá afnot af
merki ársins og slagorði sem er: Tungumál
opna dyr. Unnt er að fá veggspjöld til að
hengja upp í skólunum og einnig mætti
nýta póstkort sem STÍL, samtök tungu-
málakennara á Íslandi, hafa látið hanna og
gefið út í samvinnu við Kennarasamband
Íslands og menntamálaráðuneytið. Kortun-
um verður dreift í alla skóla fyrir haustið.
Evrópusambandið og Evrópuráðið hafa
sett upp heimasíðu vegna Evrópsks tungu-
málaárs 2001 þar sem kennir ýmissa grasa á
ellefu tungumálum. Netfangið er: www.eu-
rolang2001.org
Nánari upplýsingar veita Jórunn Tómas-
dóttir, verkefnisstjóri Evrópsks tungumála-
árs 2001, jorunn.tomasdottir@mrn.stjr.is
og María Gunnlaugsdóttir, deildarsérfræð-
ingur, maria.gunnlaugsdottir@mrn.stjr.is
Jórunn Tómasdóttir
Evrópa
Á vegum Evrópuráðsins og Evrópu-
sambandsins er nú haldið Evrópskt
tungumálaár 2001. Ísland er eitt 45
þátttökulanda. Markmiðið er að
vekja athygli á fjölbreytni tungumála
og menningar í Evrópu, vinna að fjöl-
tyngi Evrópubúa og stuðla að
símenntun á sviði tungumála. Til-
gangurinn er ekki síst sá að vinna
gegn fordómum þannig að fólk geti
lifað og starfað í sátt og samlyndi í
sameinaðri Evrópu.
Evrópskur tungumáladagur
26. september - skólar hvattir til þátttöku
13
Opnaður hefur verið
hugmyndabanki á
heimasíðu menntamála-
ráðuneytis, Evrópskt
tungumálaár 2001 og
skólar eru hvattir til að
senda inn hugmyndir að
dagskrá eða aðgerðum á
tungumáladaginn.
Jórunn Tómasdóttir, verkefnisstjóri Evrópsks
tungumálaárs 2001