Skólavarðan - 01.04.2003, Síða 7

Skólavarðan - 01.04.2003, Síða 7
Hugtök skýrð Fyrst er rétt að benda á að nokkur hug- tök virðast vera í notkun og ber því stund- um við að ruglað er saman hugtökum. Í stofnanaþætti kjarasamnings hjá ríkinu er oft að finna ákvæði um starfsmannaviðtöl og gjarnan sagt að forstjóri stofnunar taki starfsmannaviðtöl einu sinni á ári. Ekki er fullljóst hvert er markmið þessara viðtala en gera má ráð fyrir að þau eigi að tengjast möguleika starfsmanna á að flytjast á milli launaflokka. Grunnur slíkra viðtala er mat á einstaklings- og starfsbundnum þáttum. Í kjarasamningi Samtaka at- vinnulífsins og Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur eru ákvæði um svokölluð persónubundin laun og segir að starfsmaður eigi rétt á viðtali við yfirmann sinn einu sinni á ári um störf sín og hugsanlega breytingu á starfskjörum. Hér er hugmyndafræðin að ræða efnislega frammi- stöðu starfsmanns og að taka eigi mið af vinnu- framlagi, hæfni, menntun og færni starfsmanns, ásamt innihaldi starfs og ábyrgð sem því fylgir, þegar ákvörðun um laun er tekin. Starfsmannasamtöl hafa verið við lýði í þó nokkuð mörg ár hér á landi. Forsöguna má rekja til þess þegar rótgróin fyrirtæki í byrjun 9. áratugar síðustu aldar innleiddu hjá sér svokallað frammistöðumat sem var notað þegar kom að árangurs- eða frammi- stöðustjórnun. Yfirleitt var formið frekar þungt í vöfum og flókið. Frammistöðumat- ið gekk út á tvennt: Matshlið, þar sem raunveruleg frammistaða starfsmanns var borin saman við þau markmið sem honum voru sett og þá endurgjöf (jákvæða og/eða neikvæða) sem hann fékk í viðtalinu, og starfsþróunarhlið þar sem þarfir og óskir starfsmanns til starfsþróunar voru metnar með tilliti til þeirrar þjálfunar sem nauð- synleg var til að auka hæfni hans og þekk- ingu og færi þannig saman við framtíðar- markmið starfsmanns og skipulagsheildar. Nú hefur þetta þróast yfir í mun einfaldara form. Hið eiginlega frammistöðumat hefur vikið fyrir nýjum aðferðum eins og stefnu- miðuðu árangursmati (balanced scorecard) og starfsþróunarþátturinn hefur fengið meira vægi. Tekin hafa verið upp starfs- mannasamtöl sem liður í gagnkvæmum samskiptum yfirmanna og starfsmanna. Tilgangur starfsmannasamtala Starfsmannasamtöl eins og þau hafa þró- ast eru í raun tæki fyrir stjórnendur og starfsmenn til að tryggja samhengið milli stefnu og þróunar skipulagsheildarinnar og nýtingar mannauðsins. Hér er um að ræða aðferð til að koma á reglulegu samtali milli starfsmanna og stjórnenda með gagn- kvæma upplýsingagjöf og bætt samskipti í huga. Hér er því um nokkurs konar endur- gjöf að ræða þar sem stjórnendur og starfs- menn ræða ýmis málefni sem tengjast starfsumhverfi og sameiginlegum mark- miðum. Það er svo sannarlega mikilvægt að huga að endurgjöf til starfsmanna. Í vinnu- staðagreiningum sem gerðar hafa verið á Íslandi kemur í ljós að sá þáttur sem er hvað mest vanræktur er endurgjöfin. Í nið- urstöðu vinnustaðagreiningar sem Gallup hefur gert fyrir fjölmörg íslensk fyrirtæki og stofnanir kemur í ljós að lægstu ein- kunnina, eða 3.12 (á skalanum 1-5), fær ein af kjarnaspurningunum: „Ég hef fengið hrós eða viðurkenningu fyrir vel unnin störf á síðustu vikum“. Samkvæmt Gallup er talin þörf á að grípa til sérstakra aðgerða fái fullyrðing lægri einkunn en 3.69. Á bak við þessa greiningu eru rúmlega 6.000 starfsmenn hjá einkafyrirtækjum og hinu opinbera. Í vinnustaðagreiningu sem Gallup gerði fyrir Fræðslumiðstöð Reykja- víkur í maí 2002 (sjá www.rvk.is) og nær m.a. til grunnskólanna í Reykjavík er nið- urstaðan 3.56. Í sömu vinnustaðagreiningu kemur í ljós að 71% aðspurðra höfðu farið í starfs- mannasamtal á síðastliðnum 12 mánuðum og 76.8% voru frekar eða mjög ánægðir með samtalið. Þessi aðferð sem tæki til endurgjafar og stjórnunar virðist því vera að ryðja sér til rúms en ekki er gott að segja hvort rétt sé að þessum málum staðið, til þess þyrfti ítarlegri rannsókn. Höfuðmarkmiðið með starfsmannasam- tölum er umbætur þar sem m.a. er reynt að skýra það sem er óskýrt í starfsumhverfinu, ræddar eru vinnuaðstæður og starfsandi. Mjög oft eru starfs- mannasamtölin tengd þróun starfsmanns þar sem niður- stöður samtalsins geta gefið vísbendingu um endurmennt- unar- og þjálfunarþörf hans. Hér er komið að kjarna máls- ins sem er sá að gera greinar- mun á starfsmannasamtölum og launaviðtölum. Almennt er það skoðun fræðimanna og þeirra, sem hafa fengist við þróun starfsmannasamtala hér á landi, að þau eigi ekki að vera vettvangur launaumræðu. Þó brennur einna mest á starfsmönnum að fá að ræða um þann þátt. Rökin fyrir þessu eru m.a. þau að ef starfs- mannasamtöl eigi að vera vettvangur launaumræðu þá komist ekkert annað að í samtalinu. Ágreiningur geti skapast þannig að önnur málefni verði ekki rædd. Í reynd hefur sú leið verið farin hér á landi, bæði hjá fyrirtækjum og stofnunum, að aðskilja Starfsmannasamtöl 8 Síðustu misseri hafa nýjar áherslur í starfsmannamálum haldið innreið sína í vinnuumhverfi okkar Íslend- inga, þeirra á meðal eru starfs- mannasamtöl. Í þessari grein verður leitast við að skýra hvað felst í starfs- mannasamtölum, kostir þeirra og gallar raktir ásamt ávinningi af þeim, bæði fyrir starfsmenn og stjórnendur. Sjónum verður beint að starfsmanna- samtölum eins og þau birtast í hand- bók með kjarasamningi grunnskóla- kennara. Starfsmannasamtöl - tæki til starfsþróunar eða launa- hækkunar? Hér er komið að kjarna málsins sem er sá að gera greinarmun á starfsmannasamtölum og launaviðtölum. Almennt er það skoðun fræðimanna og þeirra, sem hafa fengist við þróun starfsmannasamtala hér á landi, að þau eigi ekki að vera vettvangur launaumræðu. Þó brennur einna mest á starfsmönnum að fá að ræða um þann þátt. Rökin fyrir þessu eru m.a. þau að ef starfs- mannasamtöl eigi að vera vettvangur launaumræðu þá komist ekkert annað að í samtalinu. Ágreiningur geti skapast þannig að önnur málefni verði ekki rædd.

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.