Skólavarðan - 01.04.2003, Síða 16

Skólavarðan - 01.04.2003, Síða 16
skólann. Við komum því á framfæri að þetta sé ekki gert til að draga í dilka, heldur til þess að þau fái þá þjónustu sem þau eiga rétt á samkvæmt aðalnámskrá. Þessi þjón- usta er hins vegar mjög háð því að vandi þeirra sé greindur, sem er mjög erfitt eftir að Lestrarmiðstöð var lokað í fyrra og meðal annars vegna þess að sérkennarar eru yfirleitt ekki starfandi í framhalds- skólum. Hin leiðin til að finna þessa nemendur felst í því að í fyrstu kennsluviku leggjum við texta fyrir alla nemendur í áfanganum ísl 103 en 90% nemenda taka þennan áfanga á fyrstu önn sinni í skólanum. Nem- endur eiga að skrifa textann upp eftir upp- lestri og við lesum hann síðan yfir með til- liti til ýmissa hljóðgreiningarvillna sem benda til hugsanlegrar dyslexíu. Þegar við erum búin að finna krakkana tölum við við þá og segjum þeim hvað er í boði. Við hvetjum þau eindregið til að taka áfangann sem er kenndur á vorönn og gefum þeim til kynna að velgengni þeirra í námi sé á þeirra ábyrgð, þau geti ekki yfirunnið vandann með því að ætlast bara til að við gerum eitthvað fyrir þau. Við reynum jafn- framt að höfða til þeirra með því að nefna að ef þau sýni lit og skrái sig í áfangann, sem er vel að merkja talsvert vinnukræfur og þau fá ekki einingar fyrir hann, þá fái þau lengri tíma í prófum og aðra aðstoð. Þetta hefur gengið mjög vel og flestir þess- ara nemenda kjósa að taka þennan áfanga. Þetta starf ber ótvírætt árangur og við höfum ekki enn staðið frammi fyrir því að útskriftarnemandi hafi ekki það í farteskinu sem hann þarf að hafa til að geta lok- ið tilskildum áföngum. En þess ber að geta að ég er ekki viss um að við fáum til okkar í MH þá nemendur sem eiga í mestum erfið- leikum á þessu sviði því skólinn er vinsæll, um- sóknir mun fleiri en hægt er að taka inn og auðvitað fer fram eitthvert val þar þótt ég þekki ekki nákvæmlega hvernig það er þar sem ég er ekki í innritunarnefnd.“ Rósa Maggý segir að þegar nemendur séu komnir á framhaldsskólastig sé ritunin sá þáttur læsis sem að mestu snúi að kenn- urum. „Skriftarerfiðleikar hamla mest nemendum með dyslexíu á þessu skólastigi en auðvitað eru líka mikil viðbrigði fyrir þau að þurfa að lesa miklu fleiri og lengri námsbækur en þau hafa áður gert. Við byggjum áfangann upp þannig að við kynnum þeim orðhlutagreiningu Baldurs og leitumst jafnframt við að gera þau sjálf- bjarga í að nota ýmis hjálpartæki sem til eru, svo sem leiðréttingarforrit í tölvum og Ritbjörgu eftir Guðlaugu Guðmundsdóttur samkennara minn. Þetta er svo vítt svið og við förum líka inn á fleiri þætti, svo sem hve nauðsynlegt er að koma sér upp þannig rithönd að hún sé skiljanleg öðrum og för- um í uppbyggingu setninga.“ Rósa Maggý og samstarfsmenn hennar bjóða nemendum líka upp á tvo framhalds- áfanga eftir að hafa lokið þessum. Í öðrum áfanga er unnið með skáldsögur og ljóð og lögð áhersla á að auka orðaforðann auk þess sem unnið er áfram með stafsetningu. Sumir nemenda velja að bæta við aðstoð á einstaklingsgrunni sem er í boði að þessum áföngum loknum, en þá fær hver nemandi aðstoð við ritgerðir og önnur verkefni. „Við sleppum ekki hendinni af krökkunum okkar fyrr en þau uppfylla þær kröfur sem með þarf,“ segir Rósa Maggý. Er starfið í góðum farvegi eða þarf að gera einhverjar úrbætur á þjónustu við nemendur með dyslexíu? „Já, auðvitað vantar úrbætur, þetta er alltaf spurning um peninga. Það er tak- markað fjármagn sem fer í þennan mála- flokk en þetta eru nemendur sem eiga rétt á hjálp samkvæmt lögum og við það þarf að standa. Í byrjunaráfanganum okkar voru síðast 22 nemendur en æskilegur fjöldi væri svona átta til tíu manns. Námskráin er full af fyrirheitum og svo eiga skólar endalaust að taka af rýrum kvóta í hitt og þetta til að framfylgja henni. Ég myndi vilja að Lestr- armiðstöð yrði opnuð aftur. Ég hef á til- finningunni að henni hafi ver- ið lokað af því að það var of mikil ásókn í hana og hún ann- aði ekki eftirspurn! Þarna var mjög góð greiningarþjónusta og starfsmenn miðstöðvarinn- ar komu í skólana og greindu stóra hópa. Við fengum svo mjög góðar og gagnlegar skýrslur um hvern nemanda sem nýttust okkur vel í starfi. Við erum íslenskukennarar og þeir eru ekki menntaðir í að greina þessi vandamál, þótt við séum farin að þekkja vandann af reynslu þegar hann kemur inn á borð til okkar. Það er mjög mikilvægt að vita hvar viðkomandi nemandi er slakastur og slíkar upplýsingar fengum við hjá Lestr- armiðstöð.“ Að sögn Rósu Maggýjar hefur viðhorf nemandans til vanda síns úrslitaáhrif um hvernig til tekst að vinna á honum. „Marg- ir krakkar eru búnir að gefast upp og ákveða að þeir geti ekki lært og það er mjög erfitt að takast á við það viðhorf,“ segir Rósa Maggý að lokum. keg Dyslex ía 18 Námskráin er full af fyrirheitum og svo eiga skólar endalaust að taka af rýrum kvóta í hitt og þetta til að framfylgja henni. Ég myndi vilja að Lestrarmiðstöð yrði opnuð aftur. Ég hef á tilfinningunni að henni hafi verið lokað af því að það var of mikil ásókn í hana og hún annaði ekki eftirspurn! Rósa Maggý með Ugga Gunnari syni sínum, sem var sex vikna gamall þegar myndin var tekin snemma í apríl.

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.