Skólavarðan - 01.04.2003, Qupperneq 17

Skólavarðan - 01.04.2003, Qupperneq 17
Aðalfyrirlesari var sænski prófessorinn Ulf Janson. Hann stundaði nám í sálar- fræði, félagsfræði og kennslufræðum í Uppsalaháskóla og útskrifaðist frá Stokk- hólmsháskóla árið 1975 með doktorsgráðu í kennslufræðum fatlaðra. Hann starfar nú sem fyrirlesari í umræddum fræð- um ásamt því að stunda rannsókn- ir í Stokkhólmi og Uppsölum, en hann er yfirmaður rannsókna- og þróunarsviðs félagsmála í Stokk- hólmi. Eiginkona Ulfs, sem fylgdi honum hingað til lands, er Viviane, sálfræðingur og sálgreinir að mennt og rekur eigin stofu. Þau eiga þrjú börn. Hlutverk leiksins í félags- mótun barna Ulf flutti þrjú erindi á námstefnunni. Í hinu fyrsta fjallaði hann um hlutverk leiks- ins í félagsmótun barna og hvernig leikur breytist úr einstaklingsatferli yfir í félags- lega athöfn í hópi. Þeirri þróun fylgir ákveðin jafningjamenning þar sem reynsla og gildi barna endurspeglast í leik þeirra. Upp að vissu marki snýst jafningjamenn- ingin um að halda áhrifum fullorðinna frá. Á leikskólaaldri er þessi tilhneiging afar sveigjanleg og opin en smátt og smátt verður breyting þar á og menningin verður ósveigjanlegri og lokaðri. Á táningsárunum er þessi tilhneiging í hámarki. Að ætla sér að hafa áhrif á slíka menningu með sið- ferðilegum kröfum hefur oftast lítil áhrif. Eitt af meginatriðum jafningjamenning- ar er að einstaklingar innan hennar eru nokkuð jafnir að stöðu og völdum. Þetta er í andstöðu við samskipti barna og fullorð- inna þar sem hinir fullorðnu hafa öll völd. Til þess að algert jafnrétti ríki innan þess- arar jafningjamenningar þurfa fatlaðir að hafa aðgang að henni á leikskólastigi. Séu þeir jafningjar á því stigi standa þeir betur að vígi fyrir framtíðina. Því þarf að hjálpa barni með fötlun til að taka þátt í leiknum, en ekki þarf síður að hjálpa ófötluðum börnum að setja sig inn í aðstæður fatlaða barnsins svo að það geti verið með. Þannig upplifa börnin sameiginlegan skilning og reynslu. Ólíkar forsendur barna í leik Annað erindi Ulfs fjallaði um ólíkar for- sendur barna í leik - samleik fatlaðra og ófatlaðra barna. Slíkt gerist ekki af sjálfu sér. Fötluð börn eru oft einangruð og lítils metin í jafningjahópnum. Á leikskólastigi stafar það þó sjaldan af illkvittni eða for- dómum. Til þess að skilja betur hvers vegna fötluðum börnum er ýtt til hliðar í leik og til að geta gripið inn í á jákvæðan hátt þarf að skilja til hlítar leikumhverfi þeirra. Leikvöllurinn er fyrsta reynsla barna af lýðræði á lífsleiðinni. Í þykjustuleiknum endurgera þau gjarnan lífsreynslu sína og gildi sem oft virðist spinna af sér heilu handritin. Börnin þróa ennfremur með sér innbyrðis atferli, félagsleg lögmál jafningja, aðferðir til að greiða úr átökum og vanda- málum og fleira. Ein af megin forsendun- um fyrir því að ná einhverjum sess og kunnáttu í þessum samskiptum er að hafa aðgengi að leiksvæðinu og þeim lögmálum sem þar eru í gildi og gerjun. Þar reka fötluð börn sig á vegg, misjafnlega erfiðan við að eiga eftir því hversu mikil fötlunin er. Það er hins vegar hlutverk kennarans að komast að því í hverju vandamálin eru fólg- in í barnahópi þar sem einstaklingar hafa misjafnlega góða færni. Í rannsóknum sín- um hefur Ulf komist að því að þeim börn- um er frekar úthýst í leik, sem koma beint og óundirbúin inn í leikinn og krefjast at- hygli, en þeim börnum sem hafa athugað hvað var í gangi í leiknum og geta bætt við handritið. Hann kom með dæmi: Ulf skiptir leiknum í þrjár einingar sem eru samofnar hver annarri. Áþreifanleg eining, þ.e. hlutir, manneskjur. Barnið tekur á móti upplýsingum, er hreyfanlegt og getur handleikið hluti. Tákn- ræn eining, þ.e. handrit leiksins, hlutverk, nöfn og innihald hlut- verka. Barnið skilur þær breyt- ingar sem eiga sér stað í leikflétt- unni og ímyndunarþátt leiksins. Það kemur reynsluheimi sínum sem tákni inn í sam- eiginlegan ramma leiksins. Loks er það félagslega einingin, þ.e. samskiptin, sam- skiptareglurnar, réttlætisviðhorf og deilu- lausnir. Hér hefur barnið hvata og áhuga á að búa til sameiginlegan leik og eiga sam- skipti við börnin sem það er að leika við. Öll þessi atriði hafa áhrif á leikinn og þau eru leikurinn. Til að barn geti verið þátt- takandi í leiknum og verið viðurkennt þarf það að hafa vissan skilning á öllum eining- um leiksins. Það er svo hlutverk kennarans Leikskólabörn með fat lan ir 20 Félag leikskólakennara og Faghópur leikskólasérkennara stóðu fyrir vel sóttri námstefnu á Hótel Sögu 28. mars síðastliðinn. Yfirskrift námstefn- unnar var Leikur - Samskipti - Nám. Markmið hennar var að vekja athygli á þýðingu leiks fyrir nám og þroska allra barna, jafnt fatlaðra sem ófatl- aðra, og beina sjónum að íhlutunar- aðferðum í leik sem hafa gefist vel. Námstefnuna sóttu 160 manns, aðal- lega leikskólakennarar en einnig þroskaþjálfar, sálfræðingar, iðjuþjálf- ar, læknar, lektorar við KHÍ og starfs- menn menntamálaráðuneytis. Leikur - Samskipti - Nám Námstefna um fötluð börn í leikskóla Leikskólastigið er mjög mikilvægt í félags- þroska allra barna, jafnt fatlaðra sem ófatlaðra. Ylfa og Díana eru í læknisleik og eru með veika dúkku á borði. Karl kemur og sest niður og tekur meðalaglas. Ylfa segir ekkert, teygir höndina fram og tekur meðalaglasið af honum og heldur síðan áfram að tala við Díönu. Karl: Ég er líka læknir. Stúlkurnar halda áfram að leika og svara honum ekki. Karl: Ég er líka læknir. Ekkert svar. Eiríkur hefur hins vegar gengið hring eftir hring kringum borðið með dúkku- vagn. Hann gengur að borðinu og segir: Litla barnið mitt er veikt. Díana segir strax: Allt í lagi, allt í lagi. Karl reynir að taka dúkkuna en Eiríkur segir: Nei það ert ekki þú sem átt að gera þetta. Karl sest aftur niður. Díana kemur með umbúðir: Hún hefur brotið handlegginn sinn sé ég. Eiríkur: Nei, henni er illt í fætinum. Díana: Bíddu, hún verður að fá meðal. Karl situr og horfir á og segir: Það er ég sem er læknirinn. Enginn svarar eða tekur eftir honum.

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.