Skólavarðan - 01.04.2003, Qupperneq 20

Skólavarðan - 01.04.2003, Qupperneq 20
Hver kannast ekki við þessa spurningu: Hvað ætlið þið svo að gera eftir samræmdu prófin? Nenna krakkarnir nokkuð að vinna eftir prófin og búið að lengja skólaárið í þokkabót! Þetta reyndist ekki vera vandamál. Það er komin hefð fyrir því hérna í Grunda- skóla að útbúa svokallaða Árgangsbók eða bók með myndum og upplýsingum um nemendur þar sem þeim gefst kostur á að skrifa kveðju til hvers og eins. Okkur lang- aði til að vinna að þessari bók á annan hátt og bæta í hana verkefnum. Þau verkefni sem nemendur áttu að vinna þann tíma sem eftir var skólaársins voru: • Heimildaritgerð sem tengdi íslensku og samfélagsfræði. • Kostnaðar- og ferðaáætlun á dönsku fyrir ferð til Norðurlanda, stærðfræði og danska. • Velja bók á ensku til að lesa og skrifa síðan ritdóm. • Verkefni í náttúrufræði. • Forsíða/kápa, list og verkgreinar. • Upplýsingatækni og tölvunotkun. • Annað efni að eigin vali, alveg frjálst. • Árgangsbókin. Verkefnin skyldi vinna í ,,skrefum“ þannig að nemendur skiluðu uppkasti sem síðan var leiðrétt, lagað og bætt. Sumir nemendur skiluðu verkefnum sínum allt að fjórum sinnum en aðrir sjaldnar og ein- staka nemendur aldrei. Þessi verkefni giltu síðan sem hluti af vetrareinkunn og var mikil áhersla lögð á að þarna hefðu nem- endur góðan möguleika á að hækka vetrar- einkunnina. Við lögðum líka upp með það að nemendur gætu unnið myndasíður í tölvu og einnig bætt í bókina ýmsum göml- um verkefnum. Við brenndum á disk myndasafn frá vetrinum og skönnuðum einnig inn gamlar teikningar og myndir sem einn af þeirra gömlu kennurum hafði varðveitt. Nemendur gátu síðan nýtt sér þetta til að búa til sínar persónulegu síður. Einnig bjuggu þeir til myndasíður úr loka- ferðinni í Þórsmörk. Þessi vinna bætti ótrúlega miklu við tölvukunnáttu margra nemenda. Þeir voru orðnir mjög færir í að skanna og búa til alls konar síður. Þá er einnig hægt að segja að lífsleiknin hafi ver- ið töluvert stór hluti af lokavinnu bókar- innar því þar reyndi á hjálpsemi og um- burðarlyndi. Margir möguleikar voru til að vinna bókarkápuna. Við nutum aðstoðar annars af tveimur smíðakennurum skólans, Mar- grétar Þorvaldsdóttur, við frágang bókar- innar. Hún bauð nemendum upp á að gera bókarkápur úr krossviði og sést vel á mynd- inni hversu vel tókst til. Aðrir völdu að nota gjafapappír og klæða ýmist bókbands- pappa eða bylgjupappa (endurnýting). Þær bækur voru síðan skreyttar með ýmsum hætti og sjáið þið nokkur sýnishorn á myndunum. Margar bækurnar voru orðnar það þykkar að ekki var möguleiki að gorma þær. Við leystum það með því að bora í gegnum allt saman og binda saman með mismunandi böndum eða leðurreimum. Þeir sem eftir voru völdu að plasta forsíðu og baksíðu og gorma (var gert í prent- smiðjunni). Við erum öll ánægð með þessa vinnu, nemendur, kennarar, starfsfólk og foreldr- ar. Hún var mjög skemmtileg og við hvetj- um kennara til að opna augun fyrir öðrum möguleikum en endalausum prófum. Lítið í kringum ykkur og sjáið bara hvað lífið getur verið skemmtilegt. Ekki gefa sér fyr- irfram að þetta unga hæfileikaríka og efni- lega fólk nenni ekki og vilji ekki. Ykkur er velkomið að senda okkur línu og fá nánari upplýsingar. Það sem var skemmtilegast við þessa vinnu var að hver nemandi fór heim með sína persónulegu bók; sem sagt mjög skap- andi starf í alla staði. Tvær ánægðar með sig og sitt. Borghild- ur og Laufey, Grundaskóla, Akranesi. Netföng: borg@grundaskoli.is og laufey@grundaskoli.is Öðruvís i skó la lok h já 10. bekk Við erum tvær stöllur í Grundaskóla á Akranesi sem langar til að deila með ykkur skemmtilegri reynslu okk- ar af skólalokum hjá 10. bekk síðast- liðið vor. Sjálfstæð og skapandi vinna 23

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.