Skólavarðan - 01.04.2003, Qupperneq 21
Í stuttu máli felst könnunarleikur í að
bjóða hópi barna aðgang að miklum fjölda
ólíkra hluta sem þau leika sér með án af-
skipta fullorðinna í stuttan tíma (15 - 60
mínútur) á skipulögðu afmörkuðu svæði.
Eins og nafnið bendir til kanna börnin
möguleika hlutanna og þau gera það upp á
eigin spýtur, enda vísar orðið heuristic til
leitar og leiðarvísa, einhvers sem getur leitt
þig áfram til aukinnar þekkingar.
Auðvelt að innleiða könnunarleik
Hildur starfar sem leikskólaráðgjafi hjá
Leikskólum Reykjavíkur og hún kynntist
könnunarleiknum þegar hún var í meist-
aranámi í Skotlandi á árunum 1998 til
2002. Hún hefur nú ásamt fleirum hrint af
stað námskeiðum og kynningum á könnun-
arleik fyrir starfsmenn í reykvískum leik-
skólum.
„Ég hélt námskeið fyrir leikskólastarfs-
menn árið 2001 um starfið með yngstu
börnunum,“ segir Hildur, „þar sem ég var
aðallega að kynna bók og myndband um
könnunarleik. Síðan fékk ég Sigrúnu Ein-
arsdóttur til að koma inn í þetta með mér
og fjalla um þroskaþætti yngstu barnanna. Í
framhaldi af þessu fengum við sjö leikskóla
til þess að vinna sérstaklega með könnun-
arleikinn. Við völdum leikskóla vítt og
breitt um borgina og það er gaman að sjá
hvernig þeir nálgast verkefnið, kynningu til
foreldra og fleira á margvíslegan hátt, þótt
grundvallaratriðin séu þau sömu. Einn af
kostunum við að innleiða könnunarleik er
að aðferðin er einföld og ódýr í fram-
kvæmd,“ segir Hildur, „en þess ber að geta
að notast er við svokallaða verðlausa hluti
og efnivið og mismunandi leikumhverfi
skapast eftir því hver aðföngin eru.“
Hildur átti frumkvæðið að því að fá leik-
skólana til samstarfs, eru þetta algeng vinnu-
brögð hjá Leikskólum Reykjavíkur?
„Nei, og þetta er ekki skilgreint þróun-
arstarf enn sem komið er vegna þess að
ekki hefur verið sótt um styrki, en reyndar
er ekki ólíklegt að svo verði. Þetta er hins
vegar góð aðferð við að koma hugmyndum
og aðferðum á framfæri vegna þess að þótt
fólk sitji námskeið er það ekki endilega
alltaf nóg, oft þarf að ýta svolítið meira við
fólki,“ segir Hildur.
Þroskar einbeitingu pg athyglisgáfu
Í bókinni People under three eftir Elinor
Goldschmied og meðhöfund hennar, Sonia
Jackson, segir Goldschmied meðal annars:
„Börn á öðru ári hafa mikla þörf fyrir að
rannsaka og uppgötva á eigin spýtur hvern-
ig hlutir haga sér í rými þegar þau stjórna
þeim. Þau þarfnast mikillar fjölbreytni í
hlutum til að geta stundað þessar rann-
sóknir sínar, hluti sem eru sífellt nýir og
*hugaverðir og það eru hlutir sem er ekki
hægt að kaupa úr leikfangavörulistum...
Gríska orðið eurisko, sem heuristic er
dregið af, merkir „til að uppgötva eða ná
skilningi“. Það er einmitt þetta sem ung
börn gera af sjálfu sér, án nokkurrar stýr-
ingar frá fullorðnum, ef þau hafa efnivið í
könnunarleiðangra sína. Þetta dregur ekki
úr hæfni þeirra til að einbeita sér, þvert á
móti, það er ljóst að við réttar aðstæður og
með réttum efnivið getur barnið á öðru ári
þroskað athyglisgáfu sína á nýjan hátt.“
Goldschmied leggur áherslu á að könn-
unarleikur er nálgun en ekki niðurnjörvuð
starfsaðferð. Hún gefur þó góðar ábend-
ingar um ýmsa þætti í skipulagningu sem
æskilegt er að séu til staðar til þess að leik-
urinn verði jafnánægjulegur fyrir börnin og
Könnunar le ikur
24
Elinor Goldschmied er leikskólaráð-
gjafi sem starfar í þremur löndum,
Bretlandi, Spáni og Ítalíu. Hún hefur
útfært áhugaverða aðferð til kennslu
yngstu barna í leikskólum, heuristic
play with objects, sem starfsfélagi
hennar á Íslandi, Hildur Skarphéðins-
dóttir, hefur þýtt með hugtakinu
könnunarleikur.
Könnunarleikur
Aðferð sem er að ryðja sér til rúms hjá yngstu börnunum í leikskólanum
Lykilhugmyndir
Á námskeiðunum sem Hildur stendur
fyrir er ekki eingöngu fjallað um könnun-
arleikinn, þótt hann hafi mikið vægi.
Tveimur öðrum lykilhugmyndum Elinor
Goldschmied og Sonia Jackson eru
einnig gerð góð skil, annars vegar hug-
myndinni um lykilpersónuna og hins veg-
ar um fjársjóðskörfuna.
Lykilpersónan: Náin persónuleg sam-
skipti eru lykilatriði fyrir þroska barnsins
og hamingju. Goldschmied og Jackson
leggja gífurlega áherslu á að hvert barn
hafi sína lykilpersónu í leikskólanum og
að vel sé hugað að undirbúningi ef til
þess kemur að lykilpersóna barnsins
hætti störfum og önnur taki við. Þær
halda því einnig fram að þrátt fyrir að lyk-
ilpersónukerfið krefjist góðrar skipulagn-
ingar sé það jafnframt gefandi fyrir starfs-
menn.
Fjársjóðskarfan: Sérstaklega þrosk-
andi leikumhverfi fyrir börn sem geta
auðveldlega setið upprétt en eru ekki enn
orðin örugg í að ganga og hlaupa. Hlutum
er safnað í stöðugar körfur (án handfangs,
sem þvælist fyrir), frekar lágar og gjarnan
úr basti. Hlutirnir eiga að vera fjölbreyttir
og úr náttúrlegum efnum, ekki aðkeypt
leikföng. Fjársjóðskarfan er eins og
smækkuð mynd af könnunarleiknum, að-
löguð yngri börnum.
„Einn af kostunum við að innleiða könnunarleik er að aðferðin er einföld og ódýr í framkvæmd,“
segir Hildur Skarphéðinsdóttir.