Skólavarðan - 01.04.2003, Page 22
hægt er, og nefnir meðal annars eftirfar-
andi atriði:
• Leikefni af a.m.k. fimmtán tegundum,
hver tegund fyrir sig með meðfylgjandi
taupoka sem hægt er að loka með snæri og
50-60 hlutir í hverjum poka.
• Afmarkað rými til leiksins sem er nógu
stórt til að börnin geti hreyft sig töluvert
um. Gott er að hafa teppi til að draga úr
hávaða því þögn er mikilvægur þáttur í
könnunarleik.
• Á meðan á leikstundinni stendur eru
ekki önnur leikföng eða annað leikefni í
boði.
• Velja skal tiltekinn tíma dags fyrir
könnunarleik, til dæmis 60 mínútur, en þá
er nægur tími til að sækja leikefnið og
ganga frá því aftur. Hámark átta börn í hóp
og einn starfsmaður.
• Nýta allt leikrýmið og í þessu skyni
getur hinn fullorðni undirbúið stundina
með því að setja pokana á nokkra staði í
herberginu.
Tillögur að hlutum í leikinn
Mismunandi tegundir af ílátum: Stórar
dósir með ávölum börmum, notaðar niður-
suðudósir, kökubox, öskjur utan af
viskíflöskum, öskjur úr pappa eða tré, öskj-
ur með loki, eggjabakkar, plastflöskur.
Hlutir sem rúlla: Ullardúskar, borð-
tenniskúlur, rör (plast, pappi, málmur),
tvinnakefli, pappahólkar af ýmsum stærð-
um, hárrúllur.
Aðrir hlutir: Þvottaklemmur
úr tré, keðjur af ýmsum stærð-
um og gerðum, hurðarhúnar
úr tré, hurðastopp úr gúmmíi,
stórir hnappar, krukkulok
(málmur og plast), plastarm-
bönd, gardínuhringir, alls
konar borðar, könglar, stórar
kastaníuhnetur, skeljar, tungu-
spaðar úr tré, gamlir lyklar.
Frágangur er mikilvægur
Mikil áhersla er lögð á að
starfsmaðurinn eða kennarinn
skipti sér ekki af leik barnanna
nema nauðsyn beri til, þ.e. ef
barn fer til dæmis að henda
hlutum og trufla hin börnin.
Hinn fullorðni situr afsíðis og
fylgist með, skráir ef til vill
leik eins tiltekins barns. Þar
fyrir utan er hann tímavörður
og sér til þess að stundinni
ljúki ekki í óðagoti af því að
það gleymdist að hugsa fyrir
tíma til frágangs, en börnin
eiga að safna hlutunum saman
og færa kennaranum sem rétt-
ir fram poka svo að þau geti
sett þá ofan í.
Með þolinmæði og rólegu
andrúmslofti skilja jafnvel
yngstu börnin hvað þarf að
gera. Það getur verið mjög
gaman að taka saman og markar viss verk-
lok bæði hjá fullorðnum og börnum. Þegar
byrjað er að taka til má safna dósunum
saman fyrst. Það er skynsamlegra að sýna
það með fordæmi en að spyrja án árangurs:
„Hver ætlar að hjálpa mér að taka saman?“
Á meðan á leiknum stendur talar hinn
fullorðni ekkert en í tiltektinni nefnir hann
hlutina sem hann vill að barnið setji í hvern
poka. Þegar hluturinn er kominn á sinn
stað segir hann „þakka þér fyrir“, en ekki
„góð stelpa“ eða „góður strákur“. Með því
að nefna hlutinn tengir barnir saman orð
og hlut. Í leiknum hafa börnin kynnst eðli
hvers hlutar í gegnum skilningarvitin
þannig að nafn hlutarins fær raunverulega
merkingu. Hinn fullorðni bætir við stutt-
um, skýrum athugasemdum þegar hlutun-
um er safnað saman, eins og „þarna er einn
við fótinn á þér“, „réttu mér annan“, „líttu
fyrir aftan þig“ o.s.frv. Miklu máli skiptir
að nota marga ólíka hluti þegar málþroski
er örvaður.
keg
Bókin sem kennd er á námskeiðunum
(einnig er stuðst við myndband): People
under three - young children in day care.
Goldschmied, Elinor og Jackson, Sonia.
Routledge, London 1994.
ISBN 0-415-05976-3
Könnunar le ikur
25
Myndir segja meira en mörg orð, á þessum myndum má sjá margvíslegt leikefni sem leikskólar
hafa viðað að sér til nota í könnunarleik og áhugasöm börn að starfi. Myndirnar eru teknar í leik-
skólunum Blásölum, Fífuborg og Jöklaborg.