Skólavarðan - 01.04.2003, Page 23
Í niðurstöðum hópumræðna var meðal
annars bent á eftirfarandi atriði:
KÍ stendur frammi fyrir miklum breyt-
ingum samfara breyttum vinnuaðstæðum
félagsmanna, mikilvægt er að ná til allra
félagsmanna og stefna ber að skýrari skil-
greiningu á starfsemi félagsins og kennara-
starfinu. Fram kom að almenn félagsdeyfð
ríkti meðal félagsmanna FG og því var velt
upp hvað hægt væri að gera annað en skoð-
anakannanir til að vekja almenna félagsvit-
und. Í því skyni var meðal annars rætt um
aukna áherslu á vinnuvernd, handleiðslu,
góða líðan kennara í starfi og að skapa rúm
fyrir faglega umræðu ásamt því að kynna
fyrir fólki hvernig það getur haft áhrif í
stéttarfélaginu. Almennt var fólk á því að
fagleg vakning væri í gangi og félagið lif-
andi, skólaheimsóknir væru mjög af hinu
góða og trúnaðarmannakerfið öflugt. Fram
kom jafnframt að álag í starfi grunnskóla-
kennara væri mikið og margir félagsmenn
orðnir þreyttir á fundasetu og nefndastörf-
um og nenntu ekki meiru, ekki einu sinni
að lesa samningana. Gagnrýnt var að yfir-
stjórn KÍ væri of fjarlæg hinum almenna
félagsmanni sem einnig var gagnrýndur
fyrir að láta ekkert á sér kræla meðan allt
léki í lyndi. Efla þyrfti nýliðakynningar og
aðgreina enn betur FG og KÍ. Svæðafélög-
in væru vannýtt og þótt grunnskipulag væri
gott þyrfti að ná betur til grasrótarinnar.
Miklum breytingum í starfsumhverfi fylgdi
óöryggi en jafnframt væri gott að ímynd
kennara hefði snöggtum batnað og sjálfs-
ímynd sömuleiðis.
Ársfundur FG
26
Á 3. ársfundi Félags grunnskólakenn-
ara sem haldinn var 9. - 10. mars sl.
skiptu fundarmenn sér í hópa síðari
dag fundarins til að ræða eftirfarandi
atriði:
Hvar stöndum við, hvert stefnum við,
hvert viljum við stefna, hvað er já-
kvætt og hvað er neikvætt?
Margt rætt í hópastarfi á
ársfundi FG
Rannsóknasjóður leikskóla var stofnaður 1993 af Félagi leik-
skólakennara til minningar um þáverandi formann félagsins
Selmu Dóru Þorsteinsdóttur, en hún lést það ár og eru því tíu
ár liðin frá andláti hennar nú í apríl.
Markmið sjóðsins er, eins og fram kemur í skipulagsskrá, að
styrkja rannsóknir tengdar leikskólauppeldi.
Alls hafa sjö verkefni hlotið styrk úr sjóðnum:
• Jóhanna Einarsdóttir dósent við Kennaraháskóla Íslands til
að gera rannsókn á starfsháttum í leikskólum með áherslu á
hvernig leikskólakennarinn og annað starfsfólk undir hans
stjórn nýtir leikinn sem náms- og þroskaleið. Skýrslu hefur
verið skilað.
• Ingibjörg Símonardóttir og Jóhanna Einarsdóttir talmeina-
fræðingar til að vinna að rannsókn sem felur í sér að finna
börn innan leikskólans sem hafa slaka hljóð- og málvitund,
örva þau með ákveðnum aðferðum og kanna hvort örvunin
hefur skilað árangri.
• Anna M. Hreinsdóttir leikskólakennari og Kristín Guð-
mundsdóttir grunnskólakennari til að gera könnun á tölvu-
kunnáttu og tölvunotkun barna á leikskólaaldri á íslenskum
heimilum. Skýrslu hefur verið skilað.
• Guðrún Alda Harðardóttir leikskólakennari og lektor við
Háskólann á Akureyri til að vinna að rannsókn um heimspeki í
leikskóla. Rannsóknarspurning var: Á barnaheimspeki sam-
kvæmt kenningum Lipmans erindi í leikskólastarf með þriggja
til fimm ára börnum og má greina samhljóm með leikskóla-
uppeldi í anda Reggio Emilia og þeirri barnaheimspeki?
Skýrslu hefur verið skilað.
• Hildur Skarphéðinsdóttir leikskólakennari og leikskólaráð-
gjafi hjá Leikskólum Reykjavíkur til að vinna að verkefni
tengdu mati á leikskólastarfi. Matstæki, Barnið í brennidepli,
var þýtt, þróað og reynt. Skýrslu hefur verið skilað.
• Hrönn Pálmadóttir leikskólakennari og lektor við leikskóla-
skor Kennaraháskóla Íslands til að vinna að rannsókn: Boð-
skipti í leikskóla - athugun á boðskiptum barna með sam-
skiptaerfiðleika og íhlutun fullorðinna. Skýrslu hefur verið
skilað.
• Fyrirtækið Landmótun til að vinna spurningakönnun meðal
leikskólakennara um notkun leikskólalóða. Könnunin er hluti
af víðtækara verkefni og rannsókn sem fyrirtækið hyggst gera
á leikskólalóðum og leiktækjum á lóðum, hvernig börn nýta
þau og nota.
Styrkþegum ber að skila skýrslu um rannsóknir sínar og
liggja þær frammi á skrifstofu Félags leikskólakennara í Kenn-
arahúsinu. Styrkþegum ber ennfremur að kynna verk sín á
vegum Félags leikskólakennara.
Áformað er að auglýsa eftir umsóknum um styrki úr sjóðn-
um á þessu ári.
Rannsóknasjóður er fjármagnaður með eftirfarandi hætti:
- Ávöxtun stofnfjár.
- Ágóða af fyrirlestrum sem haldnir hafa verið á vegum
skólamálanefndar Félags leikskólakennara.
- Framlögum Félags leikskólakennara.
- Gjöfum, til dæmis frá útskriftarárgöngum leikskólakennara
á útskriftarafmælum.
- Ágóða af minningarkortum. Leikskólakennarar eru ein-
dregið hvattir til að nýta sér minningarkortin. Þau er hægt að
panta hjá FL/KÍ í síma 595-1111 og á netfanginu
sigurlina@ki.is eða hjá formanni sjóðsstjórnar í síma 565-
6431/570-1626 og á netföngunum sesseljah@kopavogur.is
eða sesselja@mmedia.is.
Stjórn sjóðsins skipa nú:
Sesselja Hauksdóttir leikskólafulltrúi, formaður
Guðrún Alda Harðardóttir lektor við HA
Jóhanna Einarsdóttir dósent við KHÍ
Varamenn eru:
Jónína Konráðsdóttir leikskólastjóri og
Oddný Gestsdóttir leikskólastjóri.
Frá Rannsóknasjóði leikskóla