Þjóðmál - 01.06.2012, Side 17
16 Þjóðmál SUmAR 2012
enda var keisarinn talinn hliðhollur Banda
ríkjamönnum og Vesturlöndum, en vinstri
menn taka ávallt málstað andstæðinga þeirra
(og sinna eigin) . Það er varla nokkur vafi á
því, að Íransstjórn, sú sem nú ógnar heims
byggðinni með kjarnorkuvopnum, er lýð
ræðisleg, því að hún nýtur stuðnings yfir
gnæfandi meiri hluta landsmanna . Hvert er
þá vandamálið?
Sagan frá Íran virðist nú vera að endurtaka
sig í „arabíska vorinu“ svokallaða, en margt
bendir til að „vormenn Islams“, séu flestir
af sama sauðahúsi og Khomeini og klerkar
hans . Það allra versta og hættulegasta sem nú
gæti gerst í NorðurAfríku og Sýrlandi væri,
að lýðræði yrði komið á . „Margur heldur
mig sig,“ segir máltækið og einfeldningar
á Vesturlöndum virðast alls ekki geta skilið
að fólk í þriðja heiminum hugsar alls ekki
eins og þeir . Dulið hatur á Vesturlöndum
ólgar hvarvetna undir niðri, samfara
öfund og reiði . Það sem fer einna mest
fyrir brjóstið á þriðja heims íbúum, og alls
ekki aðeins múslimum, eru einmitt helstu
baráttu mál bandamanna þeirra, vinstri
manna, nefnilega allt lauslætið, homma og
kvennabröltið, klámið og margt annað sem
þetta fólk fyrirlítur . Þekkt birtingarmynd
þessa haturs er, þegar múslimar, búsettir
á Vesturlöndum, myrða dætur sínar með
köldu blóði ef þeir telja að þær séu farnar að
temja sér siði innfæddra . „Heiðursmorðin“
eru eitt dæmi um hið falda, undirliggjandi
hatur á Vesturlandabúum, blandað djúp
stæðri öfund, sem fékk fyrst útrás í Íran, en
ólgar hvarvetna undir meðal þriðja heims
búa, og ekki aðeins múslima . Þeir vilja þó
ólmir njóta góðs af lífsgæðum okkar .
Menn, allra síst fjölmiðlamenn, virðast
alls ekki skilja, að í hugum verulegs hluta
almennings í múslimaheiminum er Osama
bin Laden ekki aðeins hetja, held ur allt
að því heilagur maður . Nái lýðræð ið fram
að ganga og almenningur komi fram vilja
sínum er líklegast að t .d . í Egypta landi
verði strax skrúfað fyrir öll vin sam leg
samskipti við Ísrael . Í staðinn muni koma
fullur fjandskapur . Kristnir menn og fleiri
minnihlutahópar munu lenda í miklum
þrengingum . Þeir styðja því núverandi
valdhafa . Líklegt er, að ofbeldis og hryðju
verkahópar muni einnig njóta velþókn
unar hinna nýju stjórnvalda . Sagan frá Íran
1978–1979 mun trúlega endurtaka sig og
raunar er sennilegt, að falli Egyptaland og
Sýrland muni flest önnur lönd á svæðinu
einnig verða „lýðræðisleg“, þ .e . lendi undir
stjórn fulltrúa meirihluta almennings, þ .e .
islamista .
Nú er í tísku hérlendis að halda því fram, að „fólkið“, eða „hinn almenni
maður“, þ .e . Jón Jónsson í Breiðholtinu,
eigi að ráða . En er Jón nokkur maður til
þess? Og kærir hann sig yfirleitt nokkuð um
það? Flestir hafa nóg með sig og hafa mjög
takmarkaðan áhuga, og enn síður þekk ingu
á flestum þeim oft flóknu málum sem koma
til kasta stjórnvalda .
Alls staðar í náttúrunni, þar sem búið er í
hóp, ríkir einræði og sömuleiðis miskunn
ar laus stétta skipting . Gildir einu hvort það
er í maura búinu, úlfahópnum eða hænsna
húsinu .
Einnig í mannheimum er einræði elsta og
upprunalegasta stjórnarformið, en lýðræði
í víðustu merkingu sinni, þ .e . samráð um
ákvarðanatöku, er einnig mjög gamalt og
sú kenning alröng, sem hver hefur étið upp
eftir öðrum í aldir, að FornGrikkir hafi
fundið það upp . Samráð elstu og virtustu
manna ættflokksins hefur tíðkast meðal
frumstæðra þjóðflokka víða um heim í
árþúsundir, t .d . meðal amerískra indíána
og þjóðveldið íslenska er eitt afbrigði af því .
Hliðstætt skipulag ríkti víða meðal germana
og trúlega einnig annarra fornþjóða Evrópu .
En lýðræði og samráð nýtur sín best í lítt