Skólavarðan - 01.12.2011, Qupperneq 14
14
Skólavarðan 3.tbl. 2011
Í tengslum við þróunarverkefni í stærðfræðikennslu sem ég leiddi í
leikskólanum Nóaborg fyrir tólf árum bjó ég til fjölmörg borðspil og
önnur viðfangsefni fyrir börnin. Þau spil og viðfangsefni og annað sem
síðan hefur bæst við er orðinn fastur liður í starfinu í leikskólanum þar
sem stærðfræði og sýnilegt ritmál eru leiðarljós í starfinu. Öll þessi
„heimagerðu“ viðfangsefni eru hönnuð með það í huga að örva læsi í
móðurmáli og stærðfræði. Enn í dag lifa þau góðu lífi og njóta mikilla
vinsælda hjá börnunum í Nóaborg.
Erfitt að fá styrk ...
Fyrir um þremur árum fór ég að velta fyrir mér möguleikum á að
koma þessu námsefni á framfæri við stærri hóp og þá kviknuðu
hugmyndir um hvernig hægt væri að útfæra þessi spil sem einfalda
tölvuleiki. Ég sótti um styrki til nokkurra aðila hér heima en hafði
ekki erindi sem erfiði. Ég hafði þó fulla trú á hugmyndinni og var
sífellt með augun opin fyrir möguleikum til að koma henni á framfæri.
Ég kom mér í samband við forritara og teiknara sem voru tilbúnir
að vinna að hugmyndinni með mér ef peningar fyndust til þess að
greiða laun. Tækifærið gafst þegar ég sá auglýsingu frá Nordplus
sprog og kultur um styrki til verkefna þar sem áhersla væri lögðá
læsi í ýmsum myndum. Ég lagði inn umsókn með hugmyndum af
fimm tölvuleikjum sem tengdust stærðfræði og móðurmáli. Enn kom
neitun en að þessu sinni fylgdi rökstuðningur þar sem fram kom að
hugmyndin þætti góð en lagfæra þyrfti ákveðin útfærsluatriði. Mér
bent á að aukaúthlutun yrði í október 2010.
... en loks komst skriður á málið
Ég gerði það sem þurfti, sótti um aftur og fékk í árslok 2010 styrk frá
Nordplus sprog og kultur til að útbúa þrjá tölvuleiki á sænsku fyrir
sænsk börn. Þá hafði ég komist í samband við um það bil tíu leik- og
Lært og leikið á netinu
Ókeypis, engin skráning, engar auglýsingar
Paxel123.com er nýr íslenskur vefur, sprottinn úr þróunarverkefni í leikskólanum
Nóaborg og örvar læsi í stærðfræði og móðurmáli á sjö tungumálum. Anna Margrét
Ólafsdóttir leikskólastjóri segir frá vefnum.
Texti: Anna Margrét Ólafsdóttir
leikskólastjóri í Nóaborg í Reykjavík
Er korv í matinn?
Við í 3.SÓ í Háteigsskóla vorum beðin um að vera í
prófunarhópi við þróun paxel123.com fyrir tæpum
tveimur árum síðan og um að gefa álit. Nemendur
tóku þetta mjög alvarlega og prófuðu allt sem hægt
var að prófa á síðunni og tjáðu sig um kosti og galla.
Þau voru upp til hópa yfir sig hrifin af þessar frábæru
síðu og skemmtu sér vel. Þegar síðan var svo opnuð
formlega fundu þau til sín og lögðu sig fram við að
kenna yngri systkinum og nemendum á vefinn. Þau
fara oft inn á hann til að æfa sig, meðal annars í rími
og stafarugli, læra mikið af því og bæta getu sína í
lestri og stafsetningu. Það sem þeim finnst að auki
mjög lærdómsríkt við síðuna eru öll tungumálin sem
þar eru. Þau eru sagt að „læra“ önnur tungumál með
hjálp síðunnar. Þau mættu galvösk í hádegismatinn
einn daginn og spurðu hvort það væru korv í matinn
(sem er pylsa á sænsku), þetta höfðu þau lært með
því að fara í sænska rímið! Ég mæli eindregið með
að nota þessa síðu með yngstu börnum grunnskólans
til að æfa rím, lestur, stafsetningu og fleira - og bara
til að leika sér með orð, tungu og tákn.
Sigrún Ólafsdóttir, grunnskólakennari, Háteigsskóla.
námsgögn